Víkurfréttir - 29.07.2020, Side 42
Gríðarleg spenna í Lengjudeild karla:
Keflavík í toppbaráttunni
Aðeins tveimur stigum frá efsta sætinu
Keflvíkingar unnu stórsigur á Þrótturum í sjöttu umferð Lengjudeildar karla og í þeirri sjöundu léku
þeir gegn Þór á Akureyri, þeim leik lyktaði með 1:1 jafntefli.
Keflvíkingar tóku á móti Vestra í Lengjudeild karla í áttundu umferð Lengjudeildar karla.
Óverjandi þrumufleygur
Leikurinn fór ekki amalega af stað en á
5. mínútu átti Kian Williams sannkallaðan
þrumufleyg langt fyrir utan teig, sláin inn. Stór-
glæsilegt mark.
Leikurinn fór fjörlega af stað og tveimur
mínútum eftir að hafa lent undir fékk Vestri
sannkallað dauðafæri þegar fyrirgjöf barst fyrir
mark Keflvíkinga á Vestramann sem var einn
og óvaldaður á fjærstöng en skot hans fór rétt
framhjá markinu.
Fyrri hálfleikur var ágætur hjá báðum liðum
sem skiptust á að sækja án þess þó að skapa sér
álitleg færi, eftir því sem leið á hálfleikinn tók
Vestri þó að sækja ívið meira en náði þó ekki að
koma boltanum í netið. Staðan því 1:0 í hálfleik,
Keflavík í vil.
Jöfnunarmarkið kveikti í
Keflvíkingum sem slökktu á Vestra
Vestramenn mættu ákveðnir til seinni hálfleiks
og settu pressu á Keflvíkinga, á 57. mínútu fékk
Vestri horn og upp úr því barst boltinn á sókn-
armann þeirra sem afgreiddi hann í markið, 1:1.
Keflvíkingar tóku miðju, léku upp vinstri
kantinn, sendu fyrir markið þar sem Joey Gibbs
setti hann framhjá markverði Vestra og Keflavík
því aftur komið yfir á innan við mínútu. Vestra-
menn voru enn að fagna og vissu varla hvað
skall á þeim þegar Joey skoraði.
Það má segja að neistinn sem kveikti í Kefl-
víkingum hafi alveg slökkt á Vestramönnum því
á 59. mínútu kom Keflavík upp hægri kantinn
og Sindri Þór Guðmundsson gaf góða fyrirgjöf
inn fyrir vörn Vestra þar sem Kian stakk sér
fram og skallaði í markið, 3:1 fyrir Keflavík.
Áfram hélt Keflavík að sækja og hafa stjórn á
leiknum. Vestraliðið var í hálfgerðu áfalli eftir
að fá þessi mörk á sig og Keflvíkingar voru með
leikinn í höndunum. Á 74. mínútu mætti Joey
Gibbs á nærstöng og skoraði fjórða mark Kefl-
víkinga sem reyndist lokamark leiksins. Úrslit
4:1 fyrir Keflavík.
Keflavík með bestu markatöluna
Sóknarleikur Keflvíkinga hefur verið góður í
sumar og ekkert lið hefur skorað fleiri mörk en
þeir, 25 mörk í átta umferðum. Svipaða sögu er
að segja af varnaleik liðsins en Keflavík hefur
aðeins fengið tíu mörk á sig í deildinni í sumar,
aðeins ÍBV (hefur fengið átta mörk á sig) hefur
fengið færri mörk á sig.
Joey Gibbs hefur verið á skotskónum í sumar
og er enn markahæstur í deildinni með átta
mörk. Joey er vinnusamur leikmaður og hefur
smollið vel inn í leik Keflavíkurliðsins eins og
sést best á tölfræðinni.
ENGIN MISKUNN HJÁ KEFLAVÍK
Keflvíkingar kláruðu Þróttara á þrjátíu mínútum
Keflvíkingar góða ferð í höfuðborgina í
sjöttu umferði Lengjudeildarinnar þar sem
þeir sóttu sóttu lið Þróttar heim. Þrótt-
arar voru stigalausir eftir fyrstu fimm um-
ferðirnar en Keflvíkingar sýndu hvorki
miskunn né vanmat og mættu Þrótturum
af fullum krafti frá fyrstu mínútu. Það tók
ekki langan tíma að brjóta niður varnarmúra
Þróttara, Joey Gibbs skallaði boltann í netið
á 3. mínútu og kom Keflavík yfir. Stundar-
fjórðungi síðar bætti Adam Ægir Pálsson
við marki þegar hann óð að teignum og gott
skot hans hafnaði í markinu, 2:0. Adam
Ægir var aðgangsharður upp við mark
Þróttara því skömmu síðar átti hann skot
í stöng og á 24. mínútu skoraði hann þriðja
mark Keflvíkinga. Það var ljóst að Þróttarar
voru ekki að fara að sækja sín fyrstu stig í
kvöld og tveimur mínútum eftir að Adam
Ægir skoraði þriðja markið mætti Joey
Gibbs góðri fyrirgjöf og skallaði í netið. Það
var ekkert lát á sókn Keflvíkinga og þeir
sköpuðu sér fleiri færi en staðan 4:0 í hálf-
leik fyrir Keflavík.
Seinni hálfleikur var í raun aðeins forms-
atriði og Keflvíkingar slökuðu aðeins á en
hefðu engu að síður getað bætt við mörkum.
Adam Ægir var skeinuhættur og átti m.a.
skot í stöng. Leiknum lauk með 4:0 sigri Kefl-
víkinga.
ÞEIR VERJA HANN EKKI ÞARNA!
Frábært opnunarmark Kian sem setti hann í þverslána, niður
og boltinn þandi út netmöskvana. Algerlega óverjandi fyrir
markvörð Vestra. Ljósmyndir: Guðmundur Sigurðsson.
Joey Gibbs og Kian Williams skoruðu
tvö mörk hvor gegn Vestra.
Joey Gibbs hefur verið á skotskónum
í sumar, hér er hann að skora áttunda
mark sitt í Lengjudeildinni í ár.
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
42 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár