Fréttablaðið - 16.12.2020, Síða 14

Fréttablaðið - 16.12.2020, Síða 14
KÖRFUBOLTI „Þetta er búinn að vera mjög lærdómsríkur tími og það er mjög gaman að búa í landi þar sem áhuginn fyrir körfubolta er jafn mikill og hann er hérna í Litháen. Það hefur hins vegar verið nokkuð mikið rót á leikmannahópi liðsins sem hefur komið niður á úrslitun- um,“ segir Elvar Már Friðriksson í samtali við Fréttablaðið um fyrstu mánuðina sína hjá Siauliai. Þrátt fyrir að liðinu hafi ekki gengið vel hefur Elvar Már staðið fyrir sínu, en hann er þriðji stiga- hæsti leikmaður litháísku úrvals- deildarinnar með rúmlega 16 stig að meðaltali í fyrstu tíu leikjum vetrarins, sá stoðsendingahæsti með rúmar sjö stoðsendingar og framlagshæsti með tæplega 21 framlagspunkt. „Leikmenn hafa komið og farið frá okkur en við náðum að mynda gott lið í nóvember og náðum að vinna í þeim leikjum sem við spil- uðum í þeim mánuði, tvo deildar- leiki og einn bikarleik. Það hafa reyndar orðið f leiri breytingar á liðinu síðan þá en vonandi náum við að stilla saman strengina eftir áramót og klára tímabilið með sóma,“ segir Elvar Már, sem var valinn leikmaður nóvember- mánaðarins í deildinni. „Siauliai er lið sem er vant því að vera í topp- baráttu og það er krafa um betri árangur en liðið hefur verið að sýna. Það er gott að vera í þannig umhverfi að ég finn vel fyrir því að fólkið í kringum félagið er ekki sátt við árangurinn og leitar leiða til þess að bæta hann. Þó svo að við séum bara með tvo sigur- leiki þá erum við bara einum sigurleik frá sæti sem veitir okkur þátttökurétt í úrslita- keppni deildarinnar. Það er spiluð fjórföld umferð hérna þannig að það er nóg eftir. Vonandi náum við að rétta úr kútnum þegar við byrjum að spila aftur,“ segir leikstjórnandinn, sem er í sinni annarri sóttkví á leiktíðinni eins og sakir standa. „Ég er kominn með góða reynslu af því að vera í sóttkví þar sem ég hef verið í einangrun í 20 af síðustu 30 dögum um það bil. Það sem er verra við þessa sóttkví er að f jölskyldan er farin heim þannig að þetta er mun einmanalegra í þetta skiptið. Ég hef ekki séð mikið af borginni hérna en þekki íbúðina mína út og inn og íþróttasalinn þar sem við æfum. Það eru frekar strangar reglur hérna í Litháen hvað sóttkvína varðar og ég má til dæmis ekki fara út með ruslið og það er nánast allt lokað. Heimsendingarþjónustan á nauðsynjavörum er hins vegar í toppstandi þannig að ég er í fínum málum,“ segir Njarðvíkingurinn léttur. „Fyrir utan það að hafa eytt full- miklum tíma í sóttkví og gengi liðs- ins, þá er ég sáttur við dvölina hérna í Litháen. Þetta er mun sterkari deild en í Svíþjóð og það er gaman að tak- ast á við meiri áskorun. Fimm sterk- ustu lið deildarinnar eru virkilega sterk og þú þarft að vera á tánum í öllum leikjum, annars er þér refsað. Leikmannahóparnir eru mun sterkari hjá liðunum þannig að það eru fleiri sem leggja í púkkið þegar kemur að stigaskorun og öðrum töl- fræðiþáttum leiksins. Þetta er líka öðruvísi körfubolti en ég er vanur. Hér er spilaður hægari leikur og taktískari leikur en í þeim deildum þar sem ég hef spilað og margir hávaxnir leikmenn og öflugir leik- menn í hverju liði. Ég hef þurft að aðlagast því, get ekki sótt jafn mikið sjálfur að körf- unni og ég hef áður gert og þarf að finna aðrar leiðir til þess að skora. Það er bara jákvætt að kynnast öðruvísi leikstílum,“ segir Elvar Már, aðspurður um hvað hann hafi lært á meðan hann hefur leikið í þessu mikla körfuboltalandi. hjorvaro@frettabladid.is Þekki íbúðina mína út og inn Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfubolta, er að spila á sínu fyrsta keppnistímabili með Siauliai í Litháen. Tímabilið hefur verið súrsætt þar sem honum hefur gengið vel en liðið hefur átt í vandræðum. Þrátt fyrir erfiðleika hjá liði Elvars hefur Njarðvíkingurinn blómstrað á fyrsta ári sínu í Litháen. MYND/AÐSEND FÓTBOLTI KSÍ tilkynnti í gær að karlalandsliðið í knattspyrnu myndi mæta því færeyska í æfinga- leik þann 4. júní næstkomandi. Til- efnið er opnun Þórsvallar, þjóðar- leikvangs Færeyja eftir endurbætur sem gera Færeyingum kleift að taka á móti fimm þúsund manns. Liðin áttu að mætast í æfingaleik síðastliðið sumar í aðdraganda Evr- ópumótsins en leiknum var aflýst þegar landsleikjahléð í júní var fellt niður.  Þetta verður 26. viðureign Íslands og Færeyja og hefur Ísland unnið 23 leiki til þessa. Þá verður þetta í fyrsta sinn í átján ár sem liðin mætast í Færeyjum, en Ísland hefur unnið átta af níu leikjum lið- anna í Færeyjum til þessa. – kpt. Mæta Færeyjum í vígsluathöfn Annar leikur Arons fyrir landsliðið var gegn Færeyjum. MYND/ANTON HANDBOLTI Guðmundur Þ. Guð- mundsson, þjálfari karlalands- liðsins í handbolta, tilkynnti í gær hvaða 21 leikmann hann hefði valið í æfingahóp fyrir næstu leiki í undankeppni EM og lokakeppni HM. Tæpur mánuður er í að Ísland mæti Portúgal í fyrsta leik á HM, en í aðdraganda mótsins mætast liðin heima og heiman í undankeppni EM. Íslenska liðið sem kemur saman til æfinga á Íslandi þarf því að ferðast til Portúgals, aftur til Íslands og svo til Egyptalands til að mæta sama liðinu á öllum stöðum. Það eru tæplega ellefu þúsund kílómetrar sem jafngildir f lugi til Suðaustur-Asíu. Guðmundur lýsti skiljanlega áhyggjum yfir ferða- laginu á blaðamannafundi í gær. „Þetta eru löng ferðalög og það er mjög erfitt að komast frá landinu og til landsins. Við höfum áhyggjur af ferðalagi okkar aftur til Íslands frá Portúgal. Það gæti reynst okkur mjög erfitt að komast aftur til landsins. Möguleiki er á því að við þyrftum að gista aukanótt í Portú- gal  og þar með erum við búnir að tapa mjög mikilvægum degi í undirbúningi, bæði fyrir seinni leikinn við Portúgal og samhliða fyrir HM.“ – kpt Áhyggjur af ferðalögunum Frá æfingu landsliðsins í handbolta í aðdraganda EM. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a Hátíð í bæ FÓTBOLTI Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa og leikmaður enska landsliðsins, var í gær dæmdur og sviptur ökuréttindum í níu mán- uði eftir að hafa gengist við að hafa ekið undir áhrifum áfengis fyrr á árinu. Þá var Grealish sektaður um rúmlega áttatíu þúsund pund eða tæplega fjórtán milljónir íslenskra króna fyrir athæfið. Lögreglan í Birmingham birti myndband af brotum Grealish í gær, sem reyndi að keyra heim undir áhrifum áfengis úr samkvæmi undir lok mars. Í myndbandinu sést Grealish klessa á nærliggjandi bíla. Miðjumaðurinn var aftur stöðvaður af lögreglu í haust fyrir kæruleysis- legt aksturslag yfir hámarkshraða stutt frá æfingasvæði Villa. – kpt Dæmdur fyrir ölvunarakstur 1 6 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.