Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 55
Markmið og væntingar
sumarsins:
Að spila góðan fótbolta sem skilar
okkur upp um deild.
Helstu styrkleikar liðs:
Margar heimastúlkur spila með
liðinu og frábær liðsheild. Liðið er
mjög ungt og efnilegt og á fram-
tíðina fyrir sér.
Helstu veikleikar liðs:
Alltof margir ljóskur í einu liði ;-)
Annað:
Vonumst við til að sjá sem flesta
í stúkunni að hvetja okkur að ná
markmiði okkar í sumar.
Áfram Grindavík!
Þjálfarateymi:
Aðalþjálfari: Ray Anthony Jónsson.
Aðstoðarþjálfari: Benóný Þórhallsson.
Markmannsþjálfari: Maja Majewski.
Leikmannahópur:
Veronica Smeltzer (m), Birta María Pétursdóttir (ný í
meistaraflokk), Berglind Rún Þorsteinsdóttir, Katrín
Lilja Ármannsdóttir, Guðný Eva Birgisdóttir, Mar-
grét Hulda Þorsteinsdóttir (frá Keflavík), Una Rós
Unnarsdóttir, Júlía Ruth Thasaphong, Sigurbjörg
Sigurpálsdóttir (m), Þorbjörg Jóna Garðars-
dóttir, Birgitta Hallgrímsdóttir, Tinna Hrönn
Einarsdóttir, Sigurbjörg Eiríksdóttir, Inga
Rún Svansdóttir, Ása Björg Einarsdóttir,
Áslaug Gyða Birgisdóttir, Emma Fanndal
Jónsdóttir (ný í meistaraflokk), Unnur Stef-
ánsdóttir, Birta Kjærnested (kom frá FH),
Viktoría Ýr Elmarsdóttir (ný í meistaraflokk)
og Írena Björk Gestsdóttir.
Fyrirliði:
Guðný Eva Birgisdóttir.
Guðný Eva Birgisdóttir,
fyrirliði Grindavíkur.
Meistaraflokkur kvenna í Grindavík leikur nú í
annari deild eftir að hafa fallið í fyrra, fyrsti leikur
þeirra í Íslandsmótinu verður gegn Hömrunum
á Akureyri sunnudaginn 21. júní klukkan 16:00.
Grindavíkurstúlkur ætla sér beint upp aftur og
byggja liðið á ungum og efnilegum leikmönnum.
Það er góður andi í liðinu og stutt í léttleikann hjá
Grindvíkingum eins og sést á svörum þeirra.
Markmaðurinn Veronica Smeltzer verður meðal lykilmanna
Grindavíkinga í sumar, hún lék mjög vel á síðasta
tímabili og var valin leikmaður ársins hjá Grindavík.
Grindavík, meistaraflokkur kvenna:
Margar heimastúlkur en ...
... alltof margar
ljóskur
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 55