Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Qupperneq 2
Fjaðrafok og Sigga liggalá
Mannréttindadómstóll Evrópu var lítið hrifinn af því uppátæki
Sigríðar Á. Andersen að skipa
fjóra dómara við Landsrétt
þvert á álit hæfnisnefndar
og hefur nú opinberað þá af
stöðu sína í tvígang. Skiptar
skoðanir eru á niðurstöðunni.
Gott og vel. Svarthöfði er
enginn lagatæknir og ætlar
ekkert að fullyrða um hvaða
þýðingu þessi dómur hefur
fyrir Ísland.
Hins vegar hafði Svarthöfði
gaman af því að fylgjast með
fjaðrafokinu eftir að dómur
inn féll. Sigríður Á. Andersen
sagði Mannréttindadómstól
inn sýna Alþingi „ótrúlega
óvirðingu“ með dómi sínum.
Og fyrirsjáanlega ítrekaði
hún þá afstöðu sína að hún
hefði ekkert rangt gert.
Viðbrögð Sigríðar nú koma
samt minna á óvart en að það
snjói í nóvember. Sigga ligga
lá hefur undanfarið reynt að
finna sér nýjan stað innan
Sjálfstæðisflokksins til að
vera ekki öllum gleymd í
næstu kosningum, enda lítið
farið fyrir henni frá afsögn
inni. Og hvaða leið er betri
til að vekja athygli á sér en
að hjóla í þríeykið og sótt
varnaaðgerðirnar? Svarthöfði
þurfti að minna sjálfan sig á
að Sigga liggalá er í Sjálfstæð
isflokknum, því hún virðist
alfarið marsera eftir sínum
eigin takti þessa daganna.
Svo voru viðbrögð núver
andi dómsmálaráðherra líka
nokkuð spaugileg. Hún treysti
sér ekki til að ræða niður
stöðuna efnislega þegar eftir
því var leitað fljótlega eftir
að niðurstaðan var opinberuð.
Sagðist hún þurfa að leggjast
yfir málið og hélt sig til hlés í
gífuryrðunum.
Hún mætti svo tvíefld degi
síðar í Kastljósið þar sem hún
gat heldur betur slegið um
sig, enda þá mögulega búin
að liggja yfir niðurstöðunni
í rúman sólarhring, þó ekki
telji dómurinn margar blað
síður. Kannski þurfti hún að
hringja í vin áður en hún gat
tjáð sig frjálslega? Jafnvel
nokkra vini. Eða Svarthöfði
leyfir sér að velta því upp.
Þegar hún mætti aftur til
leiks í Kastljósinu tilkynnti
hún að það væri eðlilegt
að ráðherra hefði endan
legt mat um skipan dómara,
enda þyrfti ráðherra að bera
ábyrgð en ekki hæfnisnefndin
sjálf. Það ætti að taka dóminn
alvarlega, sagði hún, en á
sama tíma sagði hún að af
leiðingar hans væru engar.
Lærdómurinn væri sá að
það hefði mátt hræra í lista
hæfnisnefndar, það var bara
ekki gert með nægilegum
rökstuðning. Þegar hún var
spurð hreint út hvort Sigríður
Á. væri þá ein ábyrg vék hún
sér meistaralega undan því að
svara og nýtti tækifærið til að
auglýsa endurupptökudómstól
og minnast sérstaklega á hvað
Sjálfstæðisflokkurinn væri
frábær og hefði byggt upp
frábært dómskerfi. Klassískt
xD múv. Svo meistarlega gert
að maður verður eiginlega að
dást að því.
Hins vegar strendur eftir
spurningin hvort þessi hæfn
isnefnd sé þá ekki bara gróf
sóun á almannafé og betra
að ráðherra geri þetta bara
alveg sjálfur. Svona fyrst
þetta mat skiptir engu teljan
legu máli þegar á hólminn er
komið. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Frumvörp á Tripadvisor
E
inkunna og stigakerfi hefur lengið
vel verið notað til þess að forgangs
raða og finna samnefnara um hvað það
er sem í raun skiptir máli í tilteknum
aðstæðum. Þannig veljum við okkur
gjarnan veitingastaði og hótel eftir
stigakerfum og stjörnugjöf, kaupum okkur vörur á
Amazon eftir sömu aðferð, veljum skóla og vinnustaði
eftir ábendingum fólks og veljum okkur jafnvel maka
eftir meðmælum vina og vandamanna og leitumst þá
gjarnan eftir því að viðkomandi sé samstíga okkur í
lífsskoðunum og trú.
Í síðustu viku lagði Andrés Ingi Jónsson þing
maður fram frumvarp þess efnis að við setningu laga
skuli meta áhrif þeirra á loftslagsmál og jafnrétti
kynjanna. Það er fyrirtaks ábending en um leið má
velta vöngum yfir því hvers vegna málið sé ekki tekið
lengra og það einfaldað um leið. Hvað finnst okkur
skipta máli og eigi að greiða götu frum
varpa?
Það er sannarlega ekki sama hver
aular því út úr sér og sú staðreynd
að gengi tveggja nánast eins frum
varpa hljóti mismunandi meðbyr
eftir því hvort Jón eða séra Jón
kemur því á dagskrá er óþolandi.
Væri ekki rakið að þegar lagt er
fram frumvarp sé til staðar ákveðið
skor sem horfa þurfi til – skori
frumvarpið hátt þá komist það
fyrr á dagskrá? Ef svo væri
yrðu þeir sem semja frum
vörpin að horfa til þátta á
borð við umhverfismál,
jafnrétti, öryggi barna,
hvort frumvarpið vinni á
ofbeldi og hvert þeirra
atriða sem væru á skor
blaðinu til þess að koma
sínu frumvarpi framar
lega í röð.
Það færi vissulega
töluverð vinna í að setja niður
þær mælistikur sem taldar eru
skipta hvað mestu máli og bæta
líf fólksins í landinu. Þá yrðu
viðkomandi aðilar að byrja á
að sammælast um grundvallarmálefni sem ættu að
njóta forgangs á þinginu. Slíkt myndi þó neyða ólíka
einstaklinga með ólík forgangsmál til að komast að
samkomulagi um grunngildi. Það myndi síðan til
lengri tíma spara tíma og skila ómerkilegum tuð
vörpum aftast á lista þar sem þau eiga heima.
Hljómar kannski barnalega einfalt – en þarf allt
að vera svo flókið? Ef ráðherrar, þingmenn og kon
ur geta ekki komið sér saman um einföld atriði sem
tryggja frumvörpum forgang þá er betur heima setið
en af stað farið. Tafir, málþóf og annar subbuskapur
kemur niður á sálarlífi þjóðar og fer gjarnan fram á
kostnað mikilvægra mála. Fólk sem elskar slaginn
meira en útkomuna getur setið heima í eigin fýlu.
Sandkassaleikurinn mætti bara almennt fokka sér.
Það á ekki að skipta sköpum hver drullar frumvarp
inu út úr sér; það á að skipta máli hverju það skilar –
og það á fleiri sviðum en einu.
Þó málefnið sé ekki þitt þá þjónar það mjög líklega
þjóðinni í heild. Það er fallegt að taka orðið „ég“ út
og setja „við“ í staðinn. Það erum nefnilega „við“ sem
stjórnmálafólkið vinnur fyrir. n
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is
FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Sigurbjörn Richter,sigurbjorn@dv.is PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
MYND/ERNIR
Ragnheiður M. Kristjóns-
dóttir íslenskuséní og orða
undur deilir hér snilld sinni.
„Í fyrsta lagi skal það tekið
fram að ég vildi óska þess að
ég ætti að nefna 20 uppá
haldsorðin mín, nei 100! Því
ég ekkert eðlilegur orðaperri
og hendi jafnvel í nýyrði
þegar vel liggur á mér.“
1 Offitungur
Ég horfði nýlega á Seven í
um það bil sjöunda skiptið
og þar kættist ég við að sjá
þýðandann kalla gríðar
lega þéttholda fórnarlamb
offitung. Ekki það að ég
gleddist yfir örlögum manns
ins heldur það að mér þykir
orðið fyndið og mottó mitt
í lífinu er að hafa skuli það
sem fyndnara reynist. Þar til
ég uppgötvaði þetta orð hafði
átvagl lengi verið í uppá
haldi, ekki síst vegna þess að
ég er sjálf átvagl og var einu
sinni offitungur.
2 Lostakústur
Á ritstjórn ónefnds glans
tímarits notuðum við orðið
óspart um ræktarlega efri
vararmottu og þann skilning
leggja flestir í orðið held ég.
Eftir lauflétt gúggl sé ég að í
lagi Þursaflokksins frá 1979
á það við um getnaðarlim og
það er auðvitað rugl góð sam
líking. Bæði betra.
3 Ódæmigerð fjölbumba
Í skávinahópi einum skil
greina meðlimir sig annað
hvort sem einbumbu eða
tvíbumbu. Þar sem ég sat í
búningsklefanum í Laugum
í sumar gat ég ekki staðsett
mig í þessari flokkun svo
ég varð að greina mig sjálf.
Niðurstaðan var ódæmigerð
fjölbumba.
4 Fylgjukrókur
Vinkona mín hnoðaði í þetta
orð í Fimbulfambi og það
rataði í Orðakver undir
ritaðrar frá árinu 2016.
5 Nóboddí með kyndil
„Þetta eru bara nóboddís
með kyndla,“ hreytti Eiríkur
Jónsson, þáverandi ritstjóri
Séð og Heyrt, út úr sér von
svikinn þegar myndir úr
þrettándafögnuði í Vestur
bænum duttu í hús eitt árið.
ORÐIN MÍN
2 EYJAN 4. DESEMBER 2020 DV