Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 44
Einn harðasti Njarðvíkingurinn hér á landi er út-
varpsmaðurinn Doddi litli en hann heitir Þórður
Helgi Þórðarson. Ljúf rödd hans hefur lengi
heyrst á öldum ljósvakans á öllum tímum sólar-
hringsins og það tók hann um tuttugu ár að
komast á toppinn, á Rás 2 allra landsmanna, en
þangað stefndi strákur alla tíð. Doddi litli er líka
tónlistarmaður og segist vera mikill „eitís“-gaur.
Ný lög eru að koma úr framleiðslu þessa dagana
og hann kynnir „Desire“ 19. júní en fleiri koma svo
í kjölfarið. Fjölskyldan er öll þáttakandi í mynd-
bandi sem fylgir og einnig fyrrverandi borgar-
stjóri. Við heyrðum í Dodda og spurðum hann út í
tónlistina og fleira til.
– Við fengum óljósar fréttir
af nýju lagi „ykkar“ Dodda og
Love Guru. Hvað geturðu sagt
okkur frá því?
Þetta er skrítin fæðing á dægur-
lagi, ég á hræðilega ljót jakkaföt
inni í skáp en aldrei viljað henda
þeim (gætu komið sér vel einhvern
tíma). Síðast þegar ég var að taka til
í skápnum sá ég þessi blessuðu föt
og hugsaði ... nú fara þau! En ein-
hver karl á öxlinni sagði: „Þú getur
notað þau í myndband.“ Þessi setn-
ing hefur truflað mig í góðan tíma
sem endaði á því að ég ákvað bara
að semja lag fyrir fötin. Ég var farinn
að gera tónlist sem Doddi og ég gat
gert eitthvað án þess að vera í gulum
Henson-galla. Dodda tónlist á að
vera mun alvarlegri en Love Guru en
af einhverjum völdum komst Guru í
textagerðina og varð lagið snemma
mjög Gurulegt.
Eins og fram hefur komið þá er ég
kallaður Doddi en Andri Freyr Við-
arsson, sjónvarps- og útvarpsmaður,
hefur lengið kallað mig D O Double
D III (sem er bara Doddi með Andra
stælum). Hann var mikið að vinna
með þetta gælunafn þegar ég var að
semja textann og auðvitað rataði það
inn í textann. Lag sem átti að vera
Doddalag en breyttist í Love Guru-
lag þar sem endalaust er sungið um
D O Double D III. Það auðvitað gekk
ekkert upp svo þetta endaði bara sem
Doddi Feat. Love Guru.
Þetta er rosalega langt frá öllu sem
ég hef gert á æfinni, þarna syng ég og
reyni meira að segja að gera það vel.
Ég er ekki viss um að einhver hafi
gert ráð fyrir að heyra Love Guru eða
Dodda syngja R og B skotið diskó. Ég
held að forvitnir ættu að gera sér ferð
á Spotify 19. júní bara til að heyra
þennan drumb reyna að syngja.
– Og eitthvað meira en bara
lag, plata jafnvel?
Ég, eins og örugglega margir, hef
gengið með þann draum að gera
plötu með minni tónlist. Ég hef bara
aldrei haft sjálfstraust til þess, aldrei
þorað því. Love Guru-kvikindið er
allt annað, þar er ég bara að fíflast
og gera frekar leiðinlega tónlist. Þar
er ég bara að hugsa um að skemmta
fólkinu á ballinu, mikið hopp, öskur
jakkaföt
Fór í eldgömul
og gerði nýtt lag
Páll Ketilsson
pket@vf.is
44 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.