Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Side 33
3.2.2 Efnamagn og heygœði
í tilraunaefninu var hægt að meta árangur verkunar heysins hvað snerti efnamagn og
fóðurgildi með tvennum hætti: Annars vegar með sýnum sem tekin voru úr sérstökum
mæliböggum, þ.e. böggunum sem merktir voru við hirðingu (sjá kafla 2.1). Hins vegar
með sýnum sem tekin voru úr hverjum bagga við gjafir á öllum mæliskeiðum. Þótt megin
niðurstaðan yrði hin sama með báðum aðferðum verður sagt hér sérstaklega frá hvorri
þeirra.
Heysýni úr mœliböggum:
Rýmun meltanleika má ætla nokkum mælikvarða á breytingar á fóðurgildi heysins frá
hirðingu til gjafa. Nær enginn rýrnunarmunur kom fram á milli aðferðanna (t=0,50;
p»0,05). Hins vegar virtist rýrnunin hafa orðið þeim mun meiri sem meltanleiki
þurrefnis heysins við bindingu var meiri. Meðaltölur þar um eru skráðar í 4. töflu ásamt
viðeigandi aðhvarfslíkingum en gildissvið þeirra er 62 - 74% meltanl. þe.:
4. tafla. Meltanleiki þurrefnis við bindingu og gjafir
v. bind. v. gjafir Hlutfall Aðhvarfs- Fylgni
X y y/x líking
Heilt hey 67,3 67,0 99,8 y = 22,3 +0,66 x r2 = 0,68 p = 0,0005
Skorið hey 68,5 68,1 99,4 y = 15,2 +0,77 x r2 = 0,74 p = 0,0004
Samkvæmt báðum jöfnunum varð meltanleikabreytingin frá bindingu til gjafa í Iágmarki
við x = 66 % meltanl. þe. Við 74% meltanleika þe. ætti meðalrýmunin að hafa orðið
3,8% í heila heyinu en 2,5% f því skoma. Ekki reyndist meltanleikabreytingin vera tengd
sýrustigi heysins. Hneigðar gætti þó til jákvæðrar fylgni (r = 0,10; p = 0,65). Bendir það
til þess að sýrustig segi Iftið um varðveislu á svo þurru rúlluheyi (53-71 % þe.) enda vart
lengur um gerjun að ræða. Meltanleikabreytingin reyndist heldur ekki tengd
þurrefnisprósentu heysins. Úr mæliböggunum voru jafnan tekin tvö sýni: úr kjama
baggans og úr ytra lagi hans. í kjarnanum féll meltanleiki þurrefnis heldur meira en
utanvert í bagga án þess þó að munurinn væri marktækur (t = 0,78, p » 0,05). Kann
súrefni fremur hafa náð að leika um miðju baggans þar sem heyið var lausara í sér en
utanvert í bagga þar sem það er jafnan þéttara í sér úr þessum gerðum rúllubindivéla
(lauskjamavél).
Heysýni úr öllum böggum við gjafir:
í 5. töflu em meðaltölur helstu einkennisstærða verkunar og fóðurgildis heysins sem
gefið var á hverju fóðranarskeiði tilraunarinnar. Tölumar staðfesta í aðalatriðum þá
niðurstöðu sem fékkst úr mæliböggunum svonefndu. Liðamunur á verkun heysins og
fóðurgildi var óveralegur. Munur á milli bagga innan liða var meiri en liðamunurinn á
öllum mæliskeiðunum. Samstæðust voru áhrifin hvað snerti sýrustig heysins en það var á
öllum mæliskeiðunum hærra að meðaltali í skoma heyinu en hinu sem óskorið var.
27