Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Blaðsíða 37
Þ essa vikuna er spáð fyrir Steinunni Ólínu leikkonu með meiru en hún ber ófáa titla enda fædd Krabbi. Krabbinn
er þekktur fyrir að halda mörgum boltum á
lofti, við rifjum upp meira um hann.
Við fáum ekki leið á því að tala um Krabbann
hann er svo mikið krútt. Hann er nægjusamur,
fjölskyldumaður, allir vinir eru eins og þeir
væru blóðskyldir honum. Hann leysir vanda-
mál, hugsar í lausnum og sinnir fjölbreyttum
störfum. Þeir eru bara hálfgerðir kærleiks-
birnir sem gott er að hafa í kringum sig og oft
miklir prakkarar með lúðahúmor.
Einsetumaðurinn
Sjálfsskoðun | Einvera | Innri leiðsögn
Eins mikil félagsvera og Krabbinn getur verið þá kann
hann verulega að meta tíma einn með sjálfum sér. Þetta
ár hefur því verið smá lán í óláni, þú hefur vissulega
fengið meiri tíma með sjálfri þér en þú hefðir óskað en
á sama tíma hefur þú gengið í gegnum mjög þroskandi
tímabil, þar sem þú fékkst tíma til þess að vera ein með
sjálfri þér og þínum hugsunum. Tími til þess að ná áttum
og sjá hvert þú vilt stefna og hvað skiptir þig helst máli.
Fimma í bikurum
Persónuleg áföll | Fyrirgefning | Framför
Þetta spil minnir mann einmitt á að fylla sinn bikar, ekki
bara hella í hjá öllum öðrum. Þú ert svo svakalega gjaf-
mildur einstaklingur að þú gleymir gjarnan sjálfri þér.
Nú eru falleg kaflaskipti þar sem þú áttar þig á þínum
eigin þörfum og sinnir þeim. Það er mikill léttir sem fylgir
þessari breytingu eins og þú sért að endurskapa þig. Þú
sérð allt mun skýrar (með aðstoð gleraugna) en svona
í alvöru þá er allt einhvern veginn allt að koma heim og
saman.
Gosi í bikurum
Ást | Ný sambönd | Samkennd | Sköpun
Það er svo mögnuð afleiðing af því að gefa sér leyfi til
að vera fullkomlega eins og maður er og þurfa ekkert
að afsaka sig eða útskýra það nánar. Þú ert að fara að
detta inn í mikið jafnvægi þar sem allt gengur bara upp
Skilaboð frá spákonunni
Ef þú ert að leita eftir svari við einhverju, prófaðu
að spyrja kosmósið upphátt, það er fyndið hvernig
þetta líf er og hvað gæti komið til þín.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Steinunn Ólína
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 04.12. – 10.12.
Mögnuð afleiðing af því að gefa sér leyfi…
Lítill Pírati kom í heiminn
MYND/AÐSEND
stjörnurnarSPÁÐ Í
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, og Kristinn Jón Ólafsson eignuðust barn fyrir rúmlega viku. DV lék forvitni á
að vita hvernig þau eiga saman ef litið er til
stjörnumerkjanna.
Halldóra er Krabbi og Kristinn er Vatnsberi.
Andstæður heilla og það er svo sannarlega
satt þegar kemur að Krabbanum og Vatnsber-
anum. Vatnsberinn er þekktur fyrir að vera
mannblendinn og opinskár á meðan Krabbinn á
það til að vera dulur og hafa meiri áhuga á eigin
hugarheimi en samskiptum við aðra. Krabb-
inn á auðveldara með að kljást við tilfinningar
sínar og deila þeim með öðrum, en Vatnsberinn
á það til að sópa þeim undir teppið og vona að
þær hverfi.
Þarna erum við að tala um tvo mjög ólíka ein-
staklinga og gæti það skapað spennu, en lykill-
inn að hamingjusömu sambandi er að forgangs-
raða vandamálunum og reyna að skilja hvernig
þau tjá tilfinningar sínar á ólíkan hátt.
Ef þau ná tökum á þessu þá erum við að horfa
á par sem á bjarta framtíð fyrir sér. n
Halldóra Mogensen
Krabbi
11. júlí 1979
n Uppátækjasöm
n Hlý
n Traust
n Tilfinninganæm
n Skapstór
n Óörugg
Kristinn Jón Ólafsson
Vatnsberi
23. janúar 1981
n Frumlegur
n Sjálfstæður
n Mannvinur
n Framsækinn
n Flýr tilfinningar
n Feiminn
MYND/ERNIR MYND/FACEBOOK
Tilvalin gjöf fyrir hvert og eitt stjörnumerki...
Hrútur
21.03. – 19.04.
Hrúturinn vandar verulega til
verka þegar hann gefur gjafir.
Hann passar að það sé einhver
minning eða að það sé eitthvað
sem tengist þér og þínum per-
sónuleika. Því kann hann einstak-
lega vel að meta ef þú gerir slíkt
hið sama fyrir hann.
Naut
20.04. – 20.05.
Nautið er þekktur nautnaseggur.
Það vill hafa það kósí og róman-
tískt, svo er það lúmskt mikið fyrir
merkjavöru. Það gæti vel kunnað
að meta til dæmis mjúkan slopp,
inniskó og ilmkerti. Og ef þú hefur
efni á því eitthvað eftir íslenskan
hönnuð.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Tvíburinn er svakalega listrænn
en líka skemmtilega praktískur.
Ég myndi mæla með listaverki
eða einhverri sérhönnun. Ef
það er unnið úr náttúrulegum
hráefnum þá er það alveg plús.
Fallegt skurðarbretti út við eða
keramikverk myndi slá í gegn.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Krabbinn er fallega nægjusamur,
hann elskar að elda og gæti því
verið ánægður með fallegan pott
eða aðra eldhúsgræju. Hann
elskar líka allt persónulegt eins
og fjölskyldumynd. Svo gæti góð
bók líka verið málið!
Ljón
23.07. – 22.08.
Ljónið er gjarnan mikil tískuvera
sem hefur gaman af því að vera
með sérstakan og djarfan stíl.
Það myndi elska hatt, trefil, leður-
hanska eða förðunarvörur. Allt
þetta er eitthvað sem það tímir
ekki að kaupa handa sér sjálfu og
ætti því að hitta vel í mark.
Meyja
23.08. – 22.09.
Meyjan er líka einstaklega
nægjusöm og bara þakklát fyrir
að þú hafir hugsað til hennar.
Hún myndi elska fallega skipu-
lagsbók fyrir komandi ár,
skemmtilegt spil eða jafnvel
gjafabréf á námskeið.
Vog
23.09. – 22.10.
Vogin elskar allt sem glitrar og
er litríkt. Hún elskar listina en vill
þó ekki sóa peningum í óþarfa.
Falleg vintage-vara gæti verið
málið fyrir Vogina, eitthvað með
persónuleika og sögu eins og
hennar gamla sál er svo gjarnan.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Það fyrsta sem ég hugsa fyrir
Sporðdrekann er falleg mínímal-
ísk gullkeðja eða einstakur ilmur
frá Andreu Maack. Sporðdrekinn
kann að meta vandaðar gjafir,
hann kaupir svo sem allt sem
hann langar í sjálfur en engar
áhyggjur, hann skilar bara gjöfinni
ef hann á hana nú þegar.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Bogmaðurinn er einstaklega
mikið jólabarn og ELSKAR að
gefa gjafir og þiggja þær. Það
væri tilvalið að gefa Bogamann-
inum einhverja upplifun. Gjafa-
bréf út að borða, í nudd eða til
snyrtifræðings myndi gleðja hann
einstaklega mikið.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Steingeitin er mikið partídýr og
væri mjög ánægð með eina góða
Tommasi Prosecco flösku! Svo
leggur hún sig fram við að styðja
litla manninn, þannig að hönnun-
arvara frá upprennandi hönnuði
eða bolur sem styrkir eitthvert
ákveðið málefni gæti verið málið.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Þetta hippakrútt myndi til dæmis
vilja einhvern fallegan kristal frá
Lunu Flórens eða jógadýnu frá
Systrasamlaginu. Svo myndi hann
líka fíla eitthvað heimagert og
persónulegt eins og heimagerðar
kökur eða ljóð.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Fiskurinn elskar að hafa það
kósí og það er frekar auðvelt að
gleðja hann. Ef hann á baðkar þá
er baðsalt málið annars væri gott
ullarteppi eða vönduð bók sem
er bæði áhugaverð og stofuprýði
málið.
og þú ert svo sannarlega búin að vinna þér inn fyrir því.
Sköpunarkrafturinn kemur inn eins og aldrei fyrr, ég sé
þig vera að skrifa bók eða handrit og ef svo er þá ertu á
réttri braut með það.
FÓKUS 37DV 4. DESEMBER 2020