Víkurfréttir - 29.07.2020, Page 11
Blað brotið í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland
Markaðsstofur landshlutanna ýta úr vör lang-
stærsta samstarfsverkefni sem samtökin hafa
ráðist í. Verkefnið er mikilvægur hlekkur í endur-
uppbyggingu ferðaþjónustunnar í kjölfar heims-
faraldurs.
Markaðsstofur landshlutanna,
MAS, hafa ýtt úr vör samstarfs-
verkefni sem miðar að því að
auðvelda og hvetja enn frekar til
ferðalaga innanlands. Verkefnið er
liður í að auka á dreifingu ferða-
manna um landið sem og styðja
við uppbyggingu íslenskrar ferða-
þjónustu í kjölfar heimsfaraldurs.
Þetta er langstærsta þróunarverk-
efni sem MAS hefur tekið sér fyrir
hendur.
Verkefnið ber yfirskriftina Upp-
lifðu og er sannkölluð stafræn
bylting þegar kemur að skipulagn-
ingu ferðalaga um Ísland sem og
upplýsingagátt um það sem í boði
er. Allar sex markaðsstofur lands-
hlutanna; Markaðsstofa Norður-
lands, Markaðsstofa Vestfjarða,
Markaðsstofa Vesturlands, Aust-
urbrú, Markaðsstofa Reykjaness og
Markaðsstofa Suðurlands standa
að verkefninu.
Um ræðir gagnvirkt vefsvæði,
www.upplifdu.is, þar sem not-
endum gefst kostur á að sníða
ferðalagið nákvæmlega eftir sínu
höfði og fá aðstoð við að sjá hvað
er í boði á hverjum stað, fá ná-
kvæma tímaáætlun milli áfanga-
staða og síðast en ekki síst, upp-
götva nýja möguleika á mynd-
rænan hátt.
„Það er afar ánægjulegt að sjá
verkefnið verða að veruleika en
það hefur verið á óskalista okkar
frá upphafi samstafs markaðsstof-
anna. Þessi vefur kemur til með
að auðvelda okkur, gestum okkar
og ferðaþjónustuaðilum að setja
saman hugmyndir að ferðum um
Reykjanesið og landið allt og til að
endurspegla það sem svæðin hafa
upp á að bjóða. Nú getum við valið
áhugaverða staði til að skoða og af-
þreyingu til að upplifa og deilt því
með einföldum hætti með sam-
ferðafólki okkar eða á samfélags-
miðlum,“ segir Þuríður Aradóttir
Braun, forstöðumaður Markaðs-
stofu Reykjaness.
Upplifdu.is brýtur þannig blað
í sögu upplýsingagjafar til ferða-
langa um Ísland en ekki eru for-
dæmi fyrir viðlíka gagnvirkri síðu
með jafn yfirgripsmiklar upp-
lýsingar á fjölmörgum sviðum
ferðaþjónustu á Íslandi. Þróun
og framleiðsla er í höndum fram-
leiðslustofunnar Tjarnargötunnar
og er myndefnið sem prýðir síðuna
unnið úr einum stærsta mynda-
banka sem gerður hefur verið úr
efni frá Íslandi.
„Þetta er stórt skref fram á við
fyrir okkur og við hlökkum til að
þróa þetta áfram með sveitar-
félögum og ferðaþjónustuaðilum
á svæðinu. Við eigum mikið inni og
þessi gagnagrunnur á eftir að vaxa
og dafna okkur öllum til hagsbóta,“
segir Þuríður.
Viðbót um virkni síðunnar:
Síðan er einföld í notkun og miðar
að því að sem flestir geti nýtt sér
hana. Notendur velja sér upphafs-
punkt ferðalags og geta svo séð
hvað er í boði á hverjum þeim stað
sem heillar og handvelja hvað skuli
heimsækja og hvaða afþreyingu og
þjónustu skuli nýta meðan á heim-
sókn stendur. Hægt er að velja þar
til gerðar síur til að auðvelda enn
frekar skipulagningu ferðarinnar
og eru þær síur þrjár; staðir, af-
þreying og þemun. Sían staðir
nær til að mynda yfir kirkjur, forn-
minjar, útsýni, gil og gljúfur, jökla
og hella. Afþreying yfir baðstaði,
hvalaskoðun, matarupplifanir,
hjólaferðir, golfvelli, dýragarða ofl.
Þemun endurspegla svo tegund
ferðar, fjölskylduferð, ævintýra-
ferð, söguslóðir, afslöppun, menn-
ingu, dýralíf eða náttúru.
Þegar búið er að velja eru óskir
ferðalangsins dregnar saman og
úr verður heildstæð ferðaáætlun
í formi myndbands sem og skjals,
sem nær ekki aðeins utan um
spennandi ferðalag heldur einnig
utan um hagnýta hluti eins og
lengd aksturs milli áfangastaða og
áætlaðan tíma í hverri afþreyingu.
Sjá enn frekar: www.upplifdu.is
Mikil aukning ferðamanna á Reykjanesið í sumar
Búið að opna snyrtiaðstöðu og þjónustubygging í undirbúningi
Mikil aukning hefur orðið í
heimsóknum ferðamanna á
Reykjanesvita í vor og í sumar
að sögn Grétu Súsönnu Fjeldsed
sem sinnir svæðisumsjón á
Reykjanesi. „Við urðum vör við
aukna aðsókn strax í Covid-19 og
hún hefur bara aukist. Síðasta
sunnudag komu um 300 bílar
og líklega hátt í þúsund manns,“
segir Gréta Súsanna.
Í vor var opnuð snyrtiaðstaða í
gamla húsinu fyrir neðan Reykja-
nesvita og húsið lagfært og
málað. Snyrtiaðstöðu hefur verið
ábótavant á svæðinu. Unnið er að
undirbúningi við byggingu þjón-
ustumiðstöðvar, sem hefur tafist
vegna Covid-19, sem nú er komið
í hendur Bláa lónsins. Gréta
sagðist vona að framkvæmdir
hæfust í haust.
„Fólk er afar hrifið af svæðinu
en hér eru fjölmargir magnaðir
ferðamannastaðir í nágrenni
vitans. Síðustu vikurnar hafa
margir mætt og ég sinni svæð-
isumsjón og hef talið bílafjölda
sem er oft 20–30 á klukkustund.
Það er meiri aðsókn um helgar en
líka góð virka daga núna á sumrin
þegar margir eru í fríi. Svo erum
við að skipuleggja gönguferðir
um svæðið,“ segir Gréta.
Vinsælt er að ganga um svæðið
við Valahnjúk og ströndina og
ekki síður Gunnuhver og Brú
milli heimsálfa. Í kvikmyndinni
„The Story of Fire Saga“ sem
fjallar um Eurovision-söngva-
keppnina eru atriði sem voru
tekin upp í nágrenni Valahnúks
og á Reykjanesinu.
Sjónvarp Víkurfrétta ræddi
nýlega við Rannveigu Garðars-
dóttur, leiðsögumann, og hún
fer yfir helstu ferðamannastaði
í því spjalli og sýndar eru fal-
legar myndir sem VF tók í byrjun
sumars.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 11
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.