Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.07.2020, Side 45

Víkurfréttir - 29.07.2020, Side 45
en svo þegar tímabilið hófst tóku stífar æfingar við og maður var upptekinn við vinnu. Ég náði þó að ferðast eitthvað um Suðurlandið sem var mjög ánægjulegt. Við fáum reyndar nokkurra daga frí í vikunni og þá vonast ég til að fara með einhverjum af strákunum til að sjá meira af landinu.“ Hefur mikinn áhuga á tónlist – Áttu þér einhver áhugamál fyrir utan fótboltann? „Mörg minna áhugamála eru „áströlsk“ og kannski ekki sniðin að Íslandi. Ég fer t.d á brimbretti í Ástralíu, það er eitthvað sem ég get ekki gert hérna.“ Þegar blaðamaður skýtur inn að einhverjir örfáir „sörfi“ hérlendis hlær Joey og segist þá þurfa að fá sér mjög þykkan blautgalla. „Á þeim tíma sem ég hef verið hérna hef ég einnig lagt stund háskólanám, það hefur tekið sinn tíma og haldið mér uppteknum. Svo hef ég mjög gaman af lifandi tónlist. Ég hefði viljað getað komist á tónleika en þá komum við aftur að þessu Covid sem hefur aftrað því. Ég hef heyrt að Keflavík hafi það orðspor á sér að vera tónlistarbær og ég myndi elska að komast í kynni við tónlistina hér. Ég hef mjög breiðan tónlistarsmekk, hlusta á allt frá Nirvana til Neil Young og þess háttar. Ég er alæta á tónlist.“ – Leikurðu á hljóðfæri sjálfur? „Nei, því miður bý ég ekki yfir þeim hæfileika. Kærastan mín í Ástralíu er sú sem hefur tón- listarhæfiileikana, hún leikur á fiðlu og víólu. Ég myndi elska að geta leikið á gítar, ég hef reynt að læra sjálfur en ekki fylgt því eftir. Svo er ég aðeins byrjaður að reyna fyrir mér í golfi, ég er með pútter í bílnum og fer stundum á púttvöllinn við Mánaflöt. Mig langar að læra golf og verða aðeins betri, ég hef séð að það eru margir fallegir golfvellir hérna.“ Ætlar að verða grunnskólakennari þegar ferlinum lýkur Joey leggur stund á kennaranám þessa stundina, hann hefur BS-gráðu í íþrótta- fræðum og langar að blanda saman þjálfun og kennslu barna þegar hann leggur fót- boltann á hilluna. „Þegar ég var í Ástralíu fékkst ég að- eins við þjálfun yngri krakka og ég held að maður bæti sig sem manneskju við að deila sinni þekkingu með yngri kynslóðum. Að vinna við knattspyrnu hefur svolitla glansímynd á sér og þegar maður hugsar til þess hvað maður geti gefið til baka til samfélagsins og einstaklinga þá finnst mér kennsla vera af svo allt öðrum toga og tilfallin til þess. Mér myndi líða vel í þannig starfi og að geta gefið af mér, ég er alveg viss um að það sé mjög gefandi.“ Líður vel á Íslandi „Upphaflega samdi ég til eins árs við Keflavík því þetta er svo framandi staður og ég vissi ekki við hverju ég mætti búast. Ég hef notið þess að vera hérna og held að klúbburinn sé ánægðu með mína frammistöðu svo ég reikna með að við setjumst fljótlega niður og ræðum framhaldið. Þetta er góður staður til að vera á, ég vildi óska að kærastan mín gæti komið en hún er augljóslega föst í Ástralíu út af Covid- ástandinu en vonandi verður næsta ár auð- veldara.“ Joey veitir okkur innsýn í tónlistarsmekk sinn Hér eru nokkur nöfn á hljómsveitum/söngv- urum og uppáhaldslag með hverjum og einum: Cold Chisel (ástralskt „old school“ pöbbarokk / dæmigerð áströlsk tónlist) uppáhaldslagið er Flame Trees. Johnny Cash (við þekkjum hann öll) uppáhaldið mitt með honum er Cocaine Blues. Rodriguez (platan hans Cold Fact ein af mínum uppáhalds) held mikið upp á lagið I Wonder. Paul Kelly (fyrir mér er hann hinn ástralski Bob Dylan) To Her Door er uppáhaldslagið mitt með honum. Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta Laurencia (kærastan mín er nýbyrjuð að semja og gefa út tónlist, ég myndi koma sjálfum mér í vandræði ef hún ratar ekki á listann) Run er lag með henni sem ég held upp á. Smelltu á myndirnar til að hlusta Ég hef notið þess að vera hérna og held að klúbburinn sé ánægðu með mína frammistöðu svo ég reikna með að við setjumst fljótlega niður og ræðum framhaldið ... Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg. víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 45

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.