Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 15
– Þið sækið þá húsgögn heim til
fólks sem vill gefa ykkur?
„Já, það eru þrír nemar á bílnum
og þeir meta ástand þess sem á að
gefa. Ef þeim lýst ekki á ástandið þá
afþakka þeir kurteisislega eða hafa
samband við okkur. Svo kemur fólk
líka mikið með til okkar. Svo bjóðum
við upp á heimakstur á stærri vörum
þegar fólk er búið að kaupa þær hjá
okkur. Við erum því háð því að ein-
hverjir nemar séu með bílpróf og
bíllinn stoppar nánast aldrei. Við
fórum á síðasta ári yfir 1400 send-
ingar.“
– Hverjir eru svo viðskiptavinir
Fjölsmiðjunnar?
„Það er fjölbreyttur hópur. Það eru
fastagestir í búðinni okkar sem
koma snemma og eru að leita að ein-
hverjum ákveðnum hlutum. Hingað
koma safnarar. Svo er það almenn-
ingur sem er að stofna heimilisfesti
á Suðurnesjum og vantar eitthvað í
búið. Svo erum við farin að fá fólk
af höfuðborgarsvæðinu. Orðsporið
hefur borist og Facebook-síðan
okkar hefur skilað rosalega miklu
eins og Instagram, þannig að við
erum að sjá nýtt fólk í hverri viku.
Svo eru margir innflytjendur sem
nýta sér nytjamarkaðinn hér og eru
vön þeirri stemmningu að heiman.
Við þurfum reyndar að venja fólk á
það að prútta ekki. Hér verðleggjum
við vörur á sanngjörnu verði og um
verðið á ekki að þurfa að prútta. Hér
rennur allur afgangur til að halda
þessu gangandi sem er mjög mikil-
vægt fyrir það unga fólk sem hér er.“
– Þetta er gefandi starf.
„Já, bæði gefandi og krefjandi. Þetta
snýst um það að koma krökkum
áfram í lífinu og rjúfa óvirkni og
einangrun. Þetta eru allt flottir
krakkar sem þurfa bara smá aðstoð
til að komast áfram. Það er eitthvað
sem hefur hent í þeirra lífi þannig
að þau hafa dottið úr gírnum. Okkar
hlutverk er að taka þau að okkur og
finna styrkleikana. Við vinnum út
frá styrkleika og jákvæðri styrkingu.
Svo býðst þeim að fara í markþjálfun
hjá mér ef sá vilji er til og það hafa
margir nýtt sér það. Við erum með
þetta einstaklingsmiðað á hvern
og einn. Það er gaman að segja frá
því að það voru þrír nemendur frá
okkur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
vetur, þrír í grunnmenntaskólanum
og fjölmargir sem fóru á námskeið
hjá Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum, þannig að þar eru margir
hér að ná sér í fræðslu, sem er mjög
mikilvæg.“
– Reiðhjólaverkstæðið er ný
starfsemi hjá ykkur.
„Verkstæðið er viðbót við það sem
fyrir var. Með þessu erum við að
vonast til að geta stækkað við-
skiptavinahópinn. Við erum einn-
ig komin með nýtt verkefni sem
höfðar til þeirra stráka sem eru hér
hjá okkur en flestir sem nýta sér
þjónustu vinnuþróunarsetursins
eru strákar og þeir eru margir mjög
færir í þessum viðgerðum. Við erum
líka að horfa á að á reiðhjólaverk-
stæðið kemur annar hópur en er
að versla á nytjamarkaðnum. Þetta
býr til meiri umferð fólks um Fjöl-
smiðjuna og svo er þetta einnig til
að svara þörf en ekkert reiðhjóla-
verkstæði hefur verið í Reykjanesbæ
um nokkurn tíma. Við ákváðum að
kaupa lager Hjólabúðarinnar í fyrra
þegar okkur bauðst hann. Við söfn-
uðum styrkjum fyrir helmingnum og
létum vaða. COVID-19 setti reyndar
smá strik í reikninginn því við gátum
ekki opnað á þeim tíma sem við ætl-
uðum. Hér átti að opna í mars en við
erum núna komin af stað og höfum
fengið til liðs við okkur nýjan verk-
stjóra sem er vanur hjólamaður og
hjólaviðgerðum. Þetta fer vel af stað.
Starfsemin á verkstæðinu verður
þannig að fólk pantar tíma í viðgerð
fyrir hjól. Við höfum ekki húspláss
til að geyma fjölda hjóla. Fólk pantar
bara tíma fyrir viðgerðir og sækir svo
strax að viðgerð lokinni og þá kemst
næsti að.“
Nánar má sjá og heyra viðtal við
Þorvarð í myndskeiðinu sem fylgir
þessari umfjöllun.
Forsetakosningar
laugardaginn 27. júní 2020
Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Grinda-
víkurbæjar, frá þriðjudeginum 16. júní fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá
skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.
Upplýsingar um hvar þú ert á kjörskrá og hvaða kjördeild þú tilheyrir er einnig að finna á upplýsinga-
veitu Þjóðskrár Íslands.
Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað.
Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs fer fram á skrifstofu sýslumannsins, að Víkurbraut
25, neðri hæð. Aðeins er opið virka daga frá kl. 8:30 til 13:00.
Dagana 22.-26. júní frá kl. 8:30 til 18:00.
Kjörstjórn Grindavíkurbæjar
Þetta snýst um það að koma
krökkum áfram í lífinu og rjúfa
óvirkni og einangrun. Þetta eru allt
flottir krakkar sem þurfa bara smá
aðstoð til að komast áfram.
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 15
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.