Fréttablaðið - 16.12.2020, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 16.12.2020, Blaðsíða 32
Við leggjum allan okkar metnað í að garðurinn líti sem best út. JS ljósasmiðjan hefur um margra ára skeið boðið viðskiptavinum sínum ljósdíóðu krossa á leiði en kross­ arnir hafa reynst afar vel við íslenskar aðstæður. Krossarnir eru smíðaðir úr galvaníseruðu stáli af fagmönnum ljósasmiðjunnar. „Við erum búnir að vera með krossana í Lindakirkjugarði í um það bil tíu ár, en síðan hefur garðurinn stækkar heilmikið. Við leggjum allan okkar metnað í að garðurinn líti sem best út. Þar erum við með krossana til leigu og fólk borgar bara fyrir tímabilið og við látum loga frá fyrsta sunnudegi í aðventu og út janúar,“ útskýrir Jón Guðbjörnsson, annar eigandi JS ljósasmiðjunnar. Hann útskýrir að einnig sé hægt að kaupa krossana af þeim og nota í öðrum görðum, þeir eru þá annað hvort tengdir við 12 volta rafhlöðu eða settir í samband við rafmagn í viðkomandi kirkjugarði. „Til dæmis í Fossvogskirkjugarði og Hafnarfjarðarkirkjugarði eru krossarnir keyrðir út af 12 volta rafhlöðu, en við sendum líka töluvert mikið út á land og þá eru krossarnir yfirleitt 24 eða 32 volta og tengdir við rafmagn í garð­ inum,“ segir Jón. Fjölbreyttar ljósaskreytingar Auk þess að búa til ljósakrossa smíða þeir hjá JS ljósasmiðjunni einnig alls kyns ljósaskreytingar til dæmis skreytingar á ljósastaura fyrir bæjarfélög. Skreytingarnar eru fáanlegar í mörgum litum og koma allar með staurafestingum tilbúnar til uppsetningar. „Við gerum bjöllur og stjörnur og alls konar fígúrur. Fólk getur pantað og við búum til skreytingar eftir óskum fólks. Við höfum til dæmis búið til stjörnur fyrir fólk sem vill ekki hafa kross á leiði ástvina sinna. Við notum díóðu­ slöngur í allar okkar ljósaskreyt­ ingar. Við höfum töluvert verið í því að smíða alls konar ljósa­ skreytingar fyrir bæjarfélög,“ segir Sigurður Vilhjálmsson, sem einnig er eigandi JS ljósasmiðjunnar. Auk ljósaskreytinga sinnir fyrir­ tækið einnig vélaviðgerðum ýmiss konar, málmsmíði og reiðhjólavið­ gerðum og ­viðhaldi. „Við búum til vindhana sem standa af sér íslenska veðráttu og smíðum líka ýmiss konar kerrur og grindur. Við smíðum dæmis handrið á stiga eða svalir, garð­ hlið eða hvers konar grindur sem viðskiptavinurinn óskar eftir,“ útskýrir Sigurður. Fyrirtækið var stofnað í kringum aldamótin og sérhæfði sig til að byrja með í vélaviðgerð­ um eins og sláttuvélaviðgerðum og viðgerðum á ýmsum tækjum sem tilheyra jarðvinnu. „Það var bara byrjunin,“ segir Jón. „En svo vantaði verkefni frá þessu tímabili frá lokum ágúst og fram yfir áramót. Þess vegna fórum við út í að framleiða ljósa­ skreytingar. Við höfum örugglega verið í því í svona fimmtán ár.“ Ljósaskreytingar fyrir íslenskar aðstæður Hjá JS ljósasmiðjunni eru framleiddar fjölbreyttar og sér- lega vandaðar ljósaskreytingar fyrir leiði og einnig til að nota í götuskreytingar. Nú fyrir jólin er Lindakirkjugarður fallega upplýstur með ljósakrossum frá fyrirtækinu. Lindakirkju- garður fallega upplýstur með ljósakrossum frá JS ljósa- smiðjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Krossarnir eru vandaðir og þola vel íslenskt veðurfar. Eigengur JS ljósasmiðjunnar þeir Jón Guðbjörnsson og Sigurður Vilhjálmsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Jón og Sigurður smíða mikið af skreytingum fyrir bæjarfélög, til að festa á staura. MYND/ AÐSEND Skreytingarnar koma í ýmsum litum. Skreytingarnar eru í ýmsum formum. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.