Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 68

Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 68
Frelsi og ábyrgð Eftir þennan langa, skrýtna, innilokaða og já, leiðinlega vetur erum við vonandi loksins að sjá til sólar í orðsins fyllstu merkingu. Sumarið er komið, við megum loksins hitta annað fólk, ferðast um landið okkar og jafnvel fara að huga að utanlandsferðum. Við erum smám saman að fá frelsið okkar til baka, frelsið sem við höfum alltaf álitið sjálfsagt og aldrei látið okkur detta í hug að myndi skerðast með þeim hætti og við höfum upplifað á síðustu mánuðum. Sóttkví, samkomubann, tveggja metra reglur og landamæralokanir eru fyrirbæri sem mér hefði ekki dottið til hugar að ég ætti eftir að upplifa en öll þurftum við einfaldlega að aðlaga okkur að þessum breytta veruleika. Eins og aðrir er ég mjög stolt af því hvernig við Íslendingar höfum staðið saman, hlustað á sér- fræðingana og farið að fyrirmælum. Þannig komumst við á þann eftir- sóknarverða, en viðkvæma, stað sem við erum á núna. Vonandi til fram- búðar. Gleymum því aldrei að frelsi fylgir alltaf ábyrgð. Og til þess að ná að endurheimta það að fullu verðum við halda áfram að hlusta á sér- fræðingana og fara að fyrirmælum. Það eru ferðatakmarkanir í gildi, við höfum val um sóttkví eða skimanir og eigum að halda kyrru fyrir þar til niðurstaða fæst. Punktur. Það eru leikreglurnar og ég er kannski svo hlýðin og ferköntuð að mér datt ekki til hugar að nokkur maður myndi fara á svig við þær. Fréttin um erlendu glæpamenn- ina sem, í fyrsta lagi, komu hingað gagngert til þess að rupla og ræna og, í öðru lagi, rufu sóttkví, smituðu lögregluþjón og settu sextán manns í sóttkví gerði mig brjálaða. Þetta er fávitaskapur af verstu sort og það á að senda þetta fólk úr landi með það sama og leyfa þeim aldrei að koma hingað aftur. Fréttin um farþegann sem var að koma frá Kaupmanna- höfn og neitaði að vera með andlits- grímu fór líka í taugarnar á mér. Þar þurfti að kalla til lögreglu og eyða dýrmætum tíma hennar í einhvern leiðindakall með stæla. Ég get ekki sagt að fréttin um ferðamennina tvo sem skimaðir voru í flugstöðinni og reyndust smitaðir hafi glatt mig en þó sýndi hún fram á það að þetta kerfi sem búið er að setja upp sé að virka. Og það veitir mér ró. Þetta er svo einfalt. Við viljum öll gamla lífið okkar aftur þar sem við gátum gert alls konar. Það er bara ekki allt í boði núna og þangað til þurfum við að hlýða og fara að fyrir- mælum. Þá birtir aftur til. LO KAO RÐ RAGNHEIÐAR ELÍNAR Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta 68 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.