Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Page 29

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Page 29
ÍSL. LANDBÚN. J. AGR. RES. ICEL. 1971 3, 2: 27-33 Rannsóknir á rotkali á íslandi Bjarni E. Guðleifsson llannsóknastofnun landbunaðarins, jarðreektardeild Yfirlit. Rannsóknir þær, sem hér er greint frá, voru framkvæmdar á árunum 1968 og 1969. Rannsóknirnar eru tvíþættar. í fyrsta lagi athuganir á kölnum túnum á Norður- landi árið 1968, en þá voru tekin sýni af dauðu grasi og þau athuguð undir smásjá á rannsóknastofu með tilliti til hvílu- og dvalagróa kalsveppa. í öðru lagi er greint frá niðurstöðum 15 úðunartilrauna með PCNB-Iyfi á Suður- og Norðurlandi. Var úðað haustið 1968 og kal metið árið 1969. Bæði árin urðu allmiklar kalskemmdir á athugunarsvæðunum. Árið 1968 kól fyrsta árs nýræktir yfirleitt minna en eldri tún, andstætt því, sem var 1969, og gat þetta bent til þess, að um rotkal væri að ræða seinna árið. Rannsóknirnar bentu hins vegar ekki til þess, að sveppir ættu neinn þátt í kalskcmmdunum þessi árin. Bent er á, að 1969 hafi sennilega verið um þurrakal að ræða, en hins vegar viiðist svellkal hafa verið ríkjandi 1968. Enda þótt kalsveppir séu ekki meginorsök kalskemmdanna á Islandi, cr enn ósannað, hvort þeir fyrirfinnist hérlendis, og er þess getið til, að mestar líkur séu á, að snæmygla (Fusarium nivale) sé staðlæg hér. INNGANGUR Kal getur orðið á margan hátt og af ýms- um völdum. Rotkal er af völdum kalsveppa, og er það sums staðar erlendis talið mjög algengt, annars staðar sjaldgæft eða afls ekkert. Þessum mismun veldur breytilegt veðurfar, og virðist svo sem sveppir valdi hvað mestu tjóni, þar sem snjór liggur lengi á þíðri jörð (Andersen 1960, 1966, 1967, Ylimáki 1962). Ársvoll (1971) hefur kann- að útbreiðslu og orsakir kalskemmda víða um Noreg, og hefur hann sýnt fram á, að rotkal er fátítt á láglendi og út við strend- ur, þar sem umhleypingar eru miklar, en skiptir mestu máli á hærri svæðum inn til lands, þar sem vetur eru stöðugri. Við strendur Norður-Noregs er kal af ólífræn- um völdum mjög ríkjandi. Kemur þetta vel lieim við þá áætlun Andersens (1960), að um eða innan við 10% af kalskemmdum í Norður-Noregi séu af völdum kalsveppa. Ljóst er af atliugun Ársvolls, að það eru sveppir af ættinni Typhula, sem mestu tjóni valda í innlands- héruðum, en liins vegar er Fusariurn nivale algengastur kalsveppa í strandhéruðum, enda þótt lieildarhlutdeild sveppa í kali sé þar fremur lítil. I innlandshéruðum Norð- ur-Finnlands virðist sem Sclerotinia borealis sé mestur skaðvaldur (Pohjakallio et al. 1963, Jamalainen 1970). 1 mörgum tilvikum hefur tekizt að draga úr tjóni af völdum kalsveppa með því að úða með ákveðnum lyfjum að hausti. Pohjakallio et al. (1963) lækkuðu rotkal á túnvingli og vallarfoxgrasi í tilraunum í Norður-Finnlandi úr 100 niður í 15% við að úða með PCNB-lyfi. Andersen (1967) greinir einnig frá fimm tilraunum í Norð-

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.