Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 52
52 SPORT 433
Arnór sést hér fagna eftir að hafa skorað fyrir CSKA Moskvu, liðið sem hann spilar nú fyrir. MYNDIR/GETTY
H inn 21 árs gamli Arnór Sigurðsson er einn efnilegasti knatt-
spyrnumaður Íslands. Hann
fór aðeins 17 ára gamall frá
ÍA á Akranesi, til sænska liðs-
ins Norrköping, þar sem hann
gat sér gott orð. Hann vakti
seinna athygli hjá stærri lið-
um í Evrópu, sem endaði með
því að hann samdi við stærsta
lið Rússlands, CSKA Moskvu.
Fyrsta tímabil Arnórs hjá
CSKA Moskvu gekk eins og
í sögu. Hann var reglulegur
byrjunarliðsmaður og átti frá-
bæra frammistöðu með liðinu.
Meðal annars gegn spænska
stórliðinu Real Madrid í
Meistaradeild Evrópu, þar
sem hann skoraði og átti stoð-
sendingu í fræknum sigri. Það
hefur hins vegar aðeins hallað
undan fæti á yfirstandandi
tímabili og hefur Arnór þurft
að sætta sig við meiri bekkjar-
setu en hann er vanur.
„Þegar hlutirnir gerast
svona hratt og það gengur vel
í byrjun, þá kemur auðvitað
pressa með því og það eru
gerðar væntingar til manns.
Það er gott því þannig vill
maður hafa það en tímabilið
núna hefur ekki spilast alveg
eins og maður hefði viljað. Það
koma góðir tímar og slæmir
tímar í þessu. Ég held að það
sé eitthvað sem allir knatt-
spyrnumenn ganga í gegnum.“
Hann er hins vegar með
báða fætur á jörðinni og lætur
mótlætið ekki sigra sig.
„Ég hef verið svolítið inn
og út úr liðinu á þessu tíma-
bili en það hefur samt sem
áður gengið vel þegar ég fæ
tækifæri í byrjunarliðinu. Ég
hef verið að skila mínu inni á
vellinum. Það er að sjálfsögðu
pirrandi að detta út úr byrj-
unarliðinu þegar manni finnst
maður ekki eiga það skilið, en
svona er fótboltinn og maður
verður að vera jafn mikið
fókus eraður þegar það gengur
illa hjá manni og þegar geng-
ur vel. Ég vil gera betur og vil
fá að spila meira og vinn að
því á hverjum degi.“
Fékk traustið í Svíþjóð
Arnór hóf sinn atvinnumanna-
feril hjá sænska liðinu Norr-
köping. Þar fékk hann að
þróa sinn leik áfram í góðu
umhverfi þar sem hann naut
mikils trausts.
„Þjálfari Norrköping var
stór ástæða þeirra framfara
sem ég tók á þessum tíma.
Hann er frábær í því að vinna
með ungum leikmönnum og
tók mig snemma að sér og lét
mig vita hvernig hann sæi
mig fyrir sér í liðinu og til
hvers hann ætlaðist af mér.
Ég fékk traust og spiltíma hjá
Norrköping og hlutirnir gengu
upp hjá mér. Það varð til þess
að ég gat síðan tekið næsta
skref á ferlinum hjá CSKA
Moskvu.“
Reynsla Norrköping af Ís-
lendingum er góð. Arnór,
sem er fæddur og uppalinn
á Akranesi, sló í gegn þar og
nú er annar Skagamaður að
feta í hans fótspor hjá félag-
inu. Hinn 17 ára gamli Ísak
Bergmann Jóhannesson er
fastamaður í sænska liðinu og
það gleður Arnór að sjá hann
blómstra undir sama þjálfara
og hann hafði hjá Norrköping.
„Ég og Ísak höfum þekkst
síðan úr æsku. Hann er góð-
ur vinur litla bróður míns og
mig minnir meira að segja að
ég hafi verið að þjálfa hann
á einhverjum tímapunkti.
Það er auðvitað mjög gaman
að sjá hversu vel hann er að
standa sig. Ég hef alltaf verið
meðvitaður um að hann gæti
náð langt og það er ótrúlega
gaman að sjá hann standa sig
svona vel hjá mínu gamla fé-
lagi og ennþá skemmtilegra að
hann sé að spila í sama treyju-
númeri og ég hafði hjá félag-
inu.“
Arnór segir að það sé margt
líkt með vegferð hans og Ísaks
Bergmanns.
„Sagan er nánast að endur-
taka sig núna með Ísak Berg-
mann. Hann fékk traustið og
hefur verið að spila vel. Þetta
sýnir það bara svart á hvítu
hversu miklu máli það skiptir
að ungir og efnilegir leikmenn
séu í rétta umhverfinu og með
góða leiðsögn. Það gerir gæfu-
muninn.“
Heiður að spila fyrir Ísland
Arnór hefur spilað með öllum
yngri landsliðum Íslands og á
einnig að baki 11 A-landsleiki.
Hann fyllist stolti í hvert ein-
asta skipti sem hann er valinn
í landsliðið.
„Það er alltaf heiður að vera
valinn í landsliðið og ég er
mjög stoltur af því að fá tæki-
færi til þess að leika fyrir
Íslands hönd og með þessari
gullkynslóð leikmanna sem
allir þekkja. Það eru forrétt-
indi að spila með þeim.“
Íslenska landsliðið hefur
Það eru forrétt-
indi að fá tæki-
færi til þess að
vinna við það
sem manni finnst
skemmtilegt að
gera. Þetta hefur
verið draumur
minn frá því í
barnæsku.
UPPLIFIR ÆSKUDRAUMINN
SEM ATVINNUMAÐUR
Arnór Sigurðsson hefur vakið verðskuldaða athygli á knattspyrnu-
vellinum. Hann spilar nú fyrir stærsta lið Rússlands, CSKA Moskva.
Hann er afar metnaðarfullur og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni.
18. DESEMBER 2020 DV
Framhald á síðu 54 ➤
Aron Guðmundsson
ritstjorn@dv.is