Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Page 28
28 FÓKUS Jólagjafir fyrir fólkið sem á allt Sælla er að gefa en þiggja, segir máltækið, en hvað gefur maður þeim sem ekki hefur skilað inn óskalista? Hér koma nokkrar skotheldar hugmyndir sem gætu slegið í gegn hjá „allt“ fólkinu. Það er að segja fólki sem á allt – eða segist ekki vanta neitt. Nú eða lufsaðist ekki til þess að skila inn óskalista. 18. DESEMBER 2020 DV BOTNLAUS BRÖNS Public House er með botnlausan bröns föstudaga til sunnudaga. Allur matur sem þú getur í þig látið í tvær klukkustundir. Þú getur keypt gjafabréf án drykkja fyrir 4.990 krónur eða með drykkjum á 5.990 krónur. KAFFIKLÚBBUR Hver elskar ekki gott kaffi og hvað er betra en að fá nýtt og spenn- andi kaffi í hverjum mánuði til að smakka? Gefðu vini þínum áskrift að Kaffiklúbbnum, þú getur keypt gjafabréf á kaffiklubburinn.is og valið um þriggja mánaða áskrift á 8.890 krónur, sex mánaða áskrift á 16.990 krónur og eins árs áskrift á 33.990 krónur. GRÍNVERK Hvernig væri að styðja við íslenskt handverk og gefa gott grín um leið? Hannyrðasnillingurinn Dóra Lind Vig- fúsdóttir selur handsaumaðar myndir í Jólaþorpinu í Hafnarfirði auk þess sem hægt er að panta í gegnum síðu hennar á Instagram – Dóra blessi heimilið. Það er aldrei til of mikið grín! Verð: 5.500 krónur. ILMKERTI OG BLÓMAPOTTUR Ef þú vilt gera vel við vin þinn og umhverfið eru þessi ilmkerti frábær lausn. Þegar kertið er brunnið upp er hægt að nota ílátið sem blómapott. Það er gat í botn- inum, þú tekur bara límmiðann af, setur lokið undir og þá ertu komin með fallegan pott. Kertin fást í Mjöll, fallegri íslenskri verslun í Hamraborg og á mjoll.is. Minni kertin eru á 3.800 krónur og stærri kertin kosta 6.800 krónur. MYND/KAFFIKLUBBURINN.IS MYND/MJOLL.IS MYND/PUBLIC HOUSE MYND/AÐSEND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.