Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 25

Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 25
Nánari athugasemdir við einstök atriði í frummatsskýrslunni: Almennt Staðhæft er að breytingar vegna úrbóta falli að gildandi deiliskipu- lagi. Framkvæmdin sem heild fellur ekki að gildandi deiliskipulagi. (sjá bls. í ii í samantekt frummats- skýrslu) Áhrif á loftgæði er talin nokkuð neikvæð en þó afturkræf í frum- matsskýrslunni og þannig á mörkum þess að vera jákvæð. Umhverfis- og skipulagsráð telur að áhrifin, sem skv. frummatsskýrsl- unni eru m.a. vegna útblásturs 400 þús. tonna árlega af CO2 m.v. kísil- verið í fullum afköstum, séu bæði staðbundin og hafi áhrif á heims- vísu. Þau séu ekki afturkræf og ættu því að teljast talsvert eða verulega neikvæð. Umfjöllun um loftdreifilíkan þarf að vera ítarlegri varðandi það hver áhrif styrkbreytinga einstakra efnis- þátta í losuninni hefði á loftgæði. Ítarlegar þarf að fjalla um útblástur annan en þann sem fer um stromp frá ofnhúsi. (Sjá minnisblað VSÓ frá 2. júní samantekt bls. 3) Í ljósi reynslunnar af rekstri verk- smiðjunnar og vandamála með loft- gæði er mjög mikilvægt að fá nánari lýsingu á hvernig standa eigi að lofthreinsun, hvaða tækni eigi að beita og hvernig það samræmist BAT-skilyrðum (bestu aðgengilegu tækni) sem varða loftgæði, sérstak- lega nýjar BAT-kröfur um styrk ryks frá hreinsunarbúnaði. (Sjá minnis- blað VSÓ frá 2. júní samantekt bls. 3) Í umfjöllun um loftdreifilíkan er á nokkrum stöðum fjallað um áhrif innan þynningarsvæðis álvers í Helguvík. Þar sem þynningarsvæðið hefur almennt enga merkingu fyrir starfsemi kísilversins væri æskilegt að fá umfjöllun um hvort mögu- legar breytingar á því hafi áhrif á niðurstöður og túlkun á niður- stöðum. (Sjá minnisblað VSÓ frá 2. júní, samantekt bls. 3) Hvað varðar stefnu Reykjanes- bæjar varðandi iðnaðaruppbygg- ingu í Helguvík þá skal það áréttað að í Aðalskipulagi Reykjanesbæjar samþykktu árið 2017 er ekki gert ráð fyrir frekari starfsemi í Helgu- vík sem losi flúor og brennisteins- díoxíð. Þá er minnt á áskorun meirihluta bæjarfulltrúa Reykjanes- bæjar (sjö bæjarfulltrúa af ellefu) á 558. fundi bæjarstjórnar Reykja- nesbæjar þann 22. janúar 2019 til framkvæmdaaðila og eigenda kísil- verkefna í Helguvík þess efnis að þeir falli frá uppbyggingu og rekstri kísilmálmverksmiðja í Helguvík og hvatningu til þeirra um að taka frekar þátt í annarri atvinnuupp- byggingu í sátt við fólkið í sveitar- félaginu og umhverfið. (Sjá bls. x í samantekt frummatsskýrslu) Hvað varðar hljóðvist og umhverf- isáhrif hávaða frá starfseminni þá er ekkert fjallað um hávaða sem orðið getur vegna skorsteinanna tveggja sem fyrirhugað er að reisa en ætla má að hávaði fylgi útblæstri úr þeim og að þeim fylgi veðurhvinur. (Sjá bls. 106–108 í frummatsskýrslu) Heilsa Óumdeilt er að íbúar urðu fyrir tals- verðum óþægindum og veikindum vegna mengunar sem barst frá verk- smiðjunni á rekstrartíma. Það var gæfa að enginn hlaut sannarlega varanlegan skaða af enda rekstrar- tími stuttur. Ekki hefur tekist að greina hvaða efni það voru sem ollu þessum óþægindum o.þ.l. voru þessi efni aldrei mæld. Kenningar eru um að það hafi verið VOC-efni sem engin viðmið eru til um. (Sjá bls. v í samantekt og bls. 67 í frum- matsskýrslu) Áhrif á heilsu íbúa eru metin óveruleg í frummatsskýrslunni (sjá bls. ix í samantekt frummats- skýrslu). Til að þessi fullyrðing standist þarf að vinna lýðheilsumat (Health Impact Assessment) eins og Embætti landlæknis telur æskilegt að gert verði í tengslum við fyrir- hugaðar endurbætur á kísilverk- smiðjunni. Skipulagsstofnun tekur undir með Embætti landlæknis um nauðsyn þess að meta áhrif á heilsu. Þó svo að ekki sé krafist sérstaks lýðheilsumats hér á landi þá telur Skipulagsstofnun ljóst að efnislega er mat á áhrifum framkvæmda á heilsu hluti af umhverfismati sem gert er samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og þeirri til- skipun ESB sem lögin fela í sér inn- leiðingu á. (Endurbætur á kísilverk- smiðju í Helguvík, Reykjanesbæ - Ákvörðun um matsáætlun – 12. apríl 2019, bls. 6) Samkvæmt frummatsskýrslunni er meginuppistaða í útblæstri CO2 en ekki er fjallað um það í loftdreifi- líkani en þar sem um töluvert magn er að ræða sem myndast við bruna á 520.000 tonnum árlega af kolum og viðarflísum (bls. 47) er eðlilegt að sýnt sé fram á að það ógni ekki heilsu eða hafi önnur staðbundin áhrif (heildarlosun fólksbílaflota Íslendinga er um 600.000 tonn árlega samkvæmt FÍB). Áhrif loftmengunar frá Kefla- víkurflugvelli í samhengi við útblástur frá verksmiðju Stakks- bergs leggjast ólíklega saman vegna ríkjandi vindátta eins og kemur fram í 1. viðauka greinargerð Vatna- skila um loftdreifingu en eins og sjá má á vindrósum á bls. 27 eru vind- áttir í stefnu frá flugvellinum í átt að byggð fátíðar. Í frummatsskýrslunni er ekki vísað í rannsóknir á mengun vegna Keflavíkurflugvallar. Í fylgiskjali V4 eru talin upp tólf kísilver víðsvegar um Noreg en engar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum þeirra á heilsufar íbúa sem búa þó í 300 metra til 3 km fjarlægð frá verksmiðjunum. Vitnað er í þrjár almennar rannsóknir á loftmengun frá árunum 1986–1991 um einhver atriði byggðar á rann- sóknum frá 1979. (sjá bls. 6 í frum- matsskýrslu) Vísað er til þess í frummats- skýrslu að áætluð mengun verði undir heilsufarsviðmiðum en ekki eru tilgreind mörk óþæginda íbúa vegna lyktar eða annarra áhrifa sem eru ekki síður mikilvæg. Þá er um reiknuð gildi að ræða í skýrslunni en ekki stuðst við mælingar. Ásýnd Fullyrt er að verksmiðjan sjáist ekki frá miðbæ Reykjanesbæjar vegna þess að aðrar byggingar skyggja á hana. Staðreyndin er sú að að verk- smiðjan er og verður vel sýnileg úr efri byggðum Keflavíkur, Vatns- nesi og Innri-Njarðvík – m.ö.o. vel sýnileg meirihluta bæjarbúa. Af Miðnesheiði eru byggingarnar vel sýnilegar þeim fjölmörgu ferða- mönnum sem til landsins koma. Þar sem byggingarnar eru einnig vel sýnilegar frá öllum aðflugslínum eru þær sýnilegar þeim ferða- mönnum sem fara um flugstöð Leifs Eiríkssonar árlega. Meint umhverfisvæn framleiðsla Ekki kemur fram í framleiðslu- lýsingu hvort framleiðslan henti í framleiðslu sólarhlaða en á bls. 27 í frummatsskýrslu er afurðinni lýst sem „Metallurgical Grade Sili- con“, eða hrákísill af 98–99% hrein- leika en Solar Grade Silicon krefst 99,9–99,999% hreinleika. Fullyrðing um lágt kolefnisfótspor sem ýtt er undir með vísan í sólarhlöður er því ekki marktæk, vegna þess að frekari hreinsun kallar á stækkun kolefnis- spors, sem ekki er tekið tillit til. Efnahagur Minnst er á fasteignaverð í frum- matsskýrslu. Eftirspurn eftir hús- næði var mikil á rekstrartíma verk- smiðjunnar sem tengist húsnæðis- skorti í Reykjavík og framboði á atvinnu tengdri flugvellinum, svo fasteignaverð hækkaði, þrátt fyrir brösugan gang á rekstri verksmiðj- unnar. Ekki kemur fram greining á fasteignaverði í efri hverfum Kefla- víkur og sú mikla eftirspurn sem var á húsnæði árin 2017–2018 er ekki varanlegt ástand. Þannig að varlega ætti að fullyrða um samfélagsleg áhrif verði varanleg og að 70–80 störf vegi upp möguleg óþægindi íbúa af rekstri verksmiðjunnar sem eins og fram kemur í skýrslunni er í eðli sínu verulega mengandi. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar tekur fram að hér er einungis um helstu athuga- semdir að ræða og áskilur sér rétt til að koma fram með frekari rök- stuðning og frekari athugasemdir á síðari stigum. T E LU R A Ð N E I K VÆ Ð UM H V E R F I S Á H R I F F Y LG I Á Æ T LU Ð UM B R E Y T I N G UM Á K Í S I LV E R KSM I ÐJ U Fylgigögn: Frummats- skýrsla Stakksberg Loftgæði Helguvík VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.