Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Side 33
Döðlubrauð
Þetta döðlubrauð svíkur engan,
fullkomið með helgarkaffinu. Fljót-
gert og bragðast einstaklega vel
volgt með smjöri og osti.
1,5 dl döðlur
1,5 dl vatn
3 msk. smjör
0,5 dl sykur
1 stk. egg
3 dl hveiti
1 tsk. matarsódi
1 tsk. vanilludropar
Byrjið á að hita ofninn í 180 gráður.
Skerið döðlurnar niður í litla bita.
Blandið döðlunum, smjöri og vatni
saman í pott og leyfið að sjóða í um
2-3 mínútur og hrærið vel í á meðan.
Hrærið saman egg og sykur í skál
Blandið öllum hráefnunum saman
og hrærið vel.
Smyrjið brauðform vel að innan
með smjöri eða ég nota einnig
PAM-sprey sem er frábær lausn
svo að ekkert festist við formið.
Hellið deiginu í brauðformið og
bakið í um 40-50 mínútur. Gott er að
stinga prjóni í miðjuna á brauðinu
til að vera viss um að það sé tilbúið.
Njótið vel.
Una í eldhúsinu
Marengs jóla-rúlluterta
Mjúkur marengsbotn rúllaður upp
með hindberjarjóma og bræddu
súkkulaði með piparkökubragði.
Þetta getur ekki klikkað.
4 stk. eggjahvítur
200 g sykur
2 tsk. vanilludropar
170 g fersk hindber
400 ml rjómi
200 g Nóa Síríus-súkkulaði með
piparkökubragði
Byrjið á að stilla ofninn á 150
gráður.
Klæðið bökunarplötu með bökunar-
pappír.
Þeytið eggjahvítur þar til þær fara
að freyða vel og hellið sykrinum
hægt og rólega saman við, vanillu-
droparnir fara svo næst saman við.
Þeytið vel saman eða þar til stíf
marengsblanda myndast.
Hellið marengsblöndunni á bök-
unarpappírinn og sléttið vel úr.
Bakið í 25 mínútur, takið út úr ofn-
inum og látið kólna.
Á meðan marengsinn er að kólna
er upplagt að byrja á fyllingunni.
Þeytið rjóma. Hrærið um 100 g af
ferskum hindberjum saman við þar
til rjóminn verður smá bleikur.
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði.
Snúið marengsbotninum varlega
við svo að botninn snúi upp, leggið
rjómann ofan á ásamt helmingnum
af súkkulaðiblöndunni.
Rúllið botninum varlega upp í rúllu,
gott að rúlla honum upp með hjálp
bökunarpappírsins.
Hellið restinni af súkkulaðinu yfir
ásamt hindberjum og fallegum
skreytingum að ykkar vali.
Geymist í kæli í um 2 klukkustundir
áður en borið fram.
Verði ykkur að góðu.
Matgæðingurinn okkar ljúfi
hefur gefið grænt ljós á bakstur
alla daga í kuldakastinu. Volgt
döðlubrauð í kaffitímanum og
brakandi marengs með kvöld-
kaffinu er allra meina bót. Ekki
er verra að skella sér í göngutúr
og fá svo kræsingarnar í kald-
ann kroppinn við heimkomu.
MYNDIR/AÐSENDAR
MATUR 33DV 4. DESEMBER 2020