Fréttablaðið - 16.12.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.12.2020, Blaðsíða 6
SAMGÖNGUR Vegagerðin mun bæta ökumönnum það tjón sem orðið hefur á ökutækjum þeirra vegna blæðinga á köflum Hringvegarins milli Borgarfjarðar og Skagafjarðar. Ljóst er að tjónið hleypur á millj- ónum en fjárhagslegt tjón vegna skemmda á veginum sem verður við þessar aðstæður gæti orðið mun kostnaðarsamara fyrir Vegagerðina en bætur vegna skemmda á bílum. „Að stæðurnar þarna eru það lúmskar núna að það er mjög erfitt fyrir fólk að vara sig á þessu þó að við séum búin að vara við,“ segir G. Pétur Matthíasson upplýsingafull- trúi Vegagerðarinnar í samtali við Fréttablaðið. Pétur segir að blæðingar á vegin- um séu með þeim verstu sem hann þekki til. Þegar bikklæðning er lögð er lagt steinefni yfir bikið á vegin- um. Þegar skyndilega hlýnar í veðri eftir frost kemst raki í bikið undir steinefnalaginu. Umferð þungra ökutækja pumpar svo bikinu upp við þessar aðstæður um pínulitlar holur á efsta laginu, svo litlar að það er mjög erfitt að átta sig á því hvar á veginum bikið kemur upp. – ókp Að stæðurnar þarna eru það lúmskar núna að það er mjög erfitt fyrir fólk að vara sig á þessu þó að við séum búin að vara við. G. Pétur Matthías- son, upplýsinga- fulltrúi Vega- gerðarinnar Árbæjarlón var vatns- miðlun fyrir Elliðaárstöð sem rekin var frá árinu 1921 til 2014. Tillaga að matsáætlun Samherji Fiskeldi ehf auglýsir tillögu að matsáætlun vegna stækkunar fiskeldisstöðvarinnar að Stað í Grindavík samkvæmt reglugerð um mat á umhverfisáhrifum nr.660/2015. Framleiðsluaukning er 9.000 tonn á árs- grundvelli og verður framleiðslan 12.000 tonn að loknum framkvæmdum. Tillagan er auglýst í Fréttablaðinu og Víkufréttum 16. desember 2020. Almenningi er gefinn kostur á að kynna sér tillöguna á vefsíðunni www.samherji.is og gera athugasemdir við hana til og með 31.desember 2020. Athugasemdir sendist á netfangið gdd@samherji.is eða í pósti : Samherji Fiskeldi Glerárgötu 30, 600 Akureyri GETUM BÆTT VIÐ OKKUR VERKEFNUM! Parketlögn Uppsetning á innréttingum Ísetning á hurðum og gluggum ásamt allri almennri smíðavinnu Gerum tilboð, þér að kostnaðarlausu. Ívar Guðmundsson – sími: 769 1049 Steve Roberts – sími: 772 2612 – steve@prverk.is SAMGÖNGUMÁL Nýtt landamæra- kerfi frá franska fyrirtækinu Idemia verður tekið í notkun á fyrri hluta árs 2022. Verður þetta töluverð breyting fyrir farþega utan Schengen-svæðisins en hefur ekki áhrif á Íslendinga eða aðra borgara innan þess. Sett verða upp sjálfvirk hlið og stöðvar á f lugvöll- um og höfnum landsins þar sem andlit og fingraför eru skönnuð. Jón Pétur Jónsson, yfirlögreglu- þjónn og sviðsstjóri landamæra- sviðs hjá Ríkislögreglustjóra, segir kerfið lið í að uppfylla Evrópu- reglugerð sem taki að fullu gildi árið 2022. „Þetta er talsvert mikil breyting og krefst undirbúnings. Við munum reyna að nýta okkur sjálfvirknivæðinguna eins og við getum,“ segir hann. Með lögregl- unni stendur Isavia að innleiðingu kerfisins sem rekstraraðili Kefla- víkurflugvallar. Þegar borgarar utan Schengen koma í fyrsta skipti verða þeir skráðir inn í kerfið með fingrafari og mynd. Er skráningin staðfest af landamæraverði og gildir í þrjú ár. Þegar þeir fara út af svæðinu er aftur tekin mynd og borin saman við þá sem er í kerfinu. Er þetta gert meðal annars til að sjá hvort fólk hafi dvalið lengur en heimilt er og leysir þá af hólmi stimpil í vegabréf. Jón segir að hægt sé að nota kerfið annars staðar en á landa- mærum. „Til dæmis ef einstakling- ar sem eru skilríkjalausir gera ekki grein fyrir sér við afskipti löggæslu þá er hægt að sannprófa þá með því að bera þá saman við gagnagrunn- inn,“ segir hann. Evrópusambandið er nú að koma upp sameiginlegum lífkennagagnagrunni fyrir allt Schengen-svæðið. Idemia er stærsta lífkennafyrir- tæki heims og hefur reynslu af því að starfa með ríkisstjórnum. Til að mynda hefur það umsjón með langflestum ökuskírteinum í Bandaríkjunum. Það var stofnað árið 2017 eftir samruna fyrirtækja sem höfðu starfað síðan snemma á níunda áratugnum. Fyrirtækið hefur þó ekki sloppið við gagnrýni. Í frétt AP frá því í fyrra er sagt frá áhyggjum áhugafólks un netöryggismál um að Idemia geti verið viðkvæmt fyrir netárásum. Annaðhvort frá einstökum netglæpamönnum eða öðrum ríkjum. Einnig að hættulegt sé að svo miklar upp- lýsingar safnist fyrir á einum stað, í tilfelli Bandaríkjanna séu þetta lífkennaupplýsingar um fólk frá mörgum ríkisstofnunum sem kaupi þjónustu af Idemia. „Það gilda mjög strangar reglur um notkun þessara gagna,“ segir Jón Pétur, aðspurður um persónu- verndarsjónarmið og öryggi þeirra gagna sem safnað verður. „Þetta uppfyllir löggjöf um persónuvernd og Evrópusambandið sýnir mikla varkárni með þetta.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Fingraför og andlit greind á landamærum Stór breyting verður gerð á landamæraeftirliti með fólki utan Schengen- svæðisins árið 2022 þegar taka á nýtt lífkennakerfi í notkun. Þar býr að baki gagnagrunnur ESB og verður einnig hægt að nota kerfið við löggæslu. Kerfið mun anna 2.500 farþegum á klukkutíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN Fáðu blað dagsins sent rafrænt Það gilda mjög strangar reglur um notkun þessara gagna. Jón Pétur Jónsson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri R E Y K JAV Í K St jór n Ork uveit u Reykjavíkur felldi tillögu um að fylla aftur í Árbæjarlón á meðan unnið er að lausn í samræmi við til- mæli stýrihóps um Elliðaárdalinn. OR tæmdi lónið varanlega í októ- ber síðastliðnum þar sem lónið gegndi ekki lengur hlutverki sínu. Líkt og greint var frá í byrjun mánaðarins telur skipulagsfulltrúi tæminguna ekki vera í samræmi við deiliskipulag og að ákvörð- unin hafi ekki verið tekin í sam- ráði við skipulagsyfirvöld. Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, sagði hins vegar að samráð hefði verið haft við fulltrúa umhverfis- og skipu- lagssviðs. Þorkell Heiðarsson, for- maður stýrihópsins, segir málið enn í vinnslu. „Það er enn þá verið að skoða málið frá öllum hliðum og ræða við þá aðila sem að þurfa að koma að slíkum málum, það er ekkert um það að segja,“ segir Þorkell. – ab Stjórn OR vill ekki fylla Árbæjarlónið að nýju Árbæjarlón var tæmt varanlega í október. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Mikil blóð taka fyrir Vega gerðina 1 6 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.