Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1975, Blaðsíða 24
22 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
Soil profile frorn Nordurárdal in Skagafjördur Soil profile frorn Vesturdalur in Skagafjördur
showing ash layers designated Hs, H., and H5 showing the 4 rhyolithic ash layers originating
originally from the volcano Hekla and previ- from the volcano Hekla.
ouslu unknown ash leyer O?
svæðinu, eftir að landslag fór að færast í
núverandi horf. Gosmenjar þessar, sem eru í
eldri grágrýtismynduninni, er m. a. að finna
í Mælifellshnjúk, Þórðarhöfða og á Skaga
(Jakob Líndal 1964), og eru þetta einkum
hraunlög, að vísu með nokkrum sandkennd-
um millilögum, en lítið um gosmóberg.
Jarðgrunnur á rannsóknarsvæðinu er frá
síðasta hluta ísaldar eða yngri. Er þar einkum
um jökulruðning og vatnaset að ræða. Vatna-
setið er einkum að finna á flatlendinu milli
Blönduhlíðar að austan og Neðribyggðar,
Langholts og Borgarsveitar að vestan, frá
Reykjatungu að sunnan og norður að sjó.
Jökulruðning frá síðasta jökulskeiði er eink-
um að finna í framdölum um Vesturdal og
Svartárdal og þaðan áfram norður láglendi
Tungusveitar allt norður að Reykjamngu.
Annað víðáttumikið svæði hulið jökulruðn-
ingi er Vatnsskarð, og teygist það svæði
meðfram Sæmundarhlíðarfjöllum og áfram
allt norður undir Sauðárkrók. A þessu svæði
er meðai annars að finna noklcurra km langa
malarása. Heitir einn þeirra Kattarhryggur
og er norðan við bæinn Skarðsá í Sæmundar-
hlíð. Árangur jökulrofsins er mjög áberandi
á Skagafjarðarsvæðinu. Ummerki um það er
hvarvetna að sjá, t. d. á hvalbökum og í
Jarðvegssnið úr Norðurárdal í Skagafirði, sem
sýnir öskulögin H3> H4 og Hg frá Heklu og áður
ófundið öskulag O?
Jarðvegssnið úr Vesturdal í Skagafirði, sem sýnir
öll ljósu öskulögin frá Heklu.