Víkurfréttir - 29.07.2020, Qupperneq 16
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, settist upp í 75
ára gamla Renault bifreið í safni Ásgeirs Hjálmarssonar í Garði. Ráðherra
var gestur á Skötumessu 2020 og leit við í safni Ásgeirs áður. „Þetta er
alveg magnað safn og bíllinn líka,“ sagði ráðherra þegar hann settist upp
í gamla bílinn sem á sér sérstaka sögu eins og fleiri hlutir í safni Ásgeirs í
gömlum braggabyggingum hans í Garðinum í Suðurnesjabæ.
Ásgeir Hjálmarsson kom Byggða-
safninu í Garði á koppinn á sínum
tíma. Eftir að hann lét af störfum
hefur hann haldið áfram að safna
munum í bragga í Útgarði. „Ég veit
nú ekki af hverju ég byrjaði að
safna munum en eftir að ég hætti
hjá Byggðasafninu hélt ég áfram
að safna og er hérna kominn með
annað safn í bragganum. Maður
losnar ekkert við það að safna,“
sagði Ásgeir í viðtali við Víkur-
fréttir þegar hann sýndi Hilmar
Braga Bárðarsyni.
Safnið er í tveimur samliggj-
andi húsum í Út-Garði. Áður fyrr
þurrkaði Oddur Jónsson, afi Ás-
geirs, fisk í og við húsin. „Hérna
byrjaði ég að vinna ásamt fleiri
krökkum, líklega sex til átta ára
gamall.“ Það er því óhætt að segja
að húsin eigi sér langa og skemmti-
lega sögu.
Á safni Ásgeirs kennir ýmissa
grasa. Þar eru ýmis áhöld og tæki
tengd búskap, heimilishaldi, bílum
og bátum. Ásgeir gerði upp sjötíu
ára gamlan bíl sem eiginkona hans,
Sigurjóna Guðnadóttir, vann í
happdrætti þegar hún var þriggja
ára. Bíllinn er af gerðinni Renault
Juvaquatre og árgerð 1946. Bíllinn
er glæsilegur að sjá eftir yfirhaln-
ingar síðustu missera. Nokkrir
slíkir bílar voru fluttir til landsins
á fimmta áratug síðustu aldar. Þeir
voru geymdir við bæinn Haga í
Vesturbæ Reykjavíkur og hlutu því
viðurnefnið Hagamýs. Bíll Sigur-
jónu var aftur á móti alltaf kallaður
Tíkallinn því happdrættismiðinn
kostaði tíu krónur.
Ásmundur Einar
Daðason, félags- og
barnamálaráðherra, settist
upp í 75 ára gamlan Renault
og fór rúnt í huganum. Hreifst
af bílnum og safni Ásgeirs
Hjálmarssonar í Garðinum.
RÁÐHERRA VAR HRIFINN AF
GAMLA HAPPDRÆTTISBÍLNUM
16 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.