Víkurfréttir - 29.07.2020, Page 31
Í öðrum sal við hlið veislusalarins við Hótel Bláfell er mjög sérstakt
Íslandskort, nærri nítján fermetrar að flatarmáli. Þetta er stórt stein-
kort sem Axel Helgason gerði og það er um þrjú tonn að þyngd, gert
úr steinsteypu og járni og upphaflega málað með olíulitum. Axel gerði
þrjú svona Íslandskort en þetta er það eina sem hefur varðveist.
Háskóli Íslands fékk upphaflega
kortið að gjöf og átti að setja það
upp við byggingu skólans. Af
því varð þó aldrei og var kortið í
geymslu skólans til ársins 2008,
þá fór það til varðveislu á safnið
að Skógum á Suðurlandi þar sem
til stóð að byggja sérstaklega
yfir það og hafa til sýnis. Úr því
varð ekki og var kortið geymt úti
undir berum himni í nokkur ár og
skemmdist mikið. Gosið í Eyja-
fjallajökli 2010 setti mark sitt á
það og máði út mest alla málningu
á hluta þess.
Kortið er til sýnis hjá Friðriki í
því ástandi sem það var þegar því
var bjargað frá náttúruöflunum.
Kortið er í eigu fjölskyldu Axels og
er sýnt í fyrsta skipti í samvinnu
við Friðrik og íbúa Breiðdalsvíkur.
Friðrik segist hafa séð frétt um
kortið og haft samband við fjöl-
skyldu Axels og í framhaldinu var
sýning á því sett upp á staðnum.
Brugghúsið Beljandi
Á Breiðdalsvík er rekið hand-
verksbrugghúsið og barinn Belj-
andi. Fyrirtækið hefur verið starf-
andi frá árinu 2017 og býður alla
jafna upp á fjórar, fimm tegundir
af bjór. Hann er að mestu seldur
á staðnum en einnig á nokkrum
góðum stöðum á Austfjörðum
á sumrin og má líka finna hann
í Reykjavík og á Akureyri stöku
sinnum. Barinn á Breiðdalsvík er
opinn öll kvöld yfir sumartímann
en lokað er að mestu yfir veturinn.
Rétt hjá er svo Gamla Kaupfjelagið
á Breiðdalsvík, þar er kaffihús og
verslun og í hillum er að finna
gamlar vörur sem voru til sölu
í Kaupfjelaginu á upphafsárum
þess. Breiðdalssetur er einnig í
Gamla Kaupfélaginu en það er
elsta húsið í þorpinu, byggt árið
1906.
Á Breiðdalsvík búa aðeins um
140 manns en einnig er önnur af-
þreying í boði, eins og skemmtileg
sundlaug sem er opin alla daga,
hægt er að fara í gönguferðir og
fleira.
Íslandskort dregur að
Friðrik hafði mikið fyrir því að fá Íslandskortið
en það hafðist og hér stendur hann við það.
Barinn var gerður úr
efniviði úr nágrenninu og
hverfisbjórinn Beljandi
í hávegum hafður.
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 31