Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Síða 15

Víkurfréttir - 18.06.2020, Síða 15
– Þið sækið þá húsgögn heim til fólks sem vill gefa ykkur? „Já, það eru þrír nemar á bílnum og þeir meta ástand þess sem á að gefa. Ef þeim lýst ekki á ástandið þá afþakka þeir kurteisislega eða hafa samband við okkur. Svo kemur fólk líka mikið með til okkar. Svo bjóðum við upp á heimakstur á stærri vörum þegar fólk er búið að kaupa þær hjá okkur. Við erum því háð því að ein- hverjir nemar séu með bílpróf og bíllinn stoppar nánast aldrei. Við fórum á síðasta ári yfir 1400 send- ingar.“ – Hverjir eru svo viðskiptavinir Fjölsmiðjunnar? „Það er fjölbreyttur hópur. Það eru fastagestir í búðinni okkar sem koma snemma og eru að leita að ein- hverjum ákveðnum hlutum. Hingað koma safnarar. Svo er það almenn- ingur sem er að stofna heimilisfesti á Suðurnesjum og vantar eitthvað í búið. Svo erum við farin að fá fólk af höfuðborgarsvæðinu. Orðsporið hefur borist og Facebook-síðan okkar hefur skilað rosalega miklu eins og Instagram, þannig að við erum að sjá nýtt fólk í hverri viku. Svo eru margir innflytjendur sem nýta sér nytjamarkaðinn hér og eru vön þeirri stemmningu að heiman. Við þurfum reyndar að venja fólk á það að prútta ekki. Hér verðleggjum við vörur á sanngjörnu verði og um verðið á ekki að þurfa að prútta. Hér rennur allur afgangur til að halda þessu gangandi sem er mjög mikil- vægt fyrir það unga fólk sem hér er.“ – Þetta er gefandi starf. „Já, bæði gefandi og krefjandi. Þetta snýst um það að koma krökkum áfram í lífinu og rjúfa óvirkni og einangrun. Þetta eru allt flottir krakkar sem þurfa bara smá aðstoð til að komast áfram. Það er eitthvað sem hefur hent í þeirra lífi þannig að þau hafa dottið úr gírnum. Okkar hlutverk er að taka þau að okkur og finna styrkleikana. Við vinnum út frá styrkleika og jákvæðri styrkingu. Svo býðst þeim að fara í markþjálfun hjá mér ef sá vilji er til og það hafa margir nýtt sér það. Við erum með þetta einstaklingsmiðað á hvern og einn. Það er gaman að segja frá því að það voru þrír nemendur frá okkur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í vetur, þrír í grunnmenntaskólanum og fjölmargir sem fóru á námskeið hjá Miðstöð símenntunar á Suður- nesjum, þannig að þar eru margir hér að ná sér í fræðslu, sem er mjög mikilvæg.“ – Reiðhjólaverkstæðið er ný starfsemi hjá ykkur. „Verkstæðið er viðbót við það sem fyrir var. Með þessu erum við að vonast til að geta stækkað við- skiptavinahópinn. Við erum einn- ig komin með nýtt verkefni sem höfðar til þeirra stráka sem eru hér hjá okkur en flestir sem nýta sér þjónustu vinnuþróunarsetursins eru strákar og þeir eru margir mjög færir í þessum viðgerðum. Við erum líka að horfa á að á reiðhjólaverk- stæðið kemur annar hópur en er að versla á nytjamarkaðnum. Þetta býr til meiri umferð fólks um Fjöl- smiðjuna og svo er þetta einnig til að svara þörf en ekkert reiðhjóla- verkstæði hefur verið í Reykjanesbæ um nokkurn tíma. Við ákváðum að kaupa lager Hjólabúðarinnar í fyrra þegar okkur bauðst hann. Við söfn- uðum styrkjum fyrir helmingnum og létum vaða. COVID-19 setti reyndar smá strik í reikninginn því við gátum ekki opnað á þeim tíma sem við ætl- uðum. Hér átti að opna í mars en við erum núna komin af stað og höfum fengið til liðs við okkur nýjan verk- stjóra sem er vanur hjólamaður og hjólaviðgerðum. Þetta fer vel af stað. Starfsemin á verkstæðinu verður þannig að fólk pantar tíma í viðgerð fyrir hjól. Við höfum ekki húspláss til að geyma fjölda hjóla. Fólk pantar bara tíma fyrir viðgerðir og sækir svo strax að viðgerð lokinni og þá kemst næsti að.“ Nánar má sjá og heyra viðtal við Þorvarð í myndskeiðinu sem fylgir þessari umfjöllun. Forsetakosningar laugardaginn 27. júní 2020 Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Grinda- víkurbæjar, frá þriðjudeginum 16. júní fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Upplýsingar um hvar þú ert á kjörskrá og hvaða kjördeild þú tilheyrir er einnig að finna á upplýsinga- veitu Þjóðskrár Íslands. Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs fer fram á skrifstofu sýslumannsins, að Víkurbraut 25, neðri hæð. Aðeins er opið virka daga frá kl. 8:30 til 13:00. Dagana 22.-26. júní frá kl. 8:30 til 18:00. Kjörstjórn Grindavíkurbæjar Þetta snýst um það að koma krökkum áfram í lífinu og rjúfa óvirkni og einangrun. Þetta eru allt flottir krakkar sem þurfa bara smá aðstoð til að komast áfram. VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 15 Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.