Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Blaðsíða 56

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Blaðsíða 56
54 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR reiknað út í hundraðshlutum, hve mikið var af hvoru, eins og sjá má á rnyncl 2. Plöntusjúkdómar voru ekki áberandi á grösum í tilraununum. Þó sást ryðsveppur (Uredinales) á vallarfoxgrasinu árin 1966 og 1967. Sjúkdómurinn var sérstaklega áber- andi síðara árið. Hugsanlega hafa sveppirn- ir veiklað vallarfoxgrasið, svo að það hefur þolað næsta vetur verr. KAL f tilraununum, sem gerðar voru í Norður- Noregi með kalþol grasa, reyndist Engmo þolnasti stofninn af vallarfoxgrasi. Einnig kom í ljós, að Engmo vallarfoxgras, sem kom upp af fræi frá Tromsö í Norður-Noregi, var töluvert kalþolnara en Engmo, er kom upp af fræi, ræktuðu i Austur-Noregi, en þar liöfðu fræplönturnar verið í tvo ættliði (Andersen 1971). Engmo vallarfoxgras liefur gefið góða uppskeru í umræddum tilraunum þrátt fyr- ir kuldatíð. Rétt er þó að benda á, að skepn- ur komust ekki inn á tilraunalanclið, en vallarfoxgras þolir haust- og vorbeit grasa verst (Jetne 1964). Engmo fræið, sem notað var á Hvanneyri, var ræktað í Danmörku. En stofnfræið, sem fræplönturnar í Dan- mörku uxu upp af, var frá Norður-Noregi. Rubin túnvingull er kynbættur i Danmörku og fræið ræktað þar. Árin 1968 og 1969 voru kalár í Borgar- firði. Tafla 3 sýnir hita og úrkomu á Hvann- eyri vor- og sumarmánuðina, á meðan til- raunir stóðu yfir. Á íslandi voru tilrauna- árin öll köld, miðað við meðaltal áranna 1931—1960 (Adda Bára Sigfúsdóttir 1970). Á töflu 3 sést, að vorið 1968 var sérlega kalt og úrkoman lítil. Nokkrir vísindamenn (Ellenberg 1971, Gloyne 1969) telja vor- þurrka auka líkur fyrir kali. Árið 1968 grisj- aðist gróðurinn í tilraun nr. 167—65, þannig að gizkað var á, að 10% af vallarfoxgrasinu hefði dáið. Á rnyncl 3 sést, að uppskeran hef- ur orðið lægri á flestum liðum árið 1968 en árið áður. Á súluritinu sést lika greinilega, að þeir liðir, sem slegnir voru seint árið 1967, urðu liarðar úti veturinn eftir. Áður liefur komið fram í tilraunum á Hvanneyri, að seinn sláttur eykur kalhættu (Magnús Óskarsson 1969). Ástæða er til þess að ætla, að gróður á þeim reitum, sem slegnir voru snemma árið 1967 hafi líka grisjazt, entla var upp- skera úr fyrri slætti 1968 mjög léleg. Háar- sprettan á þessum reitum varð þeim mun meiri, eins og súluritið á mynd 3 leiðir í Ijós. Það, hve fyrri sláttur var snemma, hef- ur líklega aukið endurvöxt grasanna og þau því strax farið að þekja kalskellurnar. Þess- ar niðurstöður styrkja þá gömlu skoðun, að kalin tún eigi að slá snemma. Um það segir Ólafur Jónsson (1937): „Gróðurinn, sem eft- ir lifir, notar Jiá venjulega hið aukna vaxtar- rými til hins ýtrasta, ef ekki skortir áburð, og skýtur nýjum sprotum inn í auðu bilin.“ Og síðar segir Ólafur: „Útgræðsluna má örva með því að slá snemma, eða um það leyti, sem fyrstu stráin eru að mynda ax. Oft er lítið að slá, en um það má ekki fást.“ Til- raunin styrkir einnig þá hugmynd Ólafs, að eftir kal sé bezt að slá, Jregar grösin eru að skríða, Jiví að 16. júlí 1968 voru grösin ein- mitt að skríða, en reitirnir, sem þá voru slegnir, gáfu góða uppskeru árið eftir. Á töflu 6 yfir tilraun nr. 199—66 sést, að uppskeran árið 1969 eftir vallarfoxgras í lireinrækt var 45,1 hkg/ha, en eftir túnving- ul í hreinrækt 24,7 hkg/ha. Þarna höfðu orðið mikil umskipti frá árinu áður, þegar uppskera af vallarfoxgrasi og túnvingli var svipuð. Báðar grastegundirnar grisjuðust árið 1968, en 1969 þurrkast túnvingullinn nær því út, þarmig að þessi 24,7 hkg/ha eru sennilega mest af öðrum gróðri, ekki sízt af Engmo vallarfoxgrasi, sem kornið var í reit- inn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.