Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 35
– Hvernig bíl
ertu á í dag?
Ég ek um á Land
Rover bifreið.
– Hver er
draumabíllinn?
Ég ætla að leyfa mér
að nefna tvo. Annars
vegar DeLorean bifreið árg. 1985
eins og notuð var í kvikmyndinni
Back to the Future. Hins vegar
flöskugrænn tveggja dyra Range
Rover Classic árg. 1980.
– Hvert var uppáhaldsleik-
fangið þitt þegar þú varst
krakki?
Það hlýtur að hafa verið bolti af
einhverju tagi.
– Besti ilmur sem þú finnur:
Íslenskur náttúruilmur. Þessi sem
er alltumlykjandi þegar gengið er í
fallegri íslenskri náttúru.
– Hvernig slakarðu á?
Gönguferðir og sund, svo eitthvað
sé nefnt. Líka skemmtilegir bíltúrar
þar sem markmiðið er að skoða
eitthvað fallegt eða áhugavert.
– Hver var uppáhaldstón-
listin þín þegar þú varst u.þ.b.
sautján ára?
Ég hlýt að þurfa að viðurkenna
að það hafi verið einhver blanda
af sveitaballatónlist (Skítamórall,
Land og synir og Sálin hans Jóns
míns) og því sem var að gerast
á Bretlandseyjum á sama tíma;
Radiohead, Oasis, Blur o.s.frv.
– Uppáhaldstónlistartímabil?
Ég finn alltaf eitthvað skemmti-
legt að hlusta á af því sem er í
gangi hverju sinni. Í dag finnst mér
gaman að hlusta á JóaPé og Króla,
Auður o.fl. í bland við eldri tónlist.
– Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
Auður, GDRN, JóiPé og Króli og
Bríet, svo eitthvað sé nefnt. Svo er
ég mjög hrifinn af laginu sem Már
Gunnarsson og Iva voru að gefa út.
– Hvers konar tónlist var hlust-
að á á þínu heimili?
Jóhann Haukur, eldri bróðir minn
(f. 1976), fékk „græjur“ í ferm-
ingargjöf og hann sá um tónlistar-
uppeldi mitt. Fyrstu geisladiskarnir
hans voru Sálin hans Jóns míns og
Tina Turner, eðlilega. Fljótlega í
kjölfarið tók hann mikið Queen-
æði og ég fylgdi með.
– Leikurðu á hljóðfæri?
Ég lærði á píanó þegar ég var
pjakkur búsettur í Finnlandi en ég
er hræddur um að sú kunnátta sé
að mestu gleymd og grafin.
– Horfirðu mikið
á sjónvarp og
hvernig?
Sjónvarpsáhorf
er vetraríþrótt á
mínu heimili. Mér
finnst gaman að horfa
á heilar þáttaraðir á
streymisveitum, t.d. glæpa-
þætti eins og Breaking Bad, Better
call Saul, Narcos, Sons of Anarchy,
The Sopranos o.s.frv. Líka gaman-
þætti eins og The Office (UK &
US), Seinfeld o.fl.
– Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu?
Ég missi helst ekki af fréttum. Þá
missi ég ekki af Arsenal-leikjum ef
mótherjinn er viðráðanlegur. Þeim
fer fækkandi því miður.
– Besta kvikmyndin:
Fæ að nefna nokkrar: Wall Street
(1987), The Shawshank Redemp-
tion (1994), LOTR þríleikurinn
(2001–2003), The Godfather
(1972), Goodfellas (1990) o.fl. o.fl.
– Hver er uppáhaldsbókin þín
og/eða rithöfundur?
Nefni J.K. Rowling, Þorgrím Þrá-
insson og Gunnar Helgason út af
því hversu mikil og jákvæð áhrif
þessir höfundar hafa haft á lestrar-
áhuga á mínu heimili.
– Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu?
Ég er enn að reyna að komast að
því hvað það gæti verið. Ég er
reyndar þrælgóður í að ganga frá
og vaska upp.
– Hvernig er eggið best?
Spælt og á diski með öllum vinum
sínum úr klassískum enskum
morgunverði.
– Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu?
Sem betur fer er enn margt í fari
mínu sem hægt er að laga. Ég get
verið mjög langrækinn, einhver
gæti haldið því fram að ég væri
þrjóskur en það væri reyndar
rangt.
– Hvað fer mest í
taugarnar á þér í
fari annarra?
Fólk sem hangir í
sínum eigin hugar-
heimi á vinstri
akrein á tveggja
akreina vegi. Skilið
skírteininu takk.
– Uppáhaldsmáls-
háttur eða til-
vitnun:
Morgunstund gefur
gull í mund.
– Hver er elsta minningin sem
þú átt?
Ég man fyrst eftir mér í sundlaug-
inni í Neðri-Dal í Biskupstungum.
Mjög ljúf minning.
– Orð eða frasi sem þú notar of
mikið:
Mér skilst að ég sé duglegur að
segja „jæja ...“.
– Ef þú gætir farið til baka í
tíma, hvert færirðu?
Ég myndi nota tækifærið og kíkja á
börnin mín þegar þau voru unga-
börn.
– Hver væri titillinn á ævisögu
þinni?
Það eru flestir grjóthörðu titlarnir
fráteknir. Long Walk to Freedom
(N. Mandela) og Granny Made
Me an Anarchist (S. Christie). Ég
myndi bara kalla mína: „Unnar
vinnustundir“.
– Þú vaknar einn morgun í
líkama frægrar manneskju og
þarft að dúsa þar einn dag.
Hver værirðu til í að vera og
hvað myndirðu gera?
Ég væri alveg til í að leysa minn
mann Lewis Hamilton af í eins og
einum kappakstri.
– Hvaða þremur per-
sónum vildirðu
bjóða í drauma-
kvöldverð?
Ég myndi bjóða Boris
Johnson og Donald
Trump ásamt Einari
Matthíasi vini mínum.
Hann hefði ýmislegt að
segja við þá félaga.
– Hvernig hefur þú
verið að upplifa
árið 2020 hingað
til?
Þetta hefur að mörgu
leyti verið sérkenni-
legt ár og krefjandi fyrir marga.
Við komumst vonandi hratt og
vel út úr erfiðu atvinnuástandi og
efnahagsþrengingum ef við snúum
öll bökum saman, horfum fram á
veginn og nýtum saman þau tæki-
færi sem leynast víða.
– Er bjartsýni fyrir sumrinu?
Ég er bjartsýnn fyrir þessu sumri
eins og öllum öðrum sem á undan
hafa komið. Ég held að hver og
einn geti gert þetta sumar að frá-
bæru sumri.
– Hvað á að gera í sumar?
Við fjölskyldan munum ferðast
innanlands. Ganga saman á hóla
og hæðir, liggja í heitum pottum
víða um land og vonandi hafa það
gott.
– Hvert ferðu í sumarfrí?
Það er ekki ósennilegt að við
förum eitthvað norður í land í
sumar.
– Ef þú fengir gesti utan af
landi sem hafa aldrei skoðað
sig um á Suðurnesjum. Hvert
myndir þú fara með þá fyrst og
hvað myndir þú helst vilja sýna
þeim?
Ég myndi fara með þá fyrst á
Biryani Kebab í Reykjanesbæ því
þeir eru ábyggilega svangir. Þaðan
í hjólatúr út á Garðskaga, út á
Hvalsnes og til baka. Svo á Rokk-
safnið í Reykjanesbæ. Síðan bíltúr
út á Reykjanesskaga til að skoða
frussandi hveri og gufustróka.
Þaðan í Retreat Spa og Bláa lónið.
Enda ágætan dag á Moss Res-
taurant.
– Ef þú gætir hoppað upp í
flugvél og réðir hvert hún færi,
þá færirðu ...
... til Maldíveyja. Passa upp á að
skila kveðju frá ykkur öllum.
Enskur morgunverður er uppáhald.
Unnar Steinn er til vinstri á myndinni.
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 35
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.
DeLorean
Donald
Boris