Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Side 19
5. tafla. Heyát ánna, kg þe. á á og dag
bvalt rúlluhev b - burrk nillnhfv
1990-1991;
19.11.- 8.1. Tilraunahey (f+v) 1,40 1,52 em
9.1,- 24.3. Þurriiey - sama fóðrun (f) 1,18 1,11 ***
- - Þurrhey - sama fóðrun (v) 0,95 1,05 ***
25.3.- 28.4. Tilraunahey (f) 1,45 1,80 ***
- - Tilraunahey (v) 1,32 1,49 *
29.4,- 14.5. Tilraunahey (f+v) 1,62 1,76 em
vegið meðaltal tilr. tímabila - fullorðnar ær 1,46 (41%) 1, .66 (66%)
vegið meöaltal tilr. tfmabila - veturg. ær 1,41 (41%) 1, ,55 (66%)
1991-1992 - fyrri slœgia:
27.11.- 14.1. Tilraunahey 1,54 1,59 em
15.1.- 31.3. Þurrhey - samafóðrun 1,34 1,34 em
1.4.- 7.5. Tilraunahey 1,44 1,59 ***
vegið meðaltal tilr. tímabila 1,49 (36%) 1, 59 (52%)
129J.-1221.-M;.
27.11.- 14.1. Tilraunahey 1,47 1,69 ***
15.1.-31.3. Þurrhey - sama fóðrun 1,43 1,42 em
1.4.-7.5. Tilraunahey 1,65 1,94 ***
26.4.- 7.5. Þurrhey - sama fóðrun 1.51 1,51 em
vegið meðaltal tilr. tímabila 1,56 (38%) 1,81 (56%)
em: p>0,05; *: p< 0,05; **: p< 0,01
***: p<0,001
Það fór svo í öllum þremur tilraunaflokkunum að þurrlega rúlluheyið ást betur en það
þvala. Munurinn á heyátinu reyndist vera marktækur (p<0,05) á fimm mæliskeiðum af
átta. Munur á milli tilraunaliða er einna mestur í hánni, um 16%, og er hann marktækur á
báðum tilraunatímabilum (p<0,001). Athyglisvert er að hvorugt árið reyndist vera
marktækur mismunur á milli tilraunaliða þegar fyrrislægjuhey var gefið. Undir vorið var
mismunurinn hins vegar orðinn meiri og þá marktækur. Sé fundið meðalhlutfall áts
þurrlega og þvala rúlluheysins (b/a) fyrri hluta vetrar (A-skeið) annars vegar og á
vormánuðum (C-skeið) hins vegar fást þessar tölur:
fyrri hluta vetrar 109 ±6,0
á vorrnánuðum 115 ±6,2
Mismunur heyáts á milli tilraunaliða hefur því heldur vaxið þegar leið á veturinn. Virðast
æmar síður hafa orðið leiðar á þurrlega rúlluheyinu (b) en hinu þvala (a). Hugsanlega
kunna hér að vera á ferð hliðstæð áhrif og Sigríður Jónsdóttir (1991) fann við samanburð
á fóðrun áa á súgþurrkaðri töðu og rúlluheyi sem hafði 47-53% þe. Æmar átu meira af
súgþurrkuðu töðunni en rúlluheyinu þegar kom fram undir vorið.
Nokkur fylgni var með þurrefnisáti ánna (y) og þurrkstigi rúlluheysins (x). Séu
mælitölur allra túnabila, sem rúlluhey var gefið á, teknar saman má lýsa fylgninni þannig:
y = 0,007 x- 1,22 r2= 0,30 0,05>p>0,01
Þurrefnisát ánna hefur samkvæmt tölunum vaxið um 7 g á dag fyrir hvert prósentustig f
þurrefni heysins. Er þetta nokkra minni aukning en kom fram í Hvanneyrartilraununum
1988-1990 (Sigríður Jónsdóttir 1991).
13