Víkurfréttir - 18.06.2020, Síða 25
Nánari athugasemdir við einstök atriði í frummatsskýrslunni:
Almennt
Staðhæft er að breytingar vegna
úrbóta falli að gildandi deiliskipu-
lagi. Framkvæmdin sem heild fellur
ekki að gildandi deiliskipulagi. (sjá
bls. í ii í samantekt frummats-
skýrslu)
Áhrif á loftgæði er talin nokkuð
neikvæð en þó afturkræf í frum-
matsskýrslunni og þannig á
mörkum þess að vera jákvæð.
Umhverfis- og skipulagsráð telur að
áhrifin, sem skv. frummatsskýrsl-
unni eru m.a. vegna útblásturs 400
þús. tonna árlega af CO2 m.v. kísil-
verið í fullum afköstum, séu bæði
staðbundin og hafi áhrif á heims-
vísu. Þau séu ekki afturkræf og ættu
því að teljast talsvert eða verulega
neikvæð.
Umfjöllun um loftdreifilíkan þarf
að vera ítarlegri varðandi það hver
áhrif styrkbreytinga einstakra efnis-
þátta í losuninni hefði á loftgæði.
Ítarlegar þarf að fjalla um útblástur
annan en þann sem fer um stromp
frá ofnhúsi. (Sjá minnisblað VSÓ
frá 2. júní samantekt bls. 3)
Í ljósi reynslunnar af rekstri verk-
smiðjunnar og vandamála með loft-
gæði er mjög mikilvægt að fá nánari
lýsingu á hvernig standa eigi að
lofthreinsun, hvaða tækni eigi að
beita og hvernig það samræmist
BAT-skilyrðum (bestu aðgengilegu
tækni) sem varða loftgæði, sérstak-
lega nýjar BAT-kröfur um styrk ryks
frá hreinsunarbúnaði. (Sjá minnis-
blað VSÓ frá 2. júní samantekt
bls. 3)
Í umfjöllun um loftdreifilíkan er
á nokkrum stöðum fjallað um áhrif
innan þynningarsvæðis álvers í
Helguvík. Þar sem þynningarsvæðið
hefur almennt enga merkingu fyrir
starfsemi kísilversins væri æskilegt
að fá umfjöllun um hvort mögu-
legar breytingar á því hafi áhrif á
niðurstöður og túlkun á niður-
stöðum. (Sjá minnisblað VSÓ frá
2. júní, samantekt bls. 3)
Hvað varðar stefnu Reykjanes-
bæjar varðandi iðnaðaruppbygg-
ingu í Helguvík þá skal það áréttað
að í Aðalskipulagi Reykjanesbæjar
samþykktu árið 2017 er ekki gert
ráð fyrir frekari starfsemi í Helgu-
vík sem losi flúor og brennisteins-
díoxíð. Þá er minnt á áskorun
meirihluta bæjarfulltrúa Reykjanes-
bæjar (sjö bæjarfulltrúa af ellefu)
á 558. fundi bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar þann 22. janúar 2019 til
framkvæmdaaðila og eigenda kísil-
verkefna í Helguvík þess efnis að
þeir falli frá uppbyggingu og rekstri
kísilmálmverksmiðja í Helguvík
og hvatningu til þeirra um að taka
frekar þátt í annarri atvinnuupp-
byggingu í sátt við fólkið í sveitar-
félaginu og umhverfið. (Sjá bls. x í
samantekt frummatsskýrslu)
Hvað varðar hljóðvist og umhverf-
isáhrif hávaða frá starfseminni þá er
ekkert fjallað um hávaða sem orðið
getur vegna skorsteinanna tveggja
sem fyrirhugað er að reisa en ætla
má að hávaði fylgi útblæstri úr þeim
og að þeim fylgi veðurhvinur. (Sjá
bls. 106–108 í frummatsskýrslu)
Heilsa
Óumdeilt er að íbúar urðu fyrir tals-
verðum óþægindum og veikindum
vegna mengunar sem barst frá verk-
smiðjunni á rekstrartíma. Það var
gæfa að enginn hlaut sannarlega
varanlegan skaða af enda rekstrar-
tími stuttur. Ekki hefur tekist að
greina hvaða efni það voru sem
ollu þessum óþægindum o.þ.l. voru
þessi efni aldrei mæld. Kenningar
eru um að það hafi verið VOC-efni
sem engin viðmið eru til um. (Sjá
bls. v í samantekt og bls. 67 í frum-
matsskýrslu)
Áhrif á heilsu íbúa eru metin
óveruleg í frummatsskýrslunni
(sjá bls. ix í samantekt frummats-
skýrslu). Til að þessi fullyrðing
standist þarf að vinna lýðheilsumat
(Health Impact Assessment) eins og
Embætti landlæknis telur æskilegt
að gert verði í tengslum við fyrir-
hugaðar endurbætur á kísilverk-
smiðjunni. Skipulagsstofnun tekur
undir með Embætti landlæknis um
nauðsyn þess að meta áhrif á heilsu.
Þó svo að ekki sé krafist sérstaks
lýðheilsumats hér á landi þá telur
Skipulagsstofnun ljóst að efnislega
er mat á áhrifum framkvæmda á
heilsu hluti af umhverfismati sem
gert er samkvæmt lögum um mat
á umhverfisáhrifum og þeirri til-
skipun ESB sem lögin fela í sér inn-
leiðingu á. (Endurbætur á kísilverk-
smiðju í Helguvík, Reykjanesbæ
- Ákvörðun um matsáætlun – 12.
apríl 2019, bls. 6)
Samkvæmt frummatsskýrslunni
er meginuppistaða í útblæstri CO2
en ekki er fjallað um það í loftdreifi-
líkani en þar sem um töluvert magn
er að ræða sem myndast við bruna
á 520.000 tonnum árlega af kolum
og viðarflísum (bls. 47) er eðlilegt
að sýnt sé fram á að það ógni ekki
heilsu eða hafi önnur staðbundin
áhrif (heildarlosun fólksbílaflota
Íslendinga er um 600.000 tonn
árlega samkvæmt FÍB).
Áhrif loftmengunar frá Kefla-
víkurflugvelli í samhengi við
útblástur frá verksmiðju Stakks-
bergs leggjast ólíklega saman vegna
ríkjandi vindátta eins og kemur
fram í 1. viðauka greinargerð Vatna-
skila um loftdreifingu en eins og sjá
má á vindrósum á bls. 27 eru vind-
áttir í stefnu frá flugvellinum í átt að
byggð fátíðar. Í frummatsskýrslunni
er ekki vísað í rannsóknir á mengun
vegna Keflavíkurflugvallar.
Í fylgiskjali V4 eru talin upp tólf
kísilver víðsvegar um Noreg en
engar rannsóknir hafa verið gerðar
á áhrifum þeirra á heilsufar íbúa
sem búa þó í 300 metra til 3 km
fjarlægð frá verksmiðjunum. Vitnað
er í þrjár almennar rannsóknir á
loftmengun frá árunum 1986–1991
um einhver atriði byggðar á rann-
sóknum frá 1979. (sjá bls. 6 í frum-
matsskýrslu)
Vísað er til þess í frummats-
skýrslu að áætluð mengun verði
undir heilsufarsviðmiðum en ekki
eru tilgreind mörk óþæginda íbúa
vegna lyktar eða annarra áhrifa sem
eru ekki síður mikilvæg. Þá er um
reiknuð gildi að ræða í skýrslunni
en ekki stuðst við mælingar.
Ásýnd
Fullyrt er að verksmiðjan sjáist ekki
frá miðbæ Reykjanesbæjar vegna
þess að aðrar byggingar skyggja á
hana. Staðreyndin er sú að að verk-
smiðjan er og verður vel sýnileg úr
efri byggðum Keflavíkur, Vatns-
nesi og Innri-Njarðvík – m.ö.o. vel
sýnileg meirihluta bæjarbúa.
Af Miðnesheiði eru byggingarnar
vel sýnilegar þeim fjölmörgu ferða-
mönnum sem til landsins koma. Þar
sem byggingarnar eru einnig vel
sýnilegar frá öllum aðflugslínum
eru þær sýnilegar þeim ferða-
mönnum sem fara um flugstöð
Leifs Eiríkssonar árlega.
Meint umhverfisvæn
framleiðsla
Ekki kemur fram í framleiðslu-
lýsingu hvort framleiðslan henti
í framleiðslu sólarhlaða en á bls.
27 í frummatsskýrslu er afurðinni
lýst sem „Metallurgical Grade Sili-
con“, eða hrákísill af 98–99% hrein-
leika en Solar Grade Silicon krefst
99,9–99,999% hreinleika. Fullyrðing
um lágt kolefnisfótspor sem ýtt er
undir með vísan í sólarhlöður er því
ekki marktæk, vegna þess að frekari
hreinsun kallar á stækkun kolefnis-
spors, sem ekki er tekið tillit til.
Efnahagur
Minnst er á fasteignaverð í frum-
matsskýrslu. Eftirspurn eftir hús-
næði var mikil á rekstrartíma verk-
smiðjunnar sem tengist húsnæðis-
skorti í Reykjavík og framboði á
atvinnu tengdri flugvellinum, svo
fasteignaverð hækkaði, þrátt fyrir
brösugan gang á rekstri verksmiðj-
unnar. Ekki kemur fram greining á
fasteignaverði í efri hverfum Kefla-
víkur og sú mikla eftirspurn sem var
á húsnæði árin 2017–2018 er ekki
varanlegt ástand. Þannig að varlega
ætti að fullyrða um samfélagsleg
áhrif verði varanleg og að 70–80
störf vegi upp möguleg óþægindi
íbúa af rekstri verksmiðjunnar sem
eins og fram kemur í skýrslunni er í
eðli sínu verulega mengandi.
Umhverfis- og skipulagsráð
Reykjanesbæjar tekur fram að
hér er einungis um helstu athuga-
semdir að ræða og áskilur sér rétt
til að koma fram með frekari rök-
stuðning og frekari athugasemdir á
síðari stigum.
T E LU R A Ð N E I K VÆ Ð UM H V E R F I S Á H R I F F Y LG I
Á Æ T LU Ð UM B R E Y T I N G UM Á K Í S I LV E R KSM I ÐJ U
Fylgigögn:
Frummats-
skýrsla
Stakksberg
Loftgæði
Helguvík
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 25