Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Page 62
60 ISLENZKAR LANDBIJNAÐARRANNSÓKNIR
skera fæst við annan sláttutíma fyrri slátt-
ar, ef köfnunarefnisáburður er borinn á í
einu lagi. Þar sem áburðinum var tvískipt,
befur fengizt mest próteínuppskera við
fyrsta sláttutíma. Við samanburð á pró-
teínuppskeru við alla þrjá sláttutímana kom
í ljós, að breytileikinn frá ári til árs var mik-
ill, og var ekki um marktækan mun að ræða
á milli sláttutíma, væru öll árin borin sam-
an. Gildir þá einu, hvort köfnunarefnið var
borið á í einu lagi eða tvennu.
Hafa verður í huga, að hér er miðað við
heildaruppskeru af próteíni. Hins vegar
getur búféð ekki nýtt allt próteinmagnið.
Meltanlegt próteínmagn er því betri mæli-
kvarði á fóðurgildið en heildarmagn pró-
teíns. Meltanlegt próteín stendur í réttu
hlutfalli við próteínmagnið (Höjland
Fredriksen 1969). Munur á próteínupp-
skeru, fyrsta sláttutíma í vil, ætti því að
vera rneiri en að framan getur, ef tillit væri
tekið til meltanleika próteínsins. Leiðir það
af neikvæðri fylgni próteínmagns grasanna
og þroskastigs þeirra.
í tilraun nr. 167—65 voru borin á 800 kg/
ha af köfnunarefni á árunum 1965—1970. Af
ábornu köfnunarefni heimtist aftur í upp-
skeru um 87%, og var munur á milli liða
óverulegur.
1 tilraun nr. 199—66 var próteínmagn
vallarfoxgrassins hærra en próteínmagn tún-
vinguls, og gilti það jafnt um fyrri og seinni
slátt. Af ábornu köfnunarefni á vallarfox-
gras heimtust 74% í uppskeru, en af ábornu
köfnunarefni á túnvingul heimtust 63%.
Þessi munur stafar af minni uppskeru af
TAFLA 11 - TABLE 11
Rakamagn (%) í vallarfoxgrasi (Engmo) við slátt í tilraun nr. 167—65.
Meðaltal 6 ára
Moisture cont.ent (%) in Phleum. pratense (Engmo) at cutting time in experiment
no 167—65. 6 year average.
Tími á I 120 kgN/h; — borið á í II 80 + 40 kgN/ha — tvískipt.
milli slátta einu lagi
Time I 120 kgN/ha — applied II 80 kgN/ha —applied in
between in spring spring. 40 kgN/ha —
cuts applied after first cut.
Vikur Fyrri sl. Seinni sl. , Fyrri sl. Seinni sl.
Weeks First cut Second cut First cut Second cut
Slegið snemma 7 76,2 77,3
Cut before shooting 9 81,0 75,7 80,1 76,7
Slegið, er grös skríða 7 76,1 77,4
Cut at shooting time 9 79,8 75,5 79,0 76,6
Slegið seint 7 73,6 75,7
Cut before flowering 9 75,4 71,9 74,8 74,1