Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Page 78

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1971, Page 78
76 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR Bókarkynning Biological Abstracts Biological Abstracts er stærsta og yfir- gripsmesta útdráttarverkið, sem gefið er út um líffræði. Það kemur út hálfsmánaðar- lega, og í því eru útdrættir úr greinum og bókum, sem oftast eru aðeins fárra mánaða gamlar. I hverju hálfsmánaðarhefti eru um 6 þúsund útdrættir, eða um 150 þúsund útdrættir á ári. I Biological Abstracts er útdráttunum í hverju hefti raðað niður í eftirfarandi aðal- flokka: Aerospace biology, agriculture, bacterio- logy, beliavioral sciences, biochemistry, bio- instrumentation, biophysics, cell biology, envirnonmental biology, experimental medicine, genetics, immunology, microbio- logy, nutrition, parasitology, pathology (ani- mal ancl plant), pharmacology, pliysiology (anirnal and plant), public health, radia- tion biology, systematic biology, toxicology, veterinary science og virology. Hverjum aðalflokki er svo skipt niður í undirflokka eftir efni, í sumurn tilfellum í allt að 60 undirflokka. Eins og gefur að skilja, þá geta rnargar greinanna fallið inn undir marga þeirra flokka, sem nefndir eru liér að framan. Þess vegna er í hverju hefti svokallaður Cross Index, sem gerir mönnum kleift að finna útdrætti úr ritgerðum um ýmis tiltekin efni, óháð þeirri niðurröðun í aðalflokka og undirflokka, sem nefnd er hér að fram- Einnig er í hverju hefti svokallaður Bio- systematic Index, en í honurn er útdrátt- unurn raðað upp eftir flokkunarfræðilegri stöðu þeirra lífvera, sem greinarnar fjalla um, og síðan eftir efni greinanna. Höfunda- skrá er í hverju hefti. Að lokum er í hverju liefti svokallað B. A. S.I.C. Með hjálp þess er hægt að finna allar þær ritgerðir og bækur, sem hafa eitt- hvert tiltekið orð í titli sínum. Það tekur að vísu nokkurn tíma að kynn- ast þeim mörgu möguleikum, sem B.A. hef- ur upp á að bjóða. En fyrir þá, sem vilja fylgjast með því, sem er að gerast í heim- inum innan sérgreinar sinnar í líffræði, er B. A. ómetanleg hjálp. B.A. kostar nú 1000 $ á ári, og er því ekki á allra færi að kaupa það. Tilrauna- stöð Háskólans í meinafræði að Keldum kaupir ritverkið og liggur það þar frammi í bókasafni stofnunarinnar, ásamt mörgum öðrum bókum og tímaritum um líffræði. Er öllum þeim, sem áhuga hafa, heimilt að nota það, eftir að liafa haft samband við bókavörð stofnunarinnar. Ég vil hvetja alla þá, sem vinna að líf- fræðirannsóknum eða vilja fylgjast með því, sem er að gerast í sérgrein sinni, að notfæra sér þetta verk til fullnustu og lesa það að staðaldri. Keldum, 10. janúar 1972. Sigurður H. Richter. an.

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.