Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1975, Blaðsíða 54
52 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
hey, hkg/ha
hay, 100 kg/hectare
100-,
80-
60-
40-
20-
0-1
2 ár
2nd year
3. ax
3 rd year
‘ Mt. 1.—3. árs
Mean,
lst—3rd year
1. ár
, Ist. year
15.maí 15-júnf 15-júlí 15.ág 15.sept. 25. okt.
4. mynd: Tilraun 283—72, Hvanneyri. Uppskera eftir mismunandi sáðtíma.
Fig. 4: Experiment 283—72, Hvanneyri. Hay yield (hkg pr ha) in relation to different sowing dates.
skera eftir sáningu 25. okt. var líka minni
en eftir sáningu 15. ágúst og fyrr. Sumarið
1974 var uppskera nær jöfn úr öllum lið-
um. Tilraunin var þá lögð niður. Meðaltal
1.—3. árs sýnir lítinn breytileika milli liða
og endurspeglar uppskeru annars árs. Meðal-
uppskera vorsánu liðanna er þó meiri vegna
uppskeru fyrsta árs.
ÁLYKTANIR
Tilratmir þessar eiga það sameiginlegt, að
uppskerumunur varð milli liða tvö fyrstu
árin. Vorsánir reitir gáfu þá betri uppskeru
en reitir sánir síðari hluta sumars og að
hausti. I báðum tilraununum var uppskeru-
munur horfinn á þriðja ári.
I tilraun 283—70 voru vorsánu reitirnir
betri fyrstu tvö árin. Athuganir á gróður-
þekju og hlutdeild sáðgresis í uppskeru benda
til þess, að sáning að vori hafi gefið gras-
fræi nokkru betri möguleika til þroska en
sáning síðari hluta sumars og að hausti, þótt
allir liðir gefi fullgott tún að lyktum.
í tilraun 283—72 er ekki stórvægilegur
munur milli liða tvö fyrstu arin. Ágústsán-
ing reyndist þar nokkuð vel, svo október-
sáning, en septembersáning miður. Er það
mjög samhljóða norskum tilraunaniðurstöð-
um. Á þriðja ári var uppskerumunur horf-
inn. Virðist því haustsáning hafa lánazt, og
má ef til vill skýra uppskeruna á öðru ári
að hlúta með miseldri sáningar.
Rétt er að draga ályktanir af þessum til-
raunum með hliðsjón af búskaparháttum.
Uppskera fyrsta árs skiptir ekki verulegu
máli, nema ætlunin sé að brjóta landið aft-
ur innan fárra ára. Sé sáð til túns, sem standa
skal óhreyft áratugum saman, skiptir upp-
skera fyrsta árs litlu í meðaluppskeru túns-
ins. Þá er markmið sáningar fremur að gefa
góða gróðurþekju en mikla uppskeru á fyrsta
ári. I þessum tilraunum hefur engin sáning
mistekizt, og koma því allir sáðtímar til
greina. Með hliðsjón af fyrri rannsóknum
ætti þó að gjalda varhuga við sáningu frá
miðjum ágúst og þar til í október.