Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 28
ÓVINIR EIGA
EKKI SKILIÐ BÓK
Björg Magnúsdóttir, sjónvarpskona og rithöfundur,
elskar bækur. Hún er með fjölbreyttan smekk og
nýtur þess að sefa forvitnina með lestri á milli
þess sem hún skrifar sjálf.
1Q84
eftir Haruki Murakami
Útgáfurár: 2009
Bókin er í raun samansafn þriggja
bóka. Gríðarmikið verk sem hefur
farið sigurför um heiminn.
Kona í hvarfpunkti
eftir Nawal El Saadawi
Útgáfuár: 2019
Firdaus hefur verið dæmd til
dauða fyrir morð. Hún segir
sögu sína nóttina fyrir aftökuna.
Egypsk, femínísk klassík sem
afhjúpar undirokun kvenna í
samfélögum Austurlanda nær
eftir höfund sem hefur verið á
dauðalistum íslamskra öfgahópa.
Mergjuð skáldsaga.
Framúrskarandi vinkona
eftir Elenu Ferrante
Útgáfuár: 2015
Framúrskarandi vinkona segir
frá vinkonunum Elenu og Lilu,
uppvaxtarárum þeirra í alþýð-
legu hverfi í Napólí, á sjötta ára-
tugnum, þegar heimurinn er að
taka miklum stakkaskiptum. Þetta
er saga af vináttu, umbreytingum
og lífsins gangi. Elena Ferrante er
einn vinsælasti höfundur Ítalíu um
þessar mundir, og bækur hennar
eru þýddar á ótal tungumál. Ferr-
ante fer huldu höfði, hefur aldrei
veitt viðtöl eða komið fram. Í bréfi
til útgefanda síns hefur hún sagt
að bækurnar tali fyrir sig sjálfar
og þurfi hennar ekki lengur með.
Bróðir
eftir Halldór Armand
Útgáfuár: 2020
Saga þeirra systkina Tinnu og
Skorra var saga um hrylling og of-
beldi ástarinnar, þetta var saga um
grimmd örlaganna, þetta var saga
um það hversu lítið manneskjur
hafa um það að segja hvernig líf
þeirra fer. En þetta var líka saga um
venjulegan mann. Mann sem hafði –
til að orða það groddalega – drepið
systur sína og vildi að ég skrifaði
um það til þess að heimurinn vissi
að honum hefði aldrei gengið nema
gott eitt til.
Ósjálfrátt
eftir Auði Jónsdóttur
Útgáfuár: 2012
Dag einn vaknar Eyja í sjávarþorpi
vestur á landi, nýgift drykkfelldum
karli sem er tuttugu árum eldri en
hún. Þau búa á rauðu svæði, ör-
fáum skrefum frá rústunum þar
sem snjóflóð féll skömmu áður
og hreif með sér nítján mannslíf.
Röskar konur taka höndum saman
til að koma ungu konunni frá eigin-
manninum og í annað land, í sam-
floti með skíðadrottningu sem á
ekki til orðið uppgjöf í orðaforða
sínum. Löngu síðar skrifar Eyja
sig aftur á sama stað til að reyna
að skilja fortíðina, skáldskapinn í
lífinu, fjölskyldu sína og þýðingu
þess að vera skáldkona.
28 FÓKUS
Ég er dálítill lestrarhest-ur og hef alltaf verið. Bæði er ég mjög for-
vitin um alla mögulega hluti
og svo finnst mér gaman að
komast inn í hugarheim ann-
arra. Það að festast í vel
gerðri sögu er einhver besta
tilfinning sem ég veit um,“
segir Björg sem sjálf hefur
skrifað skáldsögu og hand-
rit að sjónvarpsþáttum sem
slegið hafa í gegn.
„Fyrsta alvöru bókin sem
ég man eftir að hafa smyglað
með mér undir sæng var
verkið Dauðarósir eftir Arn-
ald Indriða, sem hefst á því að
lík ungrar stúlku finnst á leiði
Jóns Sigurðssonar skömmu
eftir hátíðarhöld 17. júní.
Eftir þann lestur leið mér, 13
ára stúlkunni, eins og ég væri
orðin fullorðin,“ segir Björg
og hlær sínum bjarta hlátri.
Hún segist ómögulega geta
sagt hvaða bók hún myndi
gefa óvini sínum. „Ef þetta
væri raunverulegur óvinur
ætti viðkomandi aldrei skilið
að fá bók.“
Björg er jákvæðnin uppmál-
uð að eðlisfari og segir kófið
ekki vera aðeins myrkur og
ömurð.
„Það jákvæða við kófið er
klárlega að hafa aukinn tíma
í lestur.“
Aðspurð um hvaða jólabæk-
ur heilli hana í ár segir Björg
að það sé af nægu spennandi
að taka.
„Fyrir utan Bróður eftir
Halldór Armand er ég spennt
að lesa Blóðberg eftir Þóru
Karítas, 107 Reykjavík eftir
Auði Jóns og Birnu Önnu,
Snertingu eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson, Eldana eftir Sigríði
Hagalín, Vetrarmein eftir
Ragnar Jónasson og Hans-
dætur eftir Benný Sif,“ segir
Björg með sneisafullt nátt-
borð – hálfgert hlaðborð fyrir
hugann. n
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
Umsögn: „Murakami hefur verið
uppáhaldsrithöfundurinn minn
mjög lengi. Eins furðulega og það
hljómar líður mér alltaf eins og
hann sé að skrifa bara fyrir mig,
ég tengi sjúklega við bækurnar
hans. Hann á margar góðar en
biblían er klárlega 1Q84 sem er
einhver magnaðasta bók sem ég
hef lesið.“
Umsögn: „Ég er aðdáandi Angúst-
úru sem gefur út vel valdar sögur
sem sýna manni eitthvað nýtt um
heiminn. Af mörgum góðum vil ég
nefna Konu í hvarfpunkti sem er
vel strúktúreruð saga um hrylli-
legar raunir konu í sterkbyggðu
feðraveldi Egyptalands. Stíllinn
er geggjaður. Ég hef mælt með
þessari víða og finnst ástæða til
að halda því áfram.“
Umsögn: „Bókaflokkurinn um El-
enu og Lilu er í miklu uppáhaldi hjá
mér. Ferrante kjarnar ótrúlega vel
vinkonusamband yfir lengri tíma
með tilheyrandi hæðum og lægð-
um. Karakterarnir eru frábærir. Öll
rammgölluð en á sama tíma skilur
maður þau og heldur með þeim.
Rúsínan í pylsuendanum er auð-
vitað að fá að ferðast um Napólí
og Ítalíu gegnum bækurnar.“
Umsögn: „Halldór Armand hefur
verið kallaður rödd sinnar kyn-
slóðar og mér finnst það réttnefni.
Fjórða bókin hans Bróðir, sem var
að koma út, er í einu orði sagt
frábær. Vel uppbyggð saga með
þrívíðum karakterum sem maður
sogast að. Í Bróður er líka heil-
mikil heimspeki og pælingar. Fær
mann til að hugsa.“
Umsögn: „Auður er einn albesti
höfundur okkar Íslendinga. Bókin
hennar Ósjálfrátt sem kom út árið
2012 hafði mikil áhrif á mig, sem
verður ekki lýst með orðum hér
og nú. Brjálæðislega vel skrifuð,
manneskjuleg og einlæg bók sem
fer alveg inn að kviku.“
Björg Magnúsdóttir á auðvelt með að koma fyrir sig orði bæði í sjónvarpi og á prenti. MYND/SAGA SIG
4. DESEMBER 2020 DV