Víkurfréttir - 29.07.2020, Síða 69
Sumarið hefur leikið við okkur. Við höfum nýtt hluta þess í framkvæmdir úti
við. Það er góð samstaða hér í hverfinu okkar og við nágrannarnir fórum
þá íslensku leið á þessum tíma að fara í smíði á skjólvegg. Það reyndist á
köflum krefjandi vegna mikillar samkeppni um timbur á Íslandi þessi miss-
erin en vegna þessa verkefnis er það ofarlega í huga mér hversu lítið rigndi
í júní. Svo höfum við fjölskyldan aðeins ferðast innanlands og þá stundum
í tengslum við fótboltaiðkun miðlungsins sem leikur með 3. flokki Njarð-
víkur,“ segir Sighvatur Jónsson, fjölmiðlamaður. Hann og fjölskylda hans
eru nýir Suðurnesjamenn en þau fluttu fyrir ári síðan frá Vestmannaeyjum
og una hag sínum vel í Innri-Njarðvík þar sem þau búa.
– Hvaða staðir á Íslandi hafa
heillað þig?
Við skutumst sem dæmi norður
til Húsavíkur þegar Njarðvíkur-
strákarnir áttu leik við Völsung.
Þangað höfðum við ekki komið
áður þó svo að við höfum ferðast
eitthvað um Norðurland. Það var
sérstaklega gaman að koma til
Húsavíkur á þeim tíma þegar um-
ræðan um Eurovision-mynd Will
Farrels og félaga var sem mest. Við
fylgdumst til dæmis með smíði Ja
ja Ding Dong-barsins við hótelið
þar sem við gistum en sá bar var
tekinn í notkun stuttu síðar. Á
ferðalagi okkar um Norðurland
keyrðum við hluta af hinum svo-
kallaða Demantshring, við skoð-
uðum meðal annars Ásbyrgi, Detti-
foss og Dimmuborgir. Ég man eftir
því að hafa komið í Ásbyrgi á yngri
árum, það vakti athyli mína hversu
mikill gróður er þar, minnti mig
einna helst á dönsku skógana frá
því að við bjuggum þar fyrir um
áratug.
– Hvað ætlar þú að gera um
verslunarmannahelgina?
Við hjónin erum frá Eyjum og
höfum fylgst grannt með um-
ræðunni um Þjóðhátíð, sem engin
verður nú vegna heimsfaraldurs
Covid-veirunnar. Persónulega
finnst mér þetta mjög sérstakt
í ljósi þess að ég og félagi minn,
Skapti Örn Ólafsson, framleiddum
heimildarmyndina Fólkið í Dalnum
sem var frumsýnd fyrir ári. Ég hef
verið að vinna í textun myndar-
innar á íslensku og ensku síðustu
vikur og sé hversu mikilvægt það
var að við náðum að skrásetja
þessa merkilegu sögu hátíðarinnar
í fyrra, vitandi það ekki að engin
yrði hátíðin í ár. Myndin var birt
á VOD-leigum símafyrirtækjanna
fyrr á árinu og má búast við að
margir noti tækifærið og horfi á
hana nú. Annars verð ég að vinna
á Bylgjunni um verslunarmanna-
helgina en við fjölskyldan ætlum
þó að nota hluta helgarinnar til að
gera eitthvað saman – en stillum
ferðalögum í hóf.
– Hver er eftirminnilegasta
verslunarmannahelgin þín?
Þessu er auðsvarað. Þrátt fyrir
að hafa myndað Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum í mörg ár og fjallað
um hana sem fréttamaður og við
gerð heimildarmyndar um hátíðina
er árið 1992 mjög eftirminnilegt.
Á þeirri þjóðhátíð kynntumst við
Dóra Hanna, eiginkona mín, og ég
segi stundum í gríni að við séum
svo týpískt Eyjafólk að við höfum
kynnst á hátíðinni. Reyndin er nú
sú að margir Íslendingar hafa þessa
sömu sögu að segja. Ef ég þarf að
auka við rómantíkina í sögunni þá
bæti ég því við að ég hafi beðið
Dóru Hönnu undir dynjandi flug-
eldasýningu í Herjólfsdal nokkrum
árum síðar. Við giftum okkur hins
vegar í kirkju – en ekki í Dalnum,“
segir nýi Njarðvíkingurinn Sig-
hvatur.
Dóra Hanna Sigmarsdóttir,
Sighvatur Jónsson, Heiðrún Björk
Sigmarsdóttir og Vilberg Eiríksson
í Ásbyrgi á köldum sumardegi.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 69