Víkurfréttir - 29.07.2020, Blaðsíða 4
Ung stúlka frá Hondúras
ræddi við bæjarstjórann
Unga stúlka frá Honduras, Belén Mezadóttir, íbúi í Reykjanesbæ, heim-
sótti Kjartan Má Kjartansson, bæjarstjóra, nýlega og spurði nokkurra
spurninga. Hún heldur úti YouTube-rás um upplifun sína á að búa á
Íslandi.
Belén spurði Kjartan m.a. hvort
hann vildi frekar hjóla eða keyra
bíl og fékk hann líka til að útskýra
sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur
og Hafna sem urðu að Reykja-
nesbæ árið 1994. Kjartan gaf henni
eftir heimsóknina barmmerki
Reykjanesbæjar og hún var alsæl
með það.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi
ÓLAFUR HALLDÓR GARÐARSSON
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 19. júlí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.
Óli Haukur Mýrdal Ína Hrund Ísdal
Sunna Dís Ólafsdóttir Daníel Árnason
Hanna Þurý Ólafsdóttir
Garðar Ólafssson Thelma Guðlaug Arnardóttir
og afabörn
LJÓSANÓTT Í HÖNDUM ÍBÚA
Fjölskyldu- og menningarhátíðin Ljósanótt fer fram dagana 2.–6.
september með breyttu sniði vegna Covid-19. Dagskráin verður
aðlöguð að þeim fjöldatakmörkunum sem í gildi verða þannig að
fólksfjöldanum verður dreift um bæinn til þess að gæta að öryggi
hátíðargesta.
Framlag bæjarbúa í dagskrá
hátíðarinnar hefur ávallt
skipað stóran sess við há-
tíðarhöldin og gert Ljósanótt
að einni glæsilegustu bæjar-
hátíð landsins. Kröftug menn-
ingardagskrá í Höfnum, tón-
leikaröðin Með blik í auga og
heimatónleikar í gamla bænum
eru dæmi um íbúaframtak
sem hefur heppnast virkilega
vel. Í ár vill Reykjanesbær
stuðla að enn öflugri þátttöku
bæjarbúa, félaga og fyrirtækja
með því að veita kraftmiklum
hugmyndasmiðum sem vilja
standa fyrir skemmtilegum
viðburði á Ljósanótt styrki úr
nýstofnuðum Ljósanætursjóði
Reykjanesbæjar.
Hægt er að sækja um allt
að 500.000 króna styrk fyrir
framkvæmd á vel útfærðri og
góðri hugmynd að viðburði
fyrir gesti Ljósanætur. Allar
upplýsingar um hátíðina og
styrkveitingar er að finna á
vefsíðu Ljósanætur.
Umsóknarfrestur er til og
með 10. ágúst 2020 og sótt er
um stafrænt á heimasíðunni
ljosanott.is
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlustaBelén var alsæl með að fá
barmmerki Reykjanesbæjar.
Belén og Kjartan Már
á skrifstofu bæjarstjórans.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÁRNI JÚLÍUSSON
fyrrverandi símaverkstjóri
sem lést þriðjudaginn 14. júlí síðastliðinn verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 6. ágúst kl. 13.
Anna Birna Árnadóttir Arnar Ingólfsson
Sigurður Einar Árnason Ásborg Guðmundsdóttir
Ingvar Örn Árnason Sonya Pritchett Árnason
og barnabörn
4 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.