Víkurfréttir - 29.07.2020, Blaðsíða 66
hefur gefið út nýtt myndband sem tekið var upp við Kleifarvatn
Alexandra Chernyshova komst nýlega í úrslit í alþjóðlegri söngkeppni, í
topp tíu tónlistarmanna af 4000 atriðum og lenti í 9. sæti í tónlistarkeppni
World Folk Vision. Í keppnina sendi hún frumsamið lag, „Ave Maria“, úr
óperunni „Skáldið og biskupsdóttirin“ við handrit Guðrúnar Ásmunds-
dóttur, ljóð eftir Rúnar Kristjánsson. Nótnabók með fjórtán lögum fyrir
rödd og pianó úr óperunni er hægt er að kaupa í gegnum heimasíðu Alex-
öndru: www.alexandrachernyshova.com. Nýtt tónlistarmyndband Alex-
öndru er um Svanaprinsessuna úr óperunni „Ævintýrið um Tsar Saltan“ eftir
tónskaldið Nikolai Rimskiy-Korsakov við ljóð Alexander Pushkin.
„Meðan ég vann að undirbúningi
tónleikanna „Russian Souvenir: Al-
exander Pushkin“, kynnti ég mér
mjög vel ljóð Pushkins. Ég heim-
sótti Pushkin-safnið í St. Péturs-
borg, las mikið um Pushkin í bóka-
safninu og spjallað við Pushkin-
sérfræðinga. Febrúartónleikarnir
á þessu ári, „Russian Souvenir“ í
Hörpu í Reykjavík, fengu hlýlegar
móttökur áhorfenda og góða dóma
hjá Jónasi Sen, tónlistargagnrýn-
enda. Tónleikarnir voru þeir síð-
ustu fyrir Covid-19 og auðvitað
vildi ég halda áfram. Þetta mynd-
band er líklega framhaldið, lenging
á góðu ævintýri. Ég hef alltaf
hlustað á töfrandi tónlist Rimsky-
Korsakov. Ísland er stórkostlega
fallegt land, svo ekki var erfitt
að finna réttan stað fyrir mynd-
bandið. Maðurinn minn, Jón Hilm-
arsson, er landslagsljósmyndari
og einnig leiðsögumaður fyrir at-
vinnuljósmyndara og áhugamenn
og hann lagði til þennan stað,
Kleifarvatn, þar sem við tókum
myndband um aríu Svanaprins-
essunnar. Kjóll og myndarammi
var sérstaklega valinn fyrirfram.
Veðrið á Íslandi er breytilegt,
svo eftir að hafa tekið upp rödd
og píanó með píanóleikaranum
Kjartani Valdemarssyni þurfti ég
að bíða aðeins með myndbandið.
Við þurfum að bíða eftir rólegu
veðri sem myndi ramma fallega
inn það sem var hugsað í tónlist
og aríu í heild, nefnilega það sem
við öll viljum – ljós og kærleika á
jörðinni. Við búumst við krafta-
verki og vellíðan á jörðinni. Ég vil
líka ráðleggja lestur á Alexander
Pushkin fyrir alla, hann er snilldar
rithöfundur og ljóðskáld,“ segir Al-
exandra.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
stóð sig vel í alþjóð-
legri söngkeppni
Hér er nýja
tónlistarmyndband
Alexöndru.
Alexandra
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
66 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár