Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.07.2020, Page 42

Víkurfréttir - 29.07.2020, Page 42
Gríðarleg spenna í Lengjudeild karla: Keflavík í toppbaráttunni Aðeins tveimur stigum frá efsta sætinu Keflvíkingar unnu stórsigur á Þrótturum í sjöttu umferð Lengjudeildar karla og í þeirri sjöundu léku þeir gegn Þór á Akureyri, þeim leik lyktaði með 1:1 jafntefli. Keflvíkingar tóku á móti Vestra í Lengjudeild karla í áttundu umferð Lengjudeildar karla. Óverjandi þrumufleygur Leikurinn fór ekki amalega af stað en á 5. mínútu átti Kian Williams sannkallaðan þrumufleyg langt fyrir utan teig, sláin inn. Stór- glæsilegt mark. Leikurinn fór fjörlega af stað og tveimur mínútum eftir að hafa lent undir fékk Vestri sannkallað dauðafæri þegar fyrirgjöf barst fyrir mark Keflvíkinga á Vestramann sem var einn og óvaldaður á fjærstöng en skot hans fór rétt framhjá markinu. Fyrri hálfleikur var ágætur hjá báðum liðum sem skiptust á að sækja án þess þó að skapa sér álitleg færi, eftir því sem leið á hálfleikinn tók Vestri þó að sækja ívið meira en náði þó ekki að koma boltanum í netið. Staðan því 1:0 í hálfleik, Keflavík í vil. Jöfnunarmarkið kveikti í Keflvíkingum sem slökktu á Vestra Vestramenn mættu ákveðnir til seinni hálfleiks og settu pressu á Keflvíkinga, á 57. mínútu fékk Vestri horn og upp úr því barst boltinn á sókn- armann þeirra sem afgreiddi hann í markið, 1:1. Keflvíkingar tóku miðju, léku upp vinstri kantinn, sendu fyrir markið þar sem Joey Gibbs setti hann framhjá markverði Vestra og Keflavík því aftur komið yfir á innan við mínútu. Vestra- menn voru enn að fagna og vissu varla hvað skall á þeim þegar Joey skoraði. Það má segja að neistinn sem kveikti í Kefl- víkingum hafi alveg slökkt á Vestramönnum því á 59. mínútu kom Keflavík upp hægri kantinn og Sindri Þór Guðmundsson gaf góða fyrirgjöf inn fyrir vörn Vestra þar sem Kian stakk sér fram og skallaði í markið, 3:1 fyrir Keflavík. Áfram hélt Keflavík að sækja og hafa stjórn á leiknum. Vestraliðið var í hálfgerðu áfalli eftir að fá þessi mörk á sig og Keflvíkingar voru með leikinn í höndunum. Á 74. mínútu mætti Joey Gibbs á nærstöng og skoraði fjórða mark Kefl- víkinga sem reyndist lokamark leiksins. Úrslit 4:1 fyrir Keflavík. Keflavík með bestu markatöluna Sóknarleikur Keflvíkinga hefur verið góður í sumar og ekkert lið hefur skorað fleiri mörk en þeir, 25 mörk í átta umferðum. Svipaða sögu er að segja af varnaleik liðsins en Keflavík hefur aðeins fengið tíu mörk á sig í deildinni í sumar, aðeins ÍBV (hefur fengið átta mörk á sig) hefur fengið færri mörk á sig. Joey Gibbs hefur verið á skotskónum í sumar og er enn markahæstur í deildinni með átta mörk. Joey er vinnusamur leikmaður og hefur smollið vel inn í leik Keflavíkurliðsins eins og sést best á tölfræðinni. ENGIN MISKUNN HJÁ KEFLAVÍK Keflvíkingar kláruðu Þróttara á þrjátíu mínútum Keflvíkingar góða ferð í höfuðborgina í sjöttu umferði Lengjudeildarinnar þar sem þeir sóttu sóttu lið Þróttar heim. Þrótt- arar voru stigalausir eftir fyrstu fimm um- ferðirnar en Keflvíkingar sýndu hvorki miskunn né vanmat og mættu Þrótturum af fullum krafti frá fyrstu mínútu. Það tók ekki langan tíma að brjóta niður varnarmúra Þróttara, Joey Gibbs skallaði boltann í netið á 3. mínútu og kom Keflavík yfir. Stundar- fjórðungi síðar bætti Adam Ægir Pálsson við marki þegar hann óð að teignum og gott skot hans hafnaði í markinu, 2:0. Adam Ægir var aðgangsharður upp við mark Þróttara því skömmu síðar átti hann skot í stöng og á 24. mínútu skoraði hann þriðja mark Keflvíkinga. Það var ljóst að Þróttarar voru ekki að fara að sækja sín fyrstu stig í kvöld og tveimur mínútum eftir að Adam Ægir skoraði þriðja markið mætti Joey Gibbs góðri fyrirgjöf og skallaði í netið. Það var ekkert lát á sókn Keflvíkinga og þeir sköpuðu sér fleiri færi en staðan 4:0 í hálf- leik fyrir Keflavík. Seinni hálfleikur var í raun aðeins forms- atriði og Keflvíkingar slökuðu aðeins á en hefðu engu að síður getað bætt við mörkum. Adam Ægir var skeinuhættur og átti m.a. skot í stöng. Leiknum lauk með 4:0 sigri Kefl- víkinga. ÞEIR VERJA HANN EKKI ÞARNA! Frábært opnunarmark Kian sem setti hann í þverslána, niður og boltinn þandi út netmöskvana. Algerlega óverjandi fyrir markvörð Vestra. Ljósmyndir: Guðmundur Sigurðsson. Joey Gibbs og Kian Williams skoruðu tvö mörk hvor gegn Vestra. Joey Gibbs hefur verið á skotskónum í sumar, hér er hann að skora áttunda mark sitt í Lengjudeildinni í ár. Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg. 42 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.