Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 45
og hí. Í fyrra fann ég loksins rödd-
ina mína og þori að syngja sem ég
sjálfur, ekki einhver fígúra.
– Hvernig hefur lífið verið við
hljóðnemann undanfarin ár?
Lífið við hljóðnemann hefur alltaf
verið gott en draumurinn var alltaf
að komast á Rás 2.
Rás 2 er efsta þrepið á stiga
útvarpsmannsins og það tók mig
einhver tuttugu ár. Ég hóf þar störf
1. júlí 2009 sem tæknimaður í Morg-
unútvarpinu og get sagt með sanni
að ég hafi verið bókstaflega á öllum
tímum sólarhringsins, meira að segja
frá þrjú til sjö þegar eldgosið í Eyja-
fjallajökli var í fullum gangi, þá var
fréttastofan með sólarhringsvakt og
ég sá um nóttina og tók á móti frétta-
mönnum þegar það bárust nýjar
fréttir á þeim tíma. Það er gífurlega
gaman að vera síðan með þjóðinni
á morgnana og vinna Morgunverkin
með þessu góða fólki.
– Hvað geturðu sagt okkur um
æskuárin í Njarðvík?
Well, ég er nú þegar búinn að svara
spurningum í löngu máli svo ég skal
hemja mig.
Æskuárin í Njarðvík voru bara
frábær, í Njarðvík býr ótrúlega
vandað fólk eins og allir sem lesa
þetta blað vita. Ég er vandræðalega
mikill Njarðvíkingur, nota bara
græna tannbursta og kaupi óþarflega
mikið af grænu dóti þrátt fyrir að
fjölskyldan sé ekkert hrifin af þeim
lit. Margir af mínum bestu vinum
búa enn í Njarðvík og mun ég ein-
hvern tíma flytja þangað aftur. Eins
og segir í auglýsingunni: „Njarðvík,
best í heimi!“
„Ég, eins og örugglega margir, hef gengið
með þann draum að gera plötu með
minni tónlist. Ég hef bara aldrei haft
sjálfstraust til þess, aldrei þorað því.“
Doddi útvarpsmaður og Love Guru fóru í samstarf.
Njarðvíkingurinn við hljóðnemann þorði aldrei
að gera plötu en lætur drauminn rætast.
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 45