Víkurfréttir - 29.07.2020, Page 45
en svo
þegar tímabilið hófst tóku
stífar æfingar við og maður var upptekinn
við vinnu. Ég náði þó að ferðast eitthvað um
Suðurlandið sem var mjög ánægjulegt. Við
fáum reyndar nokkurra daga frí í vikunni og
þá vonast ég til að fara með einhverjum af
strákunum til að sjá meira af landinu.“
Hefur mikinn áhuga á tónlist
– Áttu þér einhver áhugamál fyrir utan
fótboltann?
„Mörg minna áhugamála eru „áströlsk“ og
kannski ekki sniðin að Íslandi. Ég fer t.d á
brimbretti í Ástralíu, það er eitthvað sem ég
get ekki gert hérna.“
Þegar blaðamaður skýtur inn að einhverjir
örfáir „sörfi“ hérlendis hlær Joey og segist þá
þurfa að fá sér mjög þykkan blautgalla.
„Á þeim tíma sem ég hef verið hérna hef ég
einnig lagt stund háskólanám, það hefur tekið
sinn tíma og haldið mér uppteknum. Svo
hef ég mjög gaman af lifandi tónlist. Ég hefði
viljað getað komist á tónleika en þá komum
við aftur að þessu Covid sem hefur aftrað
því. Ég hef heyrt að Keflavík hafi það orðspor
á sér að vera tónlistarbær og ég myndi elska
að komast í kynni við tónlistina hér. Ég hef
mjög breiðan tónlistarsmekk, hlusta á allt frá
Nirvana til Neil Young og þess háttar. Ég er
alæta á tónlist.“
– Leikurðu á hljóðfæri sjálfur?
„Nei, því miður bý ég ekki yfir þeim hæfileika.
Kærastan mín í Ástralíu er sú sem hefur tón-
listarhæfiileikana, hún leikur á fiðlu og víólu.
Ég myndi elska að geta leikið á gítar, ég hef
reynt að læra sjálfur en ekki fylgt því eftir.
Svo er ég aðeins byrjaður að reyna fyrir
mér í golfi, ég er með pútter í bílnum og fer
stundum á púttvöllinn við Mánaflöt. Mig
langar að læra golf og verða aðeins betri, ég
hef séð að það eru margir fallegir golfvellir
hérna.“
Ætlar að verða grunnskólakennari
þegar ferlinum lýkur
Joey leggur stund á kennaranám þessa
stundina, hann hefur BS-gráðu í íþrótta-
fræðum og langar að blanda saman þjálfun
og kennslu barna þegar hann leggur fót-
boltann á hilluna.
„Þegar ég var í Ástralíu fékkst ég að-
eins við þjálfun yngri krakka og ég held
að maður bæti sig sem manneskju við að
deila sinni þekkingu með yngri kynslóðum.
Að vinna við knattspyrnu hefur svolitla
glansímynd á sér og þegar maður hugsar
til þess hvað maður geti gefið til baka til
samfélagsins og einstaklinga þá finnst mér
kennsla vera af svo allt öðrum toga og tilfallin
til þess. Mér myndi líða vel í þannig starfi og
að geta gefið af mér, ég er alveg viss um að
það sé mjög gefandi.“
Líður vel á Íslandi
„Upphaflega samdi ég til eins árs við Keflavík
því þetta er svo framandi staður og ég vissi
ekki við hverju ég mætti búast. Ég hef notið
þess að vera hérna og held að klúbburinn sé
ánægðu með mína frammistöðu svo ég reikna
með að við setjumst fljótlega niður og ræðum
framhaldið. Þetta er góður staður til að vera á,
ég vildi óska að kærastan mín gæti komið en
hún er augljóslega föst í Ástralíu út af Covid-
ástandinu en vonandi verður næsta ár auð-
veldara.“
Joey veitir okkur innsýn í tónlistarsmekk sinn
Hér eru nokkur nöfn á hljómsveitum/söngv-
urum og uppáhaldslag með hverjum og einum:
Cold Chisel (ástralskt „old school“ pöbbarokk
/ dæmigerð áströlsk tónlist) uppáhaldslagið er Flame Trees.
Johnny Cash
(við þekkjum hann öll)
uppáhaldið mitt með
honum er Cocaine Blues.
Rodriguez (platan hans
Cold Fact ein af mínum
uppáhalds) held mikið
upp á lagið I Wonder.
Paul Kelly (fyrir mér er hann hinn
ástralski Bob Dylan) To Her Door er
uppáhaldslagið mitt með honum.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Laurencia (kærastan mín er nýbyrjuð
að semja og gefa út tónlist, ég myndi
koma sjálfum mér í vandræði ef hún
ratar ekki á listann) Run er lag með
henni sem ég held upp á.
Smelltu á myndirnar til að hlusta
Ég hef notið þess að
vera hérna og held að
klúbburinn sé ánægðu
með mína frammistöðu
svo ég reikna með að
við setjumst fljótlega
niður og ræðum
framhaldið ...
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 45