Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Page 11
Ég sá þá um að elda mat
fyrir hana og skildi eftir
fyrir utan dyrnar.
efni. Þá rifjaðist upp fyrir
honum hvatning frá Kára
Stefánssyni, forstjóra Ís-
lenskrar erfðagreiningar, um
að skrifa bók um kynni sín við
áhugavert áhrifafólk um allan
heim. Hvatningin kom eftir að
Kári leitaði liðsinnis hjá Ólafi
í glímu sinni við kínversk
stjórnvöld. Úr varð bókin
„Sögur handa Kára“ sem er
nýkomin út á prentuðu formi
en var gefin út á hlaðvarpi í
byrjun september í samstarfi
við Storytel. En það stóð aldrei
til að skrifa neina bók.
„Þetta var í raun og veru
óvart og á engan hátt í sam-
ræmi við þær áætlanir sem
ég hafði í upphafi árs en eins
og hjá flestum hefur þetta
ár sett margt á hvolf. Ég
byrjaði að skrifa sögurnar
mér til skemmtunar og þetta
var meira dundur en nokkuð
annað. Þegar komið var fram
á sjómannadaginn voru sög-
urnar orðnar 34 og ég stóð
frammi fyrir því að ákveða
hvað ég ætti að gera við þær.
Dætur mínar og nokkrir vinir
höfðu lesið sögurnar og hvöttu
mig til að gefa þær út.
Ég er af þeirri kynslóð að
bóka útgáfa er nánast hátíðleg
athöfn svo ég hló léttilega að
því. Þá fæddist sú hugmynd
að ég myndi lesa þetta sjálfur
í hlaðvarpi, eins og ég sæti
fyrir framan arineld að segja
góðum vini skemmtilega sögu.
Mér fannst skemmtilegt að
kynnast þessari nýju tækni
og þúsundir lögðu við hlustir.
Viðtökurnar fóru fram úr
mínum væntingum. Forlagið
hafði síðan samband og vildi
endilega gefa sögurnar út með
nafnaskrá og myndum. Það er
nú orðið að veruleika,“ segir
Ólafur.
Bókin er safn lýsinga á fólki
og atburðum frá hinum ýmsu
löndum, og samskiptum Ólafs
við hina ýmsu leiðtoga. Smá-
sögurnar heita flestar einfald-
lega eftir fornafni þess sem
þar er helst fjallað um. Þarna
eru til að mynda sögurnar
Pútín, Bill, Hillary og Rajiv,
en líka Jiang Zemin og Sitting
Bull. Eitt af því sem einkennir
frásagnirnar er hvernig Ólafi
hefur tekist að eiga árangurs-
rík samskipti við fólk frá öðr-
um menningarheimum. Hann
segir hægt að lesa sögurnar
á ólíkan hátt – sem skemmti-
sögur, sem sögur af tilteknu
fólki en líka sem lærdóms-
ríkar frásagnir.
„Það var ekki ætlun mín
í upphafi að skrifa handbók
um að ná árangri á alþjóða-
vettvangi en eftir því sem
sögurnar fóru að fæðast þá sá
ég að í frásögninni leyndist
lærdómur í þessum efnum,
fleiri en einn. Til að skapa
fjölbreytni fór ég 40 ár aftur
í tímann, sagði mikið frá al-
þjóðlegu stússi mínu þegar ég
var í forystu þingmannasam-
takanna og kynnum mínum
af áhrifamönnum á Indlandi
og í Bandaríkjunum. Ég vann
mikið með Bandaríkjamönn-
um og mér er til efs að nokkur
kjörinn fulltrúi hafi unnið
jafn lengi og náið með banda-
rískum forystumönnum og
ég hef gert, þó ýmsir telji að
ég hafi nú bara verið í Kína,“
segir Ólafur kíminn.
Lexíurnar þrjár
Hann tiltekur þrjár mikilvæg-
ar lexíur sem hafa ber í huga í
samskiptum við leiðtoga á al-
þjóðavettvangi. „Fyrsta lexían
er að þú verður að hafa eitt-
hvað fram að færa sem skiptir
viðmælandann máli. Þegar þú
ert kominn á fund með leið-
toga fjölmenns ríkis, eins og til
dæmis Rajiv Gandhi sem var
forsætisráðherra Indlands, þá
skiptir ekki höfuðmáli hvort
þú ert með 300 þúsund manns
á bak við þig eða rúmlega
milljarð. Aðalatriðið er hvort
þú hefur eitthvað fram að færa
sem gagnast þeim sem þú ert
að tala við.
Mistökin sem flestir gera,
þar á meðal ýmsir íslenskir
ráðamenn, er að þegar þeir
eru komnir á svona fund þá
tala þeir bara um það sem
þeir hafa sjálfir áhuga á. Við
Íslendingar erum oft mjög
sjálfhverfir og höfum gaman
af að tala um okkur sjálfa.
Það skilar hins vegar engum
árangri á svona fundum.
Þessir áhrifamenn – hvort
sem það eru leiðtogar í Kína,
forseti Bandaríkjanna eða for-
sætisráðherra Indlands – sitja
fjölda funda á hverjum degi
og það eru hundruð vanda-
mála sem þeir þurfa að kljást
við. Það skiptir þá máli að þú
getir opnað þeim nýja sýn eða
fundið með þeim nýjar leiðir.“
Annar lærdómurinn kemur
við sögu í bókinni oftar en
einu sinni, og hann er sá að
þú yfirgefur ekki vini þína. „Í
alþjóðasamskiptum byggjast
flest samskipti á því að fólk
er í ákveðnum stöðum í sínu
heimalandi. Það er sjaldgæft
að vinátta myndist en ég varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að
margt af þessu fólki – í Banda-
ríkjunum, Indlandi og víðar –
varð nánir vinir mínir og ég
ræktaði þá vináttu.
Ég gaf þá ekki upp á bátinn
þó þeir misstu þingsæti sitt
eða færu í stjórnarandstöðu.
Ég lýsi því í bókinni þegar
Sonia Gandhi, ekkja Rajiv,
kom hingað til lands og emb-
ættismenn sögðu við mig að
ég gæti ekki verið að hitta
þetta fólk því það væri ekki í
neinum embættum. Mitt svar
var: Kæru embættismenn, þau
eru vinir mínir.
Þegar Sonia og félagar komu
hingað sögðu flestir í Evrópu
og Bandaríkjunum að þetta
fólk ætti aldrei eftir að komast
aftur í valdastóla á Indlandi
og enginn nennti að hitta þau.
Nokkru síðar urðu þau valda-
mesta fólk Indlands og voru í
tíu ár, og komu Íslandi afar vel
í kjölfar hrunsins.“
Upptekið áhrifafólk
Þá fjallar hann einnig um Tom
Harkin, fyrrverandi öldunga-
deildarþingmann í Banda-
ríkjunum, sem Ólafur hefur
haldið sambandi við síðustu
fjóra áratugi. „Hann er góður
vinur minn. Ég hef heimsótt
hann til Washington og hann
hefur komið hingað að heim-
sækja mig. Tom er síðan náinn
vinur Joe Biden sem nú er að
taka við sem forseti Banda-
ríkjanna. Það getur borgað
sig á margan hátt að viðhalda
vinatengslum á alþjóðavett-
vangi,“ segir hann.
Og þá er það þriðji lærdóm-
urinn. „Ekki vera með neinar
vífilengjur heldur tala skýrt
og koma þér strax að kjarna
málsins. Ég hef stundum gefið
yngra fólki það ráð að setja
sig í þær stellingar að það
hafi tvær mínútur til að koma
erindinu frá sér. Áhrifafólk
hefur oft mjög lítinn tíma og
hver fundur er kannski tíu
mínútur. Bak við ráðamenn-
ina eru síðan taugaveiklaðir
embættismenn sem minna á
að fundurinn sé alveg að verða
búinn. Þessi þrjú atriði sem ég
hef talið upp eru í sjálfu sér
einföld en flestir hafa ekki
áttað sig á þeim og í sögunum
birtast fjölmörg dæmi um
hvernig þessi einföldu ráð
geta gagnast vel.“
Í einni sögunni segir þú frá
því að það hafi truflað Davíð
Oddsson og Halldór Ásgríms-
son, þáverandi forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra,
að þú værir sem forseti að
eiga fundi með bandarískum
ráðherrum og öðrum ráða-
mönnum, og að þeir hafi upp-
lifað að þú værir að fara inn
á þeirra verksvið. Þú breyttir
þá um taktík og fórst að hitta
þessa ráðherra á veitinga-
stöðum í stað þess að bóka
tíma á skrifstofunni. Hefur
þú talað um þetta opinber-
lega áður?
ágæta hvíld frá vettvangi ís-
lenskra þjóðmála þegar hann
lét af embætti forseta. „Ég
held auðvitað áfram að fylgj-
ast með og ræði við ýmsa ís-
lenska ráðamenn ef þeir leita
eftir því. Blessunarlega er þó
engin löngun til að vera áfram
á þeim velli. Ég fann mér
nægar annir við að byggja
upp Hringborð Norðurslóða
og sinna alþjóðlegum verk-
efnum á sviði loftslagsmála
og hreinnar orku.
Síðan hafa skrifin bæst við.
Það hafa verið forréttindi að
geta notið þess að sjá nýjar
kynslóðir taka við áhrifastöð-
um í landinu. Ég persónulega
fann mér engar áskoranir þar
lengur. Eftir hálfa öld á sviði
íslenskra stjórnmála gat ég
nánast talað um þau í svefni,
ég kunni þau utanbókar. Eitt
af því sem heillaði mig við
Hringborð Norðurslóða er
hversu mikið ónumið land var
þar á sviði rannsókna, stjórn-
mála og umhverfismála,“
segir hann.
Frá árinu 2013 hefur Hring-
borð Norðurslóða verið haldið
árlega í Hörpu þar sem um 2
þúsund þátttakendur frá sex-
tíu löndum koma saman. En
í ár var ráðstefnunni frestað
vegna kórónufaraldursins,
eins og svo mörgu öðru.
Dorrit Moussaieff, eigin-
kona Ólafs, fékk veiruna
snemma í vor. „Hún var nokk-
uð veik í rúmlega vikutíma.
Hún dvaldi þá meira og minna
í móki hér í lokuðu herbergi.
Ég sá þá um að elda mat fyrir
hana og skildi eftir fyrir utan
dyrnar. Hún vildi ekki borða
mikið en ég eldaði handa
henni grænmeti, laxbita og
fleira sem henni finnst gott.
Það tók hana síðan þó nokkurn
tíma að ná fyrri styrk.
Hún er reyndar hörð af sér
og fljótlega eftir að hún komst
á ról byrjaði hún að fara í
gönguferðir, jafnvel upp á Esj-
una. Það tók hana síðan einn
til tvo mánuði að ná fyrri orku
eftir að hún var laus við sjúk-
dóminn. Þetta sýnir manni að
þetta er engin venjuleg flensa.
Það að veikjast af Covid er
eins og að taka þátt í rúllettu í
spilavíti. Þú getur skyndilega
tapað illilega.“
Sögur fyrir framan
arineldinn
Eftir að Dorrit hafði náð sér
blasti við að Ólaf vantaði verk-
FRÉTTIR 11DV 4. DESEMBER 2020