Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 43

Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 43
– Hvernig slakarðu á? Slaka mest á í sól og hita og helst við strönd. Mundi ekki skemma að hafa góðar vinkonur með. Finnst líka ótrúlega nærandi að fara í góðan göngutúr úti í náttúrunni, vera heima og lesa góða bók eða horfa á eitthvað skemmtilegt. Gott spjall við góðar vinkonur er líka góð hreinsun. – Hver var uppáhaldstón- listin þín þegar þú varst u.þ.b. sautján ára? Hlustaði bara á allt en Madonna var í miklu uppáhaldi og svo var ég mjög hrifin af Fleetwood Mac. – Uppáhaldstónlistartímabil? Ætli ég verði ekki að segja 80’s. – Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Ég er voðalega mikið að hlusta á íslensk lög núna ... Jón Jónsson og nýja lagið hans Dýrka mest er pínu að heilla í dag. Spurning hvað það verður á morgun. – Hvers konar tónlist var hlust- að á á þínu heimili? Bara allt og ekkert. – Leikurðu á hljóðfæri? Nei, sem betur fer fyrir alla! Hef enga hæfileika á því sviði. – Horfirðu mikið á sjónvarp og hvernig? Get ekki sagt að ég horfi mikið á sjónvarp en ég tek stundum tarnir og horfi mikið. Þá verður Netflix eða sjónvarp Símans helst fyrir valinu. – Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Ekkert ómissandi þar. – Besta kvikmyndin: Pretty Woman og Holiday. – Hver er uppáhaldsbókin þín og/eða rithöfundur? Verð að segja Toggi Lilju en Arn- aldur er líka í miklu uppáhaldi. – Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Börnin segja að ég sé Íslands- meistari í að taka til svo ætli það sé ekki það. – Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Góð spurning ... verður að spyrja einhvern annan að því. – Hvernig er eggið best? Finnst egg ekkert sérstaklega góð. – Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Fer stundum í taugarnar á mér hvað ég er skipulögð og tek hlutina alvarlega ... vantar smá kæruleysi í mig. – Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óheiðarleiki og slúður. – Uppáhaldsmálsháttur eða til- vitnun: Do what you love, love what you do – Hver er elsta minningin sem þú átt? Þegar ég var u.þ.b. tveggja, þriggja ára og Brynjar bróðir manaði mig til að stökkva niður af kommóðu og það fór ekki betur en svo að ég missti framtenn- urnar og var tannlaus ansi lengi. – Orð eða frasi sem þú notar of mikið: Man ekki eftir neinum. – Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu? Hugsa að ég færi til Madison Wis- consin þar sem ég bjó um tíma hjá elsku Eyja og Addý. Dásamlegur tími og svo lærdómsríkur. Staður sem ég hugsa oft og mikið til. – Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Liljan, nýtt upphaf ... – Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Jennifer Aniston. Langar að vita hvort hún er enn skotin í Brad Pitt. – Hvaða þremur persónum vild- irðu bjóða í draumakvöldverð? Já það er ekkert annað! Klárlega væri mjög atyglisvert að borða með Donald Trump og Kára Stefáns. Langar mjög mikið að vita hvað er að gerast í hausnum á þeim en ekki svo viss um að það væri drauma- kvöldverður. Ætli draumakvöld- verðurinn yrði ekki með mömmu og Eyja frænda. Gæfi mikið fyrir að hitta þau en til að krydda þetta smá væri ekki leiðinlegt að hafa Brad Pitt eða David Beckham með. – Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til? Erfitt, skrýtið, óvenjulegt, krefjandi, lærdómsríkt. Góð æfing í þolinmæði! – Er bjartsýni fyrir sumrinu? Já, mjög og full tilhlökkunar. Hlakka til að fara út í sumarið og góða veðrið sem verður vonandi í sumar. – Hvað á að gera í sumar? Ekki mikið planað. Ætla mest að vera heima og njóta þess að vera með börnunum mínum. Þau og þær stundir sem við eigum saman eru þær allra dýrmætustu. Stelpan mín er í keppnisgolfi og það fer mikill tími í að fylgja henni. Þær stundir gefa okkur mikið. – Hvert ferðu í sumarfrí? Það er bara mjög misjafnt. Ég elska sól og hita en í ár verður íslenska sumarið að duga. Hver veit nema ég bregði mér til Eyja í fyrsta sinn. – Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim? Það er góð spurning en ég er sjálf alls ekki nógu dugleg að skoða mig um hér! Margt spennandi að sjá og margt sem heillar. Færum einn góðan Reykjaneshring og skoðuðum helstu náttúruperlur svæðisins eins og Sandvík, Gunnuhver og Brúna milli heimsálfa. Hægt væri að ganga upp á Þorbjörn eða eiga góða stund í Sólbrekkuskógi, skella sér í Bláa lónið eða sund. Skoða listasöfn bæjarins eins og Duus og Hljóma- höllina og enda á einhverjum af þeim góðu veitingastöðum sem eru hér á svæðinu. – Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu ... ... elska sól og hita og Ameríku svo ég held að það væri frí sem mundi heilla mig mest núna. Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg. VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 43 Er hún skot in í Pitt?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.