Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Síða 30
28 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSOKNIR
ur-Noregi, þar sem tún kól að meðaltali
rúmlega 50%, en úðaða reiti einungis 10%,
og var uppskera þar 12,4 hkg/ha nteiri en
af reitum, sem ekki voru úðaðir.
Þegar rannsaka skal orsakir kalskemmda
á íslandi, er rétt að athuga, hvort sveppir
geti átt hér einhvern hlut að máli á sama
hátt og erlendis, enda þótt líkur og fyrri
athuganir bendi ekki til þess. Rannsóknum
þeim, sem liér verður greint frá, var ætlað
að veita svar við þessu.
LÝSING RANNSÓKNA
Rannsóknirnar voru tvíþættar: í fyrsta lagi
rannsóknir á kölnum túnum árið 1968 og
í öðru lagi úðunartilraunir gegn kalsvepp-
um árið 1968/1969.
a. Rannsóknir á kölniim túnurn
árið 1968.
Þessar rannsóknir voru einvörðungu gerð-
ar á Norðurlandi, en árið 1968 var kal með
mesta móti í þeim hluta landisns. Var farið
á 208 bæi fljótlega eltir að snjóa leysti. Hel/t
voru valdir bæir með mikilli nýrækt, og
voru metnar kalskemmdir á einstökum
spildum og að meðaltali á öllum túnum
hvers bæjar. Á kalskemmdum túnum var
athugað gaumgæfilega, hvort um rotkal
gæti verið að ræða. Á 93 spildum, þar sem
svipmót kalskemmda gat bent til rotkals,
voru tekin sýni af kölnu grasi til smásjár-
athugunar á rannsóknastofu. Þessi 93 sýni
voru frá 73 bæjum í 32 hreppum og 5 sýsl-
um.
b. Úðunartilraunir gegn kalsveppurn
árið 1968j 1969.
í samvinnu við tilraunastöðvarnar á Suð-
ur- og Norðurlandi (Sámsstaðir, Korpa,
Akureyri) voru lagðar út 15 úðunartilraun-
ir með PCNB-lyf gegn kalsveppum haustið
1968. Tilraununum var dreift á bæi, víðast
TAFLA 1 - TABLE 1
Upplýsingar um úðunartilraunir með PCNB árið 1968/1969
Informations about the spraying experiments with the fungicid PCNB
in 1968/1969
Bær Name of farm Hreppur County Sýsla Shire Úðunar- dagur Date of spraying in 1968 Fjöldi tilrauna Number of experiments
Úthlíð Skaftártunguhr. V.-Skaftafellssýsla 22. nóv. 2
Flaga Skaftártunguhr. V.-Skaftafellssýsla 22. nóv. 2
Heiðarbær Þingvallahreppur Árnessýsla 15. nóv. 2
Brúsastaðir Þingvallahreppur Árnessýsla 3. des. 9
Stardalur K jalarneshreppur Kjósarsýsla 15. nóv. 2
Hulduhólar Mosfellshreppur Kjósarsýsla 27. nóv. 2
Hofsárkot Svarfaðardalshr. Eyjafjarðarsýsla 22. nóv. 1
Sakka Svarfaðardalshr. Eyjaf jarðarsýsla 22. nóv. 1
Þverá Hálshreppur S.-Þingeyjarsýsla 19. nóv. 1