Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 40
40 FÓKUS
E rla Björnsdóttir er sál-fræðingur og doktor í líf- og læknavísindum.
Hún hefur sérhæft sig í rann-
sóknum á svefni og meðferð-
um gegn svefnleysi.
Svefnfiðrildin
Svefnfiðrildin er skemmtileg
og falleg saga sem útskýrir
mikilvægi svefns og hvíldar
fyrir börnum. Í bókinni er
einnig fróðleikur fyrir for-
eldra varðandi svefn barna og
svefndagbók sem hægt er að
fylla út með börnum.
„Mér hefur lengi fundist
vanta gott fræðsluefni um
svefn fyrir börn,“ segir Erla
um ástæðu þess að hún ákvað
að skrifa bókina.
„Fræðsla um svefn er
ekki hluti af námskrá í dag.
Börn læra um næringu og
hreyfingu í heimilisfræði og
íþróttum, en læra sáralítið
um svefn sem er mjög furðu-
legt því þetta er ein mikil-
vægasta grunnstoð heilsu.
Sjálf á ég fjögur börn og hef
mikið reynt að predika um
góðan svefn við þau. Ég var
einhvern tímann að tala við
fimm ára son minn um svefn
og var að útskýra fyrir honum
af hverju svefninn skiptir máli
og hvað væri að gerast inni í
líkama og heila þegar við
værum sofandi. Hann var svo
áhugasamur og spurði mig svo
margra skemmtilegra spurn-
inga þannig að ég fór að búa til
ævintýri til að segja honum.
Þá rann það upp fyrir mér
að það væri frábært að koma
þessu í þetta form. Börn eru
mjög móttækileg, áhugasöm
og spyrja spurninga. Svefninn
er mjög dularfullur og spenn-
andi, það er ofboðslega margt
sem er að gerast í svefni sem
er áhugavert og gaman fyrir
börn að vita.“
Svefninn jákvæður
Erla vill að við förum að líta
á svefninn með jákvæðari
augum.
„Mér hefur stundum fund-
ist eins og við tölum neikvætt
um svefninn. Leiðinlegt að
fara að sofa, við „hæpum“
það svolítið að vaka, eins og
börnum þykir spennandi um
áramótin að fá að vaka og
það er svo heillandi, en svo
er eins og það sé neikvætt
að fara í rúmið. Mig langaði
líka að varpa jákvæðu ljósi á
svefninn, hvað hann er góður
fyrir okkur, spennandi, hvað
er margt merkilegt að gerast
í heilanum og líkamanum þeg-
ar við sofum og hvað svefninn
hefur áhrif á margt í lífinu,
eins og hvernig okkur líður,
hversu heilsuhraust við erum,
hvernig árangur okkar er í
skóla, íþróttum, tómstundum
og svo framvegis.“
Erla segir fræðslu um svefn
fyrir börn standa til bóta.
„Landlæknisembættið hefur
verið að vinna í þessum mál-
um ásamt mér og fleirum,“
segir hún. „Ég vona svo sann-
arlega að það verði breyting
BEST AÐ BRJÓTA EKKI UPP
RÚTÍNU YFIR HÁTÍÐARNAR
Erla segir það vera margt sem gerist í svefni sem er áhugavert og gaman fyrir börn að vita. MYND/ANTON BRINK
þarna á og ég hef fulla trú á
því. Við erum alltaf að verða
meðvitaðri um mikilvægi
svefns. Það hlýtur að komast í
námskrá á næstu árum,“ segir
hún.
„Þetta á að vera almenn
skynsemi en er það ekki.
Það er ótrúlega mikilvægt
að fræða og auðvitað byrja
snemma og beita forvörnum,
þá er ekkert betra en að byrja
þegar börnin eru ung.“
Fyrir alla
Erla segir að bókin hafi upp-
haflega verið stíluð á börn
fjögurra til átta ára, en eftir
að hafa fengið fjölda skilaboða
frá foreldrum barna á öllum
aldri segist hún vera viss um
að bókin sé fyrir alla.
„Bókin hefur verið að
gagnast mun eldri börnum
en ég reiknaði með, og líka
börnum sem hafa til dæmis
verið hrædd við að sofa ein,
hrædd við myrkrið, með ein-
hver svefnvandamál eða erf-
itt að koma þeim í rúmið á
kvöldin. Þetta er allt saman
útskýrt í bókinni. Svo er líka
heilmikill fróðleikur í þessari
bók fyrir foreldra, ömmur og
afa og fleiri. Þannig að hún
getur í raun og veru hentað
öllum aldri,“ segir hún.
Foreldrar fyrirmyndir
Í bókinni nefnir Erla að for-
eldrar ættu að vera börnum
sínum fyrirmyndir þegar
kemur að heilbrigðum svefn-
venjum.
„Við ættum sjálf að vera að
skapa góðar svefnvenjur, ekki
vera að þamba orkudrykki,
ekki vera í símanum fram á
kvöld, heldur setja svefninn í
forgang og allt þetta sem við
erum að segja við þau, því
þau auðvitað gera eins og þau
sjá. Ég held að mikilvægasta
forvörnin eigi sér stað inni á
heimilinu,“ segir hún.
Best að halda rútínu
Svefninn á það til að fara úr
skorðum yfir hátíðirnar og
mælir Erla með að fólk haldi
sem mest í rútínuna.
„Það vill oft gerast í svona
fríum að maður fer að sofa
seinna og vakna seinna, og
þetta getur oft skapað víta-
hring sem verður erfitt að
komast úr úr þegar nýja árið
gengur í garð og fríið klárast.
Börnum líður best í sínum
ramma og þau fá bestan
svefn ef þau fara að sofa á
sínum eðlilegu tímum. Ég
held að maður græði í raun
og veru mjög lítið á að leyfa
þeim að vaka fram eftir og
vera kannski að vonast eftir
því að þau sofi lengur. Mitt
ráð er að reyna að halda rút-
ínunni eins eðlilegri og hún
er og frekar vera með eitt-
hvað skemmtilegra að gera á
morgnana þegar við vöknum
snemma. Síðan ef rútínan fer
í rugl og maður dettur í það
að snúa sólarhringnum við þá
er mjög mikilvægt að byrja að
rétta sig af nokkrum dögum
áður en maður mætir í skóla
eða vinnu, það er ekki mjög
sniðugt að mæta vansvefta til
vinnu eða í skóla á nýju ári,“
segir hún.
Jólasveinarnir hjálpa
Erla segir að það geti hjálpað
að setja á fót umbunarkerfi til
að hjálpa til með svefninn.
„Aftast í bókinni er fróð-
leikur fyrir foreldra um
svefn og svefndagbók sem er
hægt að halda með börnum
til að setja jákvæð markmið
varðandi nætursvefn. Eins
og að gefa límmiða ef þau
fara að sofa á réttum tíma,
eða sofa nóg. Þannig að það
getur verið mjög sniðugt að
nota svona umbunarkerfi. Til
þess einmitt að gera svefninn
jákvæðan og skemmtilegan,“
segir Erla og nefnir jólasvein-
ana sem dæmi.
„Þeir hjálpa mjög mikið
til í desember. Þá vilja allir
fara snemma að sofa og sofa
vel, þá sér maður hversu vel
svona umbunarkerfi virka
fyrir börn.“ n
Erla Björnsdóttir hefur lengi rannsakað svefn og gaf nýlega út bókina
Svefnfiðrildin sem útskýrir mikilvægi svefns og hvíldar fyrir börnum
á skemmtilegan hátt. Bókin geymir auk þess fróðleik fyrir foreldra.
18. DESEMBER 2020 DV
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Svefnfiðrildin er tilvalin bók
fyrir börn sem og foreldra.