Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Page 31
ADHD-JÓL Jólin eru tími ljóss og friðar, sam- verustunda og notalegheita. Þau geta samt verið streituvaldandi og einkum hjá fólki með ADHD sem á oft erfitt með rútínuleysið. D r. Drífa Björk Guð-mundsdóttir sálfræð-ingur ræddi við DV um hátíðirnar og ADHD, en hún hélt nýlega fyrirlestur um það efni hjá ADHD-sam- tökunum. Drífa segir jólin geta reynst mörgum erfið, en það séu þó til leiðir til að létta á streitunni. Erill og streita Þó að jólin séu yfirleitt álitin tími fyrir notalegheit, kúr og samverustundir þá er að ýmsu að huga í aðdraganda jóla og fyrir fólk með ADHD, sem gjarnan á erfitt með að skipu- leggja sig, geta jólin valdið álagi og streitu. „Um jólin er mikill almenn- ur erill og streita sem fer ekki vel í fólk með ADHD því það á oft erfitt með að útiloka áreiti sem við hin getum alla jafna síað burt. Því geta hátíðirnar verið svolítið yfirþyrmandi og valdið streitu sem ADHD-fólk á erfiðara með að tækla.“ Fjölskylduboð, jólagjafaleið- angrar, matseld, jólasveinar og margt annað getur leitt til þess að ADHD-fólk oförvist. Eins er dagleg rútínan sett í uppnám þar sem reglu og festu er kastað fyrir róða fyrir hina og þessa jólahefðina. „Fyrir þá sem eru með ADHD er best að hlutir séu í sem föstustu skorðum. Það auðveldar þeim lífið að vita svona nokkurn veginn hvað er að fara að gerast, hvar, hve- nær, hvernig, með hverjum og hvers vegna.“ Jólin riðla þó öllu og verk- efnin geta hlaðist upp en er gjarnan frestað, en frestun er eitthvað sem margir með ADHD kannast vel við. „Í öllum erlinum sem fylgir jólunum geta hlutir farið að virka óyfirstíganlegir,“ segir Drífa. ADHD-jól í ár Drífa segir að jólin í ár gætu endað með að verða ADHD- jólin miklu. Vegna kórónu- veiru faraldurs hafa lands- menn verið beðnir um að velja sér tíu aðstandendur í jólakúlu og forðast að hitta aðra en þá sem í kúlunni eru. Það hefur sett strik í reikninginn gagn- Öll spennan í kringum jólin getur valdið oförvun hjá ADHD-fólki. MYND/GETTY Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is vart hefðbundnum og fjöl- mennum fjölskylduboðum. Fyrir ADHD-fólk getur þetta leitt til minna áreitis og meiri afslöppunar. „Rútínan fer oft úr skorðum á jólunum. Jóla- veislur eru haldnar seint sem ruglar svefninn hjá krökk- unum og setur allt á haus. Það verður minna um þetta núna.“ Jafnvel jólaverslunin er með breyttu sniði en fleiri og fleiri nýta sér netið til að ljúka jólainnkaupunum. Eins birtist stöðugt áminning um að jólin í ár verði óhefðbundin og öðru- vísi. ADHD-fólki, sem þrífist gjarnan best í fyrirsjáanleika og skipulagi, henti það sérlega vel. „Þetta er kannski stöðug áminning um að það þurfi að hugsa fram í tímann og kannski meiri hvatning fyrir fólk með ADHD til að setja sig í þau spor.“ Sjónrænt skipulag „Svona eru jólin,“ sungu Eyj- ólfur Kristjánsson og Björgvin Halldórsson forðum. En lagið á ekki við núna enda verða jólin í ár vonandi þau einu sem kórónaveiran hefur áhrif á. Tíðindi um bóluefni sem er á næsta leiti gefa fullt tilefni til bjartsýni og því má fastlega reikna með því að jólin að ári verði öllu hefðbundnari. Drífa segir ýmislegt fært til að gera ADHD-jól auðveldari. „Helst er hægt að gera það með því að reyna að skapa fyrirfram yfirsýn yfir jóla- mánuðinn og hvað það er sem þarf að gera að hverju sinni. Það má til dæmis gera með því að verða sér úti um stórt dagatal, hengja upp á vegg og skrá þar allt það helsta sem muna þarf eftir og gera. Til dæmis ef það er jólapeysu- dagur, jólavinadagur eða álíka í skólum barna sem á það til að gleymast hjá fólki með ADHD. Dagatöl og allar sjónrænar ábendingar eru af hinu góða. Þá er gott að fara með börn- unum yfir dagatalið kvölds og morgna og eins er hægt að benda börnunum á dagatalið ef þau eru orðin óþreyjufull, stressuð eða kvíðin.“ Það er þó mikilvægt að hafa dagskrána ekki of þétta. „Það er mikilvægt að hafa pláss í dagatalinu til að slaka á og njóta og til að draga úr áreiti.“ Eins bendir Drífa á að það sé hægt að hugsa út fyrir ramm- ann og finna auðveldar leiðir til að minnka álag. „Ekki fara í búðir á háannatímum þegar áreitið er sem verst. Jafnvel væri gott að reyna að versla á netinu, þó svo kórónaveiran sé ekki lengur til staðar. Eins er hægt að dreifa verkefnum á lengri tíma. Svo er hægt að reyna að halda daglegri rútínu og víkja ekki of mikið frá hefð- bundnum háttatíma. Því þeg- ar svefntími, fullorðinna og barna, fer úr skorðum þá tekur það tíma að aðlaga hann aftur rútínunni, það tekur líkamann tíma að jafna sig.“ Sveigjanlegir jólasveinar Jólasveinarnir þrettán geta líka orðið streituvaldur meðal ADHD-barna. Eftirvæntingin og spennan getur verið svo mikil að þau missa úr svefn og hreinlega ráða ekki við sig. Drífa segir mikilvægt fyrir jólasveina að horfa á hegðun ADHD-barna í heild. Ekki láta einn atburð skemma ann- ars góðan dag hjá barninu. Ef barn hegðar sér vel meirihluta dags, þá skiptir það kannski ekki öllu máli þó að það bregði aðeins út af um kvöldið þegar barnið er orðið þreytt og óró- legt. „Við myndum aldrei gera svo að hrósa bara börnunum okkar ef þau eru góð í öllu. Það er nú þannig að ef börnin okkar standa sig vel í flestu þá erum við yfirleitt mjög jákvæði í þeirra garð. Það er alveg eins með jólasveininn.“ Fyrir þau börn sem eiga erfitt með að sofa þegar von er á jólasveini bendir Drífa á nokkuð sem gæti komið að gagni. „Jólasveinar eru ekki bara vakandi á nóttunni. Við sjáum þá oft á daginn úti á götum eða á hinum og þessum við- burðum. Foreldrar gætu því samið við jólasveininn um að koma við þegar barnið er í skólanum, frístund eða á æfingu.“ n Jólasveinar eru ekki bara vak- andi á nóttunni. FÓKUS 31DV 18. DESEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.