Víkurfréttir - 29.07.2020, Síða 10
Bæjarstjórinn skammar eigendur bílhræja í Vogum
Vogar – fallegi bærinn okkar
Svartur blettur í bænum – segir bæjarstjórinn í Vogum
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum á Vatnsleysuströnd, sendir eig-
endum númerslausra bíla tóninn og það í annað sinn. Mikinn fjöldi
bílhræja má sjá í Vogum og bæjarstjórinn er ekki ánægður með það.
Ásgeir fór yfir málið í pistli bæjar-
stjóra fyrir skömmu sem hljóðar
svo:
„Vogar - fallegi bærinn okkar. Við
þekkjum mörg þetta heiti, sem
prýðir vinsælan Facebook-hóp
hér í bænum. Þar er vettvangur
til samskipta, upplýsingamiðlunar
og skoðanaskipta. Nafn hópsins er
mér hugleikið þessa dagana, nú
þegar er hásumar og gróður allur
í fullum sumarskrúða. Nemendur
vinnuskólans og starfsmenn Um-
hverfisdeildar hafa ekki slegið
slöku við, opin svæði eru vel hirt,
götukantar og gangbrautir málaðar
og fleira mætti telja. Margir hús-
eigendur hafa tekið til hendinni í
sumar, byggt palla og skjólveggi,
hellulagt innkeyrslur og almennt
snyrt til í kringum sig. Enn er þó
svartur blettur í bænum okkar, er
kemur að umgengni. Það er fullt af
fólki sem sér ekkert athugavert við
það að hrúga upp númerslausum
bíldruslum og bílhræjum jafnvel
svo tugum skiptir, í og við hús
sín og fyrirtæki. Mörg dæmi eru
einnig um að íbúar geymi þessi
djásn sín inni í görðum sínum,
þar sem druslurnar komast ekki
lengur fyrir á bílastæðunum við
húsin. Heilbrigðiseftirlitið virðist
hafa gefist upp í baráttunni, og þá
er nú fokið í flest skjól. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem ég tjái mig
um þennan blett á samfélaginu
okkar. Án efa mun það gerast nú
sem fyrr að sjálfskipaðir sérfræð-
ingar í verðmætum og gæslumenn
eignarréttar munu rísa upp á aftur-
lappirnar og skammast í bæjar-
stjóranum fyrir að vera að skipta
sér af málum sem honum kemur
ekkert við. Það verður þá bara að
hafa það. Við sem viljum sjá bæinn
okkar fallegan hljótum hins vegar
að gera þá kröfu til samborgara
okkar að þeir sjái sóma sinn í að
hafa snyrtilegt í kringum sig, og
taka sig nú á í eitt skipti fyrir öll
og fjarlægja þessi verðlausu bíhræ
af lóðum sínum og koma þeim á
réttan stað þar sem þeim er fargað
og eytt. Þetta er ekki flókið. Nú er
mikið byggt og margir nýir íbúar
eru hér í bænum. Tökum vel á móti
þeim með snyrtilegum, bílhræja-
lausum bæ.“
Vogar hafa áhyggjur af Jöfnunarsjóði
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga bókaði eftirfarandi á 309. fundi
ráðsins, sem haldinn var 15. júlí 2020 en þar er lýst yfir áhyggjum
af skerðingu framlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga:
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum
sínum af skerðingu framlaga
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem
hefur veruleg áhrif á afkomu
sveitarsjóðs. Bæjarráð hvetur
því ríkisvaldið til að huga alvar-
lega að því að bæta Jöfnunar-
sjóði tekjutap sitt, og með því
móti verði sjóðnum gert kleift
að rækja skyldur sínar gagnvart
sveitarfélögunum í landinu.
ti
m
ar
it
.is
Ö l l t ö l u b l ö ð V í k u r f r é t t a
f r á 1 9 8 0 o g t i l d a g s i n s í d a g
e r u a ð g e n g i l e g á
timarit.is
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
10 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár