Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1975, Page 65
ÍSL. LANDBÚN.
J. AGR. RES. ICEL.
1975 7, 1-2 63-66
Athugun á orkuforða nokkurra íslenzkra plantna
Sturla Friðriksson
Rannsóknastofnun landbúnadarins
Aðalsteinn Jónsson
Rannsóknastofnun iðnaðarins
YFIRLIT
Mælt var þurrefni og hitagildi í rótum og ofanvexti fimm íslenzkra háplantna.
Reyndist þurrvigt ofanvaxtar að meðaltali 22,5 g, en rótar 19,1 g fyrir hverja plöntu. Fylgzt var með
því, hvort breytingar yrðu á hitagildi í brennisóley og snarrót í júní- og júlímánuði. Hitagildi var að
meðaltali 3638 cal/g af þurrefni, en virtist ekki breytast samfara auknum þroska á þessu tímabili.
INNGANGUR
Sumarið 1973 voru gerðar athuganir á hlut-
föllum ofan- og neðanjarðarhluta nokkurra
íslenzkra 'háplantna, sem uxu á tilraunastöð-
inni að Korpu. Var mælt þurrefni og hita-
gildi í vefjum og fylgzt með breytingum á
því nokkurn hluta vaxtarskeiðsins. Þessi at-
hugun var gerð til þess að kanna orkunám
íslenzkra plantna.
TILHÖGUN ATHUGUNAR.
Fimm tegundir plantna voru athugaðar: snar-
rót (Deschampsia caespitosa), blásveifgras
(Poa glauca), brennisóley (Panunculus acris),
túnfífill (Taraxacum) og hvönn (Angelica
archangelica). Mælingar á vefjum voru gerð-
ar þannig, að valin var ein planta hverju
sinni í óræktuðu landi og hún stungin upp
með það stórum moldarhnaus, að líklegt
væri, að allar rætur fylgdu með óskemmdar.
Plöntunni var síðan skipt í rót og ofanjarð-
arhluta við yfirborð jarðar. Öll mold var
síðan 'hreinsuð varlega af rótum, þær þvegn-
ar og dauðir hlutar hreinsaðir frá, svo sem
visnar blaðleifar umhverfis efsta hluta jarð-
stöngulsins.
Plöntuhlutinn var síðan veginn, rúmmál
hans mælt í mæliglasi með vatni og síðan
ákvarðað þurrefni. Um fyllilega nákvæmni
er ekki að ræða í þessum mælingum, þar
sem viðkvæmir rótarhlutar kunna að hafa
slitnað af, en þar á móti kemur, að eitthvað
fylgir alltaf með af dauðum vefjum sem
erfitt er að hreinsa frá. Snarrót og brennisóley
voru athugaðar á ýmsum tímum sumarins,
en einstakar mælingar gerðar á öðrum teg-
undum.
Þá var hitagildi vefja mælt þannig:
Um það bil 1 gr af möluðu, fullþroskuðu
sýni var vegið í deiglu. Sýnið var síðan press-