Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Síða 18
18 EYJAN
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
eyjan@eyjan.is
Þ egar atvinnuauglýs-ingum dagblaðanna er flett þessa dagana
blasir við fjöldi auglýsinga
um lausar stöður hjá ríki og
sveitarfélögum. Þrátt fyrir
gríðarlegan samdrátt í skatt-
tekjum er hvergi slegið af við
skipanir og ráðningar hjá hinu
opinbera. Á sama tíma berast
daglega fréttir af fjölda upp-
sagna á einkamarkaðnum.
Ég gerði að umtalsefni í
liðinni viku hér á þessum
vettvangi hvernig stjórn-
málaflokkarnir virtust orðn-
ir samdauna „kerfinu“ enda
reknir með ríkisstyrkjum
og þá hefðu ráðherrar og
þingmenn á að skipa meira
en fimmtíu póli tískum að-
stoðarmönnum. Segja mætti
að „stjórnmálastéttin“ fari
sístækkandi. Allt frá því á
áttunda áratug síðustu aldar
hefur ráðherrum verið heim-
ilt að ráða til sín póli tíska að-
stoðarmenn en fyrir fáeinum
árum var samþykkt „heimild“
í lögum til fjölgunar þeirra
þannig að hver ráðherra um
sig gæti haft tvo aðstoðar-
menn. Þessi „heimild“ er nú
fullnýtt og metið í aðstoðar-
mönnum á Katrín Jakobsdótt-
ir forsætisráðherra þar sem
starfandi hafa verið fimm
pólitískir aðstoðarmenn og
blaðafulltrúi að auki, en þrír
þessara aðstoðarmanna eru
titlaðir „aðstoðarmenn ríkis-
stjórnarinnar“.
Langir starfstitlar
Einn þessara þriggja að-
stoðarmanna lét af störfum
nýverið en það var Unnur Brá
Konráðsdóttir, fyrrverandi
þingmaður Sjálfstæðisflokks,
en hún starfaði sem „tengi-
liður milli ráðherra og sér-
fræðinganefndar“ um stjórn-
arskrármál eins og það var
orðað. Þá hafði henni einnig
verið falið að sinna ýmsum
öðrum „þverfaglegum verk-
efnum“.
Unnur Brá er nú komin í
annað starf á vegum stjórn-
sýslunnar en hún hefur verið
skipuð formaður „stýrihóps til
að annast umsjón og samþætt-
ingu allra þátta skipulags við
framkvæmdir vegna uppbygg-
ingar Landspítala við Hring-
braut“.
Unnur er greinilega fjölhæf
því hún hafði einnig verið
skipuð til að „tryggja samhæf-
ingu loftslagsmála fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar, tryggja
yfirsýn yfir verkefnið [þ.e.
loftslagsmál] í heild sinni og
annast eftirfylgni með fram-
gangi loftslagsmála í heild, í
samræmi við sáttmála ríkis-
stjórnarinnar“.
Heimildarmenn höfundar
telja líklegt að Unnur Brá
stefni að þingframboði á nýjan
leik á ári komanda og að hún
muni þá sækjast eftir oddvita-
sæti Sjálfstæðisflokks í Suður-
kjördæmi.
Umfangsmikið
forsætisráðuneyti
Eftir höfðinu dansa limirnir
og ekki vonlegt að hagræðing
í opinberum rekstri sé mikið
uppi á borðum þegar skrifstofa
valdamesta embættis landsins
fer sífellt stækkandi. Því má
þó velta upp hvort nokkur þörf
sé á miklu starfsliði í forsætis-
ráðuneytinu. Ef við hverfum
aftur til ársins 1988, þegar
Þorsteinn Pálsson var forsæt-
isráðherra, þá voru starfsmenn
ráðuneytisins aðeins fimmtán
að meðtöldum ráðherranum.
Stöðugildi í forsætisráðuneyt-
inu hjá Jóhönnu Sigurðardótt-
ur voru 35 árið 2010. Í janúar
2016, þegar Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson átti þrjá mánuði
eftir á stóli forsætisráðherra,
voru starfsmenn ráðuneytisins
44 talsins. Réttu ári síðar hafði
þeim fjölgað um tvo. Þeir voru
orðnir 49 í ársbyrjun 2018 og
54 nú.
Athygli vekur að meðal
starfsmanna ráðuneytisins
eru þrír fyrrverandi þing-
menn Samfylkingarinnar,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
Róbert Marshall og Bryn-
dís Hlöðversdóttir. Steinunn
Valdís hefur starfstitilinn
skrifstofustjóri á skrifstofu
jafnréttismála, Róbert er upp-
lýsingafulltrúi ríkisstjórnar-
innar og er skráður á skrif-
stofu yfirstjórnar og Bryndís
Hlöðversdóttir er síðan ráðu-
neytisstjóri.
Bryndís var þingmaður Al-
þýðubandalagsins og síðar
Samfylkingarinnar 1995–
2005. Róbert sat á þingi fyrir
Samfylkinguna frá 2009 og
Bjarta framtíð 2013–2016.
Steinunn Valdís var þingmað-
ur Samfylkingar 2007–2010.
Alls eru tíu manns með
starfstitilinn lögfræðingur í
ráðuneytinu og fimmtán eru
„sérfræðingar“. Sex bera
starfsheitið skrifstofustjórar,
stjórnarráðsfulltrúar eru
tveir, einn alþjóðafulltrúi,
einn skjalastjóri, einn verk-
efnastjóri og einn ber titilinn
„ritari þjóðaröryggisráðs“. Þá
er einn starfsmaður titlaður
„stefnumótunarsérfræðingur“
á „skrifstofu stefnumála“.
Er nokkur „þörf“?
Í fjárlagaumræðunni fyrir ári
gagnrýndi Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður
Miðflokksins, að lögð væri til
tæplega 40% aukning á fram-
lögum til forsætisráðuneytis
milli ára. Þá átaldi hann enn
fremur að starfsmönnum
ráðuneytisins hefði fjölgað um
þriðjung á örfáum árum, þar
á meðal hefðu allar heimildir
til skipunar aðstoðarmanna
verið fullnýttar og sagði hann
ríkisstjórnina láta allt snúast
„fyrst og fremst um kerfið og
sjálfa sig“.
Í kjölfar fjölgunar starfs-
fólks forsætisráðuneytis hef-
ur verið kallað eftir stærra
húsnæði en í samkeppnis-
lýsingu vegna 1.200 fermetra
viðbyggingar sagði orðrétt:
„Byggja þarf viðbyggingu við
Stjórnarráðshúsið í Lækjar-
götu ...“ Rétt er að staldra við
þetta orðalag og spyrja fyrst
hvort nokkur þörf sé á öllum
þeim fjölda embættismanna
sem skipaðir hafa verið til
starfa í forsætisráðuneyt-
inu undanfarin ár. Undir lok
níunda áratugarins nægðu
ráðuneytinu fimmtán starfs-
menn. Sá samanburður er
kannski ósanngjarn þar sem
opinber stjórnsýsla er orðin
umfangsmeiri. Hvað sem því
líður þá voru starfsmennirnir
mun færri fyrir aðeins áratug
og rétt að velta því upp hvort
ekki væri möguleiki á að fara
betur með opinbert fé og hag-
ræða í rekstri forsætisráðu-
neytis. Yrði það gert kæmi
kannski í ljós að engin „þörf“
er á fyrirferðarmikilli við-
byggingu við eitt elsta stein-
hús landsins sem reist var á
árunum 1765–1770. Auk þess
að þrengja að margra mati um
of að hinu aldna húsi þá kann
svo að fara að viðbyggingin
verði hreinlega álitin minnis-
varði um bruðl í opinberum
rekstri. n
Nú stendur
fyrir dyrum
stækkun
Stjórnarráðs-
hússins um
1.200 fer-
metra.
MYNDIR/
STJÓRNARRÁÐ
ÍSLANDS
SKOÐANAPISTILL
FIMM PÓLITÍSKIR AÐSTOÐARMENN
HJÁ KATRÍNU JAKOBSDÓTTUR
Umfang forsætisráðuneytisins hefur aukist mikið síðustu ár. Þrír fyrrverandi þingmenn
Samfylkingar eru starfandi í ráðuneytinu. Fyrirhuguð er 1.200 fermetra viðbygging.
4. DESEMBER 2020 DV
Hin nýja viðbygging þrengir verulega að einu elsta steinhúsi landsins.