Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Síða 44
Uppáhaldssósan hans Alberts Albert Eiríksson, matarbloggari og sósuséní, segir að þessi sósa sé í uppáhaldi hjá sér. Koníak, sveppir og rjómi hljóta að skapa einhverja snilld. „Það er kveikt í koníakinu til að losna við áfengið úr víninu, já, ég veit: Illa farið með gott vín… Það þarf að fara varlega þegar sveppir eru flamberaðir. Sveppir eru steiktir á vel heitri pönnu, koníaki hellt yfir og loks kveikt í. Æfingin skapar meistarann, best er að byrja með mjög lítið af koníaki og smá auka það,“ segir Albert. 1 askja sveppir, skornir í bita 2 msk. góð olía eða smjör 2-3 msk. koníak ½ l rjómi 1 askja rjómaostur með svörtum pipar – 125 g 1 msk. hunang kjötkraftur Smá sósulitur Salt ef þarf Hitið olíuna á pönnu og steikið sveppina, hellið koníaki yfir og kveikið í. Bætið við rjóma, smurosti, hunangi, kjötkrafti, sósulit og salti. Sjóðið í nokkrar mínútur og smakkið til. Sósuna má þykkja með maisena- mjöli ef ykkur finnst hún enn þá of þunn. Pakkasósuredding sem enginn mun gruna þig um Hamborgarhryggssósa Berglind Hreiðarsdóttir matar- bloggari á gotteri.is er ekki hrædd við að stytta sér leið, hvað þá þegar útkoman er dásamlega góð. 2 skalottlaukar 2 msk. smjör 1 pk. Toro Brun Saus 1 pk. Toro Saus til Steg 500 ml rjómi 350 ml vatn 1 msk. fljótandi svínakraftur 1 tsk. rifsberjasulta Saxið laukinn smátt og steikið upp úr smjöri við miðlungshita þar til laukurinn mýkist. Hellið vatni og rjóma út í pottinn og pískið duftið úr báðum sósupökk- unum saman við. Hitið að suðu og hrærið reglulega í allan tímann. Bætið krafti og sultu saman við og leyfið sósunni að malla þar til annað er tilbúið og hrærið reglu- lega í á meðan. Kalkúnasósan hans Sigga Hall Sigurður Hall matreiðslumeistari hefur löngum verið talinn sósu- kóngur Íslands. Siggi er ekki óvan- ur því að fá símtöl frá ókunnugum á aðfangadag þar sem hann er spurður út í eldamennsku sem hann svarar samviskusamlega. Siggi gaf út bókina Jólaréttirnir að hætti Sigga Hall árið 2012 þar sem þessa gersemi er að finna. 150 g ferskir blandaðir villisveppir 3-5 skalottlaukar, fínt saxaðir 2 greinar timjan 2 lárviðarlauf 2 dl hvítvín 7 dl kalkúnasoð Heimagert eða keypt gæðasoð 2½ dl rjómi Salt og hvítur pipar úr kvörn 1 glas púrtvín eða sérrí Skerið sveppina í jafna bita. Bræðið smjörið í djúpum potti og þegar það byrjar að freyða léttsteikið þá svepp- ina þar í ásamt skarlottlauknum, tim janinu og lárviðarlaufunum. Létt- steikið allt án þess að brúna. Hellið hvítvíninu yfir og látið sjóða aðeins saman. Bætið soðinu út í og látið sjóða vel saman. Bætið rjóm- anum út í og þykkið ef vill. Látið suðuna koma upp. Saltið og piprið efti smekk og bætið víninu út í að lokum. 44 MATUR 18. DESEMBER 2020 DV Fimm fáránlega góðar sósur Rétta sósan setur svo sannarlega punktinn yfir i-ið þegar góða veislu gjöra skal. Hér koma stór- kostlegar sósur sem redda nánast hvaða mat sem er. Leyfðu þér að gera ríflega af sósunni – jólin eru nú bara einu sinni á ári og ef það er afgangur af matnum er hann lítið spennandi án sósu. MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.