Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2020, Side 38
38 SPORT 433
Fullkomnar jólagjafir fyrir
KNATTSPYRNU-
BULLUNA
Þegar líða fer að jólum er gott að huga að
jólagjöfum fyrir ástvini sína og er knatt-
spyrnuáhugafólk þá líklegt til að þrá gjöf
sem tengist áhugamálinu. Jólin eru yfir-
leitt mikil hátíð fyrir allt fótboltaáhugafólk
með hlaðborði af leikjum í enska bolt-
anum nánast daglega í desember. Hægt
er að gleðja þetta fólk með fjölbreyttum
gjöfum, til dæmis með því að gefa góða
bók eða bjóða viðkomandi á leik í enska
boltanum – hvenær sem það nú verður.
4. DESEMBER 2020 DV
SPIL
Það er hefð hjá mörgum að grípa í spil yfir jólin, það gæti reynst happafengur fyrir knattspyrnu-
áhugafólk að fá spil tengt fótbolta. Spilið Beint í mark kom út fyrir jólin 2017 og er eflaust hægt
að verða sér úti um það. Spilið Stjórinn kom út í kringum árið 2000 og er reglulega til sölu
á veraldarvefnum. Spark er spil sem kom út árið 2005 og naut mikilla vinsælda, líkt og með
Stjórann er spilið oft til sölu á veraldarvefnum eða í verslunum sem selja notaða hluti. Þá er til
fjöldi erlendra spila sem knattspyrnuáhugafólk gæti skemmt sér yfir.
ANNAÐ
Til að horfa á fótbolta í sjón-
varpi væri hægt að gefa ástvini
nýtt sjónvarp, það er ekkert eins
ánægjulegt og knattspyrnuleikur
í nýju sjónvarpi. Þá er einnig til-
valið að gefa áskrift af Stöð 2
Sport eða Símanum til að ástvinur
þinn geti horft á fótbolta yfir há-
tíð ljóss og friðar. Minjagripur
sem tengist uppáhaldsliðinu gæti
verið skemmtileg gjöf en mikill
fjöldi þeirra er til í verslunum eða
á veraldarvefnum.
FERÐ Á LEIK
Nú þegar sér fyrir hornið á COVID-19 faraldrinum er knattspyrnuáhugafólk
farið að horfa til þess að komast aftur á leik í enska boltanum. Ef allt fer á
besta veg gæti fólk farið að ferðast með nokkuð eðlilegum hætti í vor, enska
úrvalsdeildin klárast í maí og þá gæti verið gaman að eiga bókaða ferð á
leik með sínu uppáhaldsliði í enska boltanum. Í dag er hægt að bóka mjög
ódýrt flug fyrir þennan árstíma þar sem möguleiki er á að breyta ferðinni
ef faraldurinn heldur áfram að leika okkur grátt. Þá hefur gisting sjaldan
verið á jafn góðu verði og nú, þá er hægt að bóka gistingu með möguleika
á að afbóka ef ferðin verður ekki farin. Ferð á leik að gjöf ætti að hitta í
mark hjá öllu knattspyrnuáhugafólki.
BÆKUR
Hátíð ljós og friðar kallar oftar en ekki á góða bók. Knattspyrnuáhuga-
fólk getur lesið sér til gagns og gamans yfir jólin. Ár hvert kemur út bókin
Íslensk knattspyrna sem Víðir Sigurðsson, blaðamaður á Morgunblaðinu,
heldur utan um. Bókin er afar vegleg og er þar að finna allan fróðleik um
knattspyrnuárið á Íslandi. Fleiri góðar bækur hafa vakið athygli fyrir jólin
í ár en þar má nefna Í faðmi ljónsins, ástarsaga Íslendinga á enskri knatt-
spyrnu. „Enska knattspyrnan er þjóðaríþrótt okkar Íslendinga. Við gleðj-
umst og þjáumst yfir henni eins og hún væri okkar eigin og jafn sjálfsagt
þykir að íslensk börn velji sér lið á Englandi og að þau gangi í skóla,“ segir í
umfjöllun um bókina sem Orri Páll Ómarsson ritar. Þá eru til margar áhuga-
verðar ævisögur knattspyrnumanna sem komið hafa út í gegnum árin, eftir
andlát Diego Armando Maradona gæti það reynst fróðlegt að rifja upp hans
litríku ævi en bókin um hann ber nafnið Ég er hann Diego.
BÚNINGUR
Þeir sem lifa fyrir fótbolta vilja
alltaf vera í nýjustu treyjunni,
treyjurnar eru ekki lengur bara
notaðar þegar horft er á leiki
heldur er líka farið að nota þær
dagsdaglega. Frábært úrval er af
treyjum hér á Íslandi og þá helst
í verslun Jóa útherja. Einnig er
leikur einn að kaupa slíka treyju
á netinu og ætti hún að koma til
landsins á örfáum dögum. Ekki
láta ástvin þinn horfa á Liver-
pool-leik í gamalli treyju, það er
ekki töff.