Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Qupperneq 32
Matseðill Birgittu Haukdal
Morgunmatur
Ég fæ mér alla morgna engifer-
skot og vítamín ásamt hinum ýmsu
heilsuskotum sem eru í boði. Víta-
mín og ómega fæ ég mér líka en
morgunmaturinn er svolítið breyti-
legur eftir árstíðum. Þessa dagana
þegar kalt er í veðri og dimmt er
hann hafragrautur ásamt eplum
eða ávöxtum.
Millimál
Ég borða mikið af hnetum og holl-
um hnetustykkjum á milli mála.
Eyði löngum tíma oft í búðum að
leita að góðum stykkjum. Eins á
ég nánast alltaf epli eða gulrætur
og kaffibollinn er alltaf á sínum
stað.
Hádegismatur
Ég viðurkenni það að ég missi
stundum af hádegismatnum en
annars borða ég oft afganga frá
kvöldinu áður. Ef ég er á ferðinni
þá er ég ansi tíður gestur á Local.
Millimál á daginn
Ætli ég drekki ekki yfirleit t tvo
góða kaffibolla yfir daginn.
Kvöldmatur
Þar er allur gangur á en við eldum
og grillum mjög of t bleikju og
kjúkling. Við erum líka mikið
salat fólk svo það er alltaf mikið
af grænmeti með öllum máltíðum.
Ég elda þó nánast einu sinni í viku
kjöt fyrir hina á heimilinu og fæ
mér þá salat.
Kvöldsnarl
Ég borða sennilega poppkorn sex
sinnum í viku. Elska að setjast
niður þegar börnin eru sofnuð með
popp í skál.
Einföld uppskrift að bleikju
Ofureinföld bleikjuuppskrift sem
ég geri með dassi af hinu og þessu.
Bleikja
Smjör
Sojasósa
Hvítlauksrif
Smjör og sojasósa brætt saman
í potti og bætt út í pressuðu hvít-
lauksrifi.
Passa að hafa ekki of mikið smjör.
Helmingnum helt yfir bleikjuna
ásamt svörtum pipar sem fer svo í
ofninn eða á grillið.
Passa að hafa hana ekki lengi inni.
Ekki taka tímann þar sem flök eru
svo misstór heldur fylgjast með.
Þegar bleikjan lítur út fyrir að vera
ekki alveg tilbúin, takið hana út. Má
vera bleik í miðjunni.
Þegar bleikjan er tilbúin, skvettið
aftur yfir hana dressingunni og
hafið hana svo með til hliðar fyrir
þá sem vilja meira bragð.
Létt kínóasalat
1 dl kínóa á móti 2 dl vatni.
Soðið í 15-20 mín.
Mangó Skorið í teninga
Lúka af kóríander Mynta á sumrin.
Granataepli
Eitt box kirsuberjatómatar Skornir
í helminga.
Tvær lúkur spínat
Sítrónuolía Dassað yfir sem og
góðri ólífuolíu (eða ólífuolíu og
kreista vel af sítrónusafa út í)
Ca. 1 msk. kóríanderfræ Sett í
mortél
Salt og pipar
32 MATUR 4. DESEMBER 2020 DV
Barnabókahöfundur
með poppæði
Birgitta Haukdal byrjar daginn á engiferskoti og fær sér popp alla
jafna sex sinnum í viku. Hún er óhrædd við að prófa sig áfram í
eldhúsinu og deilir skotheldri uppskrift að bleikju með kínóasalati.
S öngkonan og rithöfund-urinn Birgitta Haukdal gaf nýlega út tvær nýjar
bækur um Láru og Ljónsa,
Lára fer í leikhús og Lára lær-
ir að lesa. Það hefur því verið
nóg að gera hjá henni undan-
farið og við báðum hana um
að lýsa hefðbundnum degi í
lífi sínu.
„Vinnudagarnir eru mjög
mismunandi hjá mér eftir
árstíðum. Sumir dagar eru
fyrir framan tölvuna á skrif-
stofunni heima þegar ég er
í vinnutörn fyrir bækurnar
mínar og aðrir á tónlistar-
æfingum, í tónlistarkennslu,
upptökum og á hinum ýmsu
fundum. Ég hreyfi mig mjög
reglulega og útivera og göngur
í náttúrunni eru í uppáhaldi.
Ég stunda jóga bæði heima
og á jógastöðvum og þegar
það má þá líður mér best ef
ég fer reglulega í ræktina. Ég
er þó engin öfgamanneskja og
tek stuttar æfingar og fleiri
frekar en langar og erfiðar.
Göngur í náttúrunni gefa mér
mest og þá geri ég heima jóga-
teygjur fyrir eða á eftir,“ segir
hún.
Meðvituð
Birgitta segist vera mjög með-
vituð um það sem hún borðar
og reyna eftir bestu getu að
leita í hollustuna. „En auðvitað
dett ég líka í óhollustuna og er
reglulegur gestur í kökubúð-
inni Bake me a wish í Garða-
bænum hjá Sylvíu systur sem
gerir svo sjúklegar kökur og
gotterí.“
Birgitta borðar ekki rautt
kjöt. „En ég borða mikið af
fiski og kjúklingi. Ég elska
góð salöt og er mikill snarlari.
Það er, ég elska popp, hnetur,
fræ og alls konar snarl í óholl-
ari kantinum til dæmis nachos
og gvakamóle.“
Ágætis kokkur
Birgitta freistast gjarnan til
að gera tilraunir í eldhúsinu
og lýsir sér sem ágætis kokki.
„Ég er óhrædd við að gera
eigin uppskriftir en þykir
þó gaman að fara á netið og
prófa nýjar. Eins finnst mér
líka mjög notalegt að panta
gott „take away“ til að brjóta
upp vikuna. Ég baka með
börnunum en það er ekki
mín besta hlið. Sylvía systir
fékk öll þau gen þannig að
það er gott að treysta á hana.
En við gerum kanilsnúða og
steikjum kleinur reglulega
saman ásamt því auðvitað að
baka fyrir jólin,“ segir hún. n
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Ég elska
góð salöt
og er mikill
snarlari.
MYND/GETTY
Birgitta er
mikið fyrir
jóga og
útiveru.
MYND/AÐSEND