Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Síða 32
32 FÓKUS
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
María Birta, leikkona, fyrirsæta og athafna-kona með meiru, býr í
Las Vegas ásamt eiginmanni
sínum listamanninum Ella
Egilssyni.
Áður en kórónuveirufar-
aldurinn skall á fór hún með
hlutverk nunnu í sýningunni
Atomic Saloon sem naut mik-
illa vinsælda.
Einn pakki á dag
María Birta og Elli ætla að
verja jólunum í Vegas. „Við
höfum ekki alveg ákveðið
hvernig jólin verða. Við höfum
varla rætt það,“ segir María
Birta.
„Hver einustu jól hérna í
Vegas eru vanalega haldin
heima hjá einum yfirmanni
mínum. Hún býður öllum
listamönnunum heim til sín,
yfir fimmtíu manns, sem taka
fjölskyldurnar sínar með og úr
verður alveg mega skemmti-
leg veisla.“ María Birta og Elli
fóru í veisluna í fyrra. „En því
miður verður það ekki í ár af
augljósum ástæðum,“ segir
hún.
María Birta er vel gift og
segir að Elli sé mun betri í að
skipuleggja svona daga heldur
en hún. „Hann er lærður mat-
reiðslumaður svo ég veit alla-
vega að vegan jólamaturinn
okkar verður eitthvert svaða-
legt gúmmelaði. Ég á líka
mjög erfitt með að bíða með
að gefa gjafir svo ég hef verið
að gefa Ella einn pakka á dag
síðan í nóvember.“
María Birta gaf Ella af-
mælisgjöf í byrjun desember,
þó að hann eigi ekki afmæli
fyrr en í apríl. Elli mun fagna
fertugsafmæli á næsta ári
og vildi bara eitt í afmælis-
gjöf; vintage Cadillac. María
Birta fann hinn fullkomna
bíl, þó nokkrum mánuðum of
snemma.
Tölurnar sexfölduðust
Fyrir um mánuði voru sótt-
varnareglur hertar í Vegas.
„Þá fóru samkomubann úr
250 manns í aðeins 50 manns.
Þetta hefur haft mikil áhrif á
mig og mína vinnu, en annars
engin önnur áhrif á okkur.
Við höfum verið í einangrun
hérna úti og aðeins hitt þrjár
manneskjur síðan í mars. Við Elli sér um eldamennskuna í ár. María Birta og Elli verða í Vegas um jólin.
María Birta og Elli hafa verið gift síðan í júlí 2014. MYNDIR/AÐSENDAR
18. DESEMBER 2020 DV
Vilja frekar skreyta pálma-
tré en búa til snjókarl
María Birta Bjarnadóttir verður í Las Vegas yfir hátíðarnar með eiginmanni sínum,
listmálaranum Ella Egilssyni. Hjónin taka faraldurinn mjög alvarlega og kvarta ekki
undan snjóleysinu í desember, enda mikið hrifnari af hitanum en íslenska frostinu.
tökum þetta mjög alvarlega og
erum að gera okkar besta til
að smitast ekki,“ segir María
Birta og bætir við að íbúar í
Vegas skiptist í tvo hópa.
„Annaðhvort tekur það
þessu alvarlega eða er alveg
búið að gefast upp. Hér er allt
opið og er búið að vera það í
marga mánuði þrátt fyrir að
Covid-tölurnar hafi sexfaldast
í nóvember,“ segir hún.
„Við sjáum hvað gerist. Ég
reyni að láta þetta ekki hafa
áhrif á mig. Ég reyni að vera
eins jákvæð og ég get, því ég
get allavega ekki gert neitt
meira sjálf til að stoppa þetta.
Það væri bara óskandi að
fleiri myndu halda sig meira
heima hjá sér.“
Einn dagur í einu
María Birta segist ekki hafa
hugmynd um hvenær hún
kemur næst til Íslands. „Ég
gæti verið kölluð aftur til
vinnu með sólarhrings fyrir-
vara. Svo veit ég að um leið og
ég er byrjuð aftur að vinna þá
fæ ég áreiðanlega ekkert frí í
heilt ár. Ég lifi bara frá degi
til dags núna, þetta kemur allt
í ljós,“ segir hún.
Það er óhætt að segja að veð-
urfarið í Vegas sé ólíkt veður-
farinu á köldu eyjunni okkar.
Það er mjög sjaldgæft að það
snjói og meðalhitinn er á bilinu
þrjár til fimmtán gráður. En
það getur verið heitara, eins
og á mánudaginn spáir átján
gráðu hita. Aðspurð hvort það
sé skrýtið að fagna jólunum í
svona miklum hita segist Mar-
ía Birta vera orðin vön því.
„Við Elli vorum eiginlega
búin að gera það að okkar jóla-
haldi að vera alltaf í Taílandi
um jólin ef við vorum ekki í
Los Angeles. Við fílum hita
mun betur en snjó svo við
njótum þess miklu betur að
skreyta pálmatrén úti í garði
en að búa til snjókarl,“ segir
hún. n
Við höfum
verið í ein-
angrun hérna
úti og aðeins
hitt þrjár
manneskjur
síðan í mars.