Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 30
30 FÓKUS
MUNUM DAGBÓKIN
Munum dagbókin er hönnuð til að hámarka líkur á
árangri með því að auðvelda markmiðasetningu,
tímastjórnun, hvetja til framkvæmda og efla jákvæða
hugsun. Í bókinni eru leiðbeiningar um hvernig þú setur
þér markmið og stjórnar tíma þínum betur. Þú setur
þér markmið fyrir hvern mánuð, viku og daginn. Það
eru einnig verkefnalistar/forgangsatriði fyrir hvern dag
og þakklætisgluggi og hvatningarorð fyrir hverja viku.
Þú getur keypt bókina í Pennanum, A4, Forlaginu, Máli
og menningu, Hrím, Heimkaupum, Bóksölu stúdenta og
á Munum-utgafa.myshopify.com.
RAKEL TÓMAS DAGBÓKIN
Listakonan Rakel Tómasdóttir hefur undanfarin ár hannað og gefið út
skipulagsdagbækur sem hafa notið mikilla vinsælda. Einföld hönnun fær
að njóta sín en aðalatriðið er að notandinn hafi nóg pláss fyrir sínar eigin
hugmyndir og plön. Listaverk Rakelar fá einnig að njóta sín í bókinni og er
hún einstaklega falleg. Bókin fæst á RakelTomas.com og í Studio Rakel
Tomas á Grettisgötunni. Bókin fæst einnig í Epal og Hrím.
SKIPULAGSBÓKIN FRÁ PRENTSMIÐI
Prentsmiður hannaði skipulagsdagbók í samstarfi við þjálfarann og áhrifa-
valdinn Alexöndru Sif Nikulásdóttur. Það er hægt að kaupa bókina bæði
með eða án dagsetninga. Það er einnig hægt að kaupa auka blöð í bókina
og ef þú keyptir bókina í fyrra þá geturðu nýtt kápuna og klemmuna og
keypt bara innvolsið.
BULLET JOURNAL
Bullet Journal er ekki beint dagbók, heldur aðferð til að
halda skipulagi. Í einni bók hefurðu yfirlit yfir allt sem
þú þarft að skipuleggja. Eina sem þú þarft er bók og
penni, en margir nota alls konar skrautpenna, yfirstrik-
unarpenna, límmiða og fleira til að skreyta dagbókina.
Það besta við Bullet Journal er að þú ræður alfarið
hvernig bókin er sett upp, því hún er tóm og punkta-
strikuð. Það eru engar reglur, þú ræður hvað þú skráir
niður og hvernig þú hefur hana. Þú getur lesið meira
um „bullet journaling“ á bulletjournal.com. Það er til
dæmis hægt að kaupa Bullet Journal frá Rhodia í A4,
Dingbats í Máli og menningu eða Bóksölu stúdenta og
Moleskine í Eymundsson.
Blaðamaður DV ræddi við meðlimi Facebook-hópsins
Íslenskir Planners (Dagbækur/Skipulag).
PERSONAL PLANNER
Eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta persónu-
leg dagbók, það er að þú sníður hana algjörlega að
þínum þörfum. Þú ræður hvernig síðurnar eru settar
upp, hvers konar aukasíður þú vilt. Þú getur til dæmis
valið um síður til að fylgjast með markmiðum, fjárhag,
ferðalögum og venjum. Það eru einnig síður sérstak-
lega fyrir nemendur og kennara. Personal Planner er
sænskt fyrirtæki og vegna þess hversu vinsæl bókin
hefur verið meðal Íslendinga er hægt að hafa stóran
hluta hennar á íslensku. Það er hægt að panta Perso-
nal Planner á PersonalPlanner.com.
ERIN CONDREN
Erin Condren bækurnar hafa notið mikilla vinsælda
hjá þeim sem myndu teljast sem harðkjarna dag-
bókaraðdáendur. Þú getur sniðið bókina að miklu leyti
að þínum þörfum. Helsti gallinn við bókina að hún er
dýrari en margar aðrar dagbækur. Þú getur lesið meira
um bókina og pantað hana á erincondren.com.
VERTU MEÐ SKIPULAGIÐ
Á HREINU Á NÆSTA ÁRI
Við leituðum til íslenskra áhugakvenna um dagbækur og
skipulag og spurðumst fyrir um hvaða dagbókum þær
mæli með. Það ættu allir að geta fundið bók við sitt hæfi.
4. DESEMBER 2020 DV