Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 50
– Nafn:
Bergur Daði Ágústsson.
– Fæðingardagur:
18. júní 2001.
– Búseta:
Sunny Kef.
– Hverra manna ertu og hvar
upp alin?
Born and raised í Keflavík með smá
stoppi í Danmörku. Pabbi er Ágúst
Þór, verkfræðingur, og mamma Lóa
Rut, kennari í Holtaskóla.
– Starf/nám:
Var að útskrifast af hagfræðilínu í
Verzló en stefni á fjármálaverkfræði
í HR næsta haust.
– Hvað er í deiglunni?
Bara hvað fólk getur verið hrottalegt
við hvert annað. Á bjartari nótum
er fótboltatímabilið að byrja sem er
geggjað.
– Hvernig nemandi varstu í
grunnskóla?
Rólegur, þægur, sat samt aldrei á
minni skoðun.
– Hvernig voru framhaldsskóla-
árin?
Nýliðin, hröð, skemmtileg.
– Hvað er þitt draumastarf?
Er ekki búinn að átta mig á því, eitt-
hvað fjármálatengt.
– Hvernig bíl ertu á í dag?
Vínrauðum 2013 Hyundai i20, geggj-
aður bíll.
– Hver er draumabíllinn?
Langar lúmskt í einn Audi TT á
næstunni.
– Hvert var uppáhaldsleik-
fangið þitt þegar þú varst
krakki?
Legoið mitt, klárlega. Gaman að
byggja.
– Hvernig slakarðu á?
Lesa góða bók í rúminu, hlustandi á
góða tónlist.
– Hver var uppáhaldstón-
listin þín þegar þú varst u.þ.b.
sautján ára?
Bubbi og Valdimar ofarlega á lista
alla vegana.
– Uppáhaldstónlistartímabil?
Íslensk dægurlög bara svona yfir
höfuð.
– Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
Allt með áhugavert beat eða laglínu.
– Hvers konar tónlist var hlust-
að á á þínu heimili?
Bubbi, Bubbi, Bubbi.
– Leikurðu á hljóðfæri?
Hef verið að læra á trompet undan-
farin tólf ár.
– Er einhver tónlist sem þú
skammast þín fyrir að fíla,
svona Guilty Pleasure?
Verður að vera klassísk tónlist
meðan ég er að læra.
– Horfirðu mikið á sjónvarp og
hvernig?
Mikið um YouTube og Netflix, orð-
ið langt síðan maður horfði á sjón-
varpsstöðvarnar.
– Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu?
Game of Thrones þegar það var í
gangi.
– Besta kvikmyndin?
Shawshank Redemption.
– Hver er uppáhaldsbókin þín
og/eða rithöfundur?
The Way of Kings eftir Brandon
Sanderson er í uppáhaldi.
– Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili?
Spila á hljóðfæri, litla systir mín
stefnir hins vegar á að ná mér í þeim
efnum.
– Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu?
Elda ofboðslega lítið, kannski hakk
og spagettí.
– Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu?
Ofhugsun.
– Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra?
Óverðskuldaður hroki.
– Uppáhaldsmálsháttur eða til-
vitnun:
Gott silfur er gulli betra – hef sem
sagt aldrei unnið neitt.
– Hver er elsta minningin sem
þú átt?
Örugglega að hlaupa gegnum kríu-
varp með afa, hann hélt á góðum
klappstól yfir höfðinu – held hann
hafi verið hræddari en við krakk-
arnir.
– Orð eða frasi sem þú notar of
mikið:
Díses kræst.
– Þú vaknar einn morgun í
líkama frægrar manneskju og
þarft að dúsa þar einn dag.
Hver værirðu til í að vera og
hvað myndirðu gera?
Tiger Woods, fara og taka hring og
vera kannski einu sinni undir 100 þá.
– Hvaða þremur persónum
myndir þú bjóða í drauma-
kvöldverð?
Michael Jordan, Lebron James og
Kobe Bryant.
– Hvernig hefur þú verið að
upplifa árið 2020 hingað til?
Mjög skrýtið, það var erfitt að síðasti
alvöru skóladagurinn í framhalds-
skóla skyldi hafa verið 13. mars. Svo
birtir núna til eftir útskrift.
– Er bjartsýni fyrir sumrinu?
Já, stefnir í frábært dómgæslusumar,
gott veður og góður fótbolti.
– Hvað á að gera í sumar?
Vinna, dæma mikið og smá eðlis-
fræði.
– Ef þú fengir gesti utan af landi
sem hafa aldrei skoðað sig um
á Suðurnesjum. Hvert myndir
þú fara með þá fyrst og hvað
myndir þú helst vilja sýna þeim?
Garðskaga, vanmetinn staður.
– Ef þú gætir hoppað upp í
flugvél og réðir hvert hún færi,
þá færirðu ...
... til Got Agulu í Kenía, Verzló hefur
tekið þátt í að byggja upp skóla þar
og hjálpuðum við sem vorum í
Góðgerðaráði núna til við að byrja
söfnun fyrir framhaldsskóla. Svo
er Austur-Afríka bara áhugaverður
staður.
Gott silfur er
gulli betra
Bergur Daði Ágústsson er bráðum nítján ára
Keflvíkingur sem lauk stúdentsprófi á dögunum
frá Verzlunarskóla Íslands og stefnir í fjármála-
verkfræði í haust.Hann segir að óverðskuldaður
hroki fari mest í taugarnar á sér og á skemmtilega
minningu af hræddum afa sínum með klappstól
yfir höfði sér í kríuvarpi. Bergur svaraði nokkrum
spurningum blaðamanns Víkurfrétta.
N
etspj@
ll
50 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.